Maður handtekinn eftir innbrot í kirkju Atli Ísleifsson skrifar 29. desember 2019 07:25 Leiða má líkur að því að um Grensáskirkju sé að ræða, þar sem ekki er að finna fleiri kirkjur í póstnúmeri 103. vísir/vilhelm
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í nótt. Maður var handtekinn í kirkju í hverfi 103 á fimmta tímanum í nótt að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Er maðurinn grunaður um húsbrot og var hann vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu. Leiða má líkur að því að um Grensáskirkju sé að ræða, þar sem ekki er að finna fleiri kirkjur í póstnúmeri 103. Skömmu fyrir klukkan 22 voru afskipti höfð af tveimur mönnum í hverfi 105 í Reykjavík þar sem þeir áttu í fíkniefnaviðskiptum. Voru þeir handteknir og vistaðir í fangageymslu en settir lausir að lokinni skýrslutöku. Einnig segir að kaupandinn sé sömuleiðis grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Um hálf fjögur var ung kona í annarlegu ástandi handtekin við skemmtistað í miðborginni. Var hún vistuð sökum ástands í fangageymslu. Tilkynnt var um tvö umferðaróhöpp, bæði í hverfi 105, annars vegar skömmu fyrir klukkan þrjú og hins vegar rúmlega fjögur, þar sem tjónvaldar eru grunaðir um akstur undir áhrifum. Í öðru tilvikinu var maðurinn auk þess handtekinn fyrir vörslu fíkniefna og ofbeldi gegn opinberum starfsmanni, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Lögregla þurfti einnig að hafa afskipti af fjölda annarra ökumanna sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum ýmist áfengis eða fíkniefna.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Fleiri fréttir Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Sjá meira