Vilja að öllum kappleikjum verði frestað um viku Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júlí 2020 11:21 Úr leik í Pepsi Max-deild karla í sumar. vísir/bára
Á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar og sóttvarnayfirvalda í dag beindi Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn, því til íþróttahreyfingarinnar að öllum kappleikjum fullorðinna yrði frestað um viku. Er þar átt við kappleiki iðkenda sem eru fæddir árið 2000 eða fyrr. „Við biðlum til íþróttahreyfingarinnar að fresta öllum íþróttaviðburðum um eina viku, eða til 10. ágúst,“ sagði Víðir. Á fundinum var tilkynnt um hertari aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins. Þær taka gildi á hádegi á morgun. Fjöldatakmörk verða lækkuð úr 500 manns í 100 manns. Ljóst er að það mun hafa áhrif á áhorfendafjölda á leikjum þegar þeir mega aftur fara fram. Þá tekur tveggja metra reglan aftur gildi og verður ekki lengur valkvæð. Þar sem ekki verður hægt að tryggja metra regluna verður grímuskylda. Ljóst er að þetta hefur mikið áhrif á Íslandsmótið í fótbolta og Íslandsmótið í golfi sem átti að fara fram í Mosfellsbæ 6.-9. ágúst. Sjö leikir eru á dagskrá sextán liða úrslita Mjólkurbikars karla í kvöld og einn annað kvöld. Engir leikir eru á dagskrá um verslunarmannahelgina en strax eftir þá áttu leikir að fara fram í öllum deildum.
Íslenski boltinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Van Gerwen kemur trans konunni til varnar: „Þetta er svo sárt“ Sport „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Enski boltinn Íslandsmeistarinn úr leik og þrettán ára gutti stal senunni Sport Gagnrýnir blaðamann sem gerði grín að útliti hennar Sport Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Enski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif 6. umferðar Körfubolti Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Enski boltinn Dagskráin í dag: Lögmál leiksins, píla, snóker og fótbolti Sport Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir „Velkomin í dal draumanna“ Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Hermann Hreiðars tekur við HK Farinn til Tene og er ekkert að stressa sig Hafnaði uppeldisfélaginu og verður áfram í Mosfellsbæ Sunderland meðal þeirra liða sem horfa til Benóný Breka Oliver kveður Breiðablik „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina „Þetta er liðið hans Höskuldar“ „Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ „Einn af þeim bestu og skemmtilegustu sem við höfum séð síðustu ár“ Var í fjórða flokki þegar hann stýrði inni á æfingu meistaraflokks Sagður hafa slitið samningi við KA og leiti út „Ekki fyrirkomulaginu að kenna hvernig þeim gekk og þetta er ódýr afsökun“ Ein af stofnendunum leggur skóna á hilluna Komu KR upp um deild og stýra liðinu áfram „Júlíglugginn kostaði FH þetta tímabil“ Snýr aftur í Bestu deildina með ÍBV Hætti ungur í landsliðinu og fór beint á Prikið „Er þetta ekki komið gott af pólitík?“ Skrautlegur ferill á enda: Kaflaskil þegar hann kynntist konunni Andri Rúnar einn af sjö sem kveðja Vestra Axel Óskar farinn frá KR og velur úr tilboðum Farsæll ferill á enda: „Langar að vera í fríi um helgar og á kvöldin“ Kristinn fékk loksins medalíuna sína og nýjan samning í kaupbæti „Þetta var bara ömurlegt í alla staði“ Ómar strax kominn með starf hjá KSÍ Lenti í stórum jarðskjálfta launalaus í heimsfaraldri Sjá meira