Lækkun greiðsluþátttöku sjúklinga: Komugjöld sjúklinga lækka úr 1200 í 700 krónur um áramótin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. desember 2019 14:13 Svandís kynnti breytingarnar á blaðamannafundi í dag. Vísir/EgillA
Komugjöld í heilsugæslu verða felld niður í áföngum, niðurgreiðslur sjúkratrygginga fyrir tannlæknisþjónustu og lyf verða auknar og sömuleiðis vegna tiltekinna hjálpartækja og reglur um ferðakostnað verða rýmkaðar. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti í dag áform um ráðstöfun 1,1 milljarðs króna á næstu tveimur árum til að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga. Hluti aðgerðanna kemur til framkvæmda 1. janúar næstkomandi. Í fjármálaáætlun stjórnvalda eru 3,5 milljarðar króna ætlaðir til að draga úr kostnaði sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu til ársins 2024. „Lækkun greiðsluþátttöku sjúklinga er afgerandi þáttur í því að jafna aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu og sporna við heilsufarslegum ójöfnuði af félagslegum og fjárhagslegum ástæðum. Markmiðið er að greiðsluþátttakan verði á pari við það sem best gerist á Norðurlöndunum og hér kynni ég mikilvæg skref að því marki,“ segir Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í tilkynningu. Komugjöld í heilsugæslu felld niður í áföngum Þann 1. janúar næstkomandi lækka almenn komugjöld í heilsugæslu úr 1.200 krónum í 700 krónur eða um tæp 60%. Þetta á við um komur fólks á dagvinnutíma á heilsugæslustöð þar sem viðkomandi er skráður. Aukin framlög ríkisins vegna þessarar aðgerðar nema um 135 milljónum króna á næsta ári. Áformað er að fella komugjöld í heilsugæslu á dagvinnutíma niður að fullu árið 2021 og er áætlaður kostnaður vegna þess um 350 milljónir króna. Líkt og verið hefur greiða börn, aldraðir og öryrkjar ekki komugjöld í heilsugæslu. Auknar niðurgreiðslur til tannlækninga í þágu barna og lífeyrisþega Á næstu tveimur árum er áætlað að auka framlög til tannlæknisþjónustu við börn og lífeyrisþega um samtals 320 milljónir króna. Fyrsta skrefið verður stigið 1. janúar næstkomandi þegar öllum börnum sem fæðast með skarð í efri tannboga eða með klofinn góm verður tryggður réttur til endurgreiðslu vegna tannlækninga og tannréttinga sem nemur 95% af gjaldskrá tannlæknis. Árið 2021 er gert ráð fyrir 90 milljóna króna auknu framlagi til að mæta útgjöldum fólks til tannlæknisþjónustu vegna slysatilvika og meðfæddra galla. Þá er einnig gert ráð fyrir 200 milljónum króna í auknar niðurgreiðslur til tannlækninga lífeyrisþega árið 2021. Samkvæmt fjármálaáætlun er svigrúm til að auka framlögin árlega um 200 milljónir króna árin 2021 – 2024 og lækka með því greiðsluþátttöku lífeyrisþega vegna tannlækninga úr 50% í 25% á tímabilinu. Lækkun lyfjakostnaðar Frá 1. janúar næstkomandi verða hormónatengdar getnaðarvarnir felldar undir lyfjagreiðsluþátttökukerfið fyrir konur sem eru 20 ára eða yngri. Áætluð útgjaldaaukning vegna þess nemur um 40 milljónum króna. Árið 2021 er gert ráð fyrir um 50 milljónum króna til að lækka þak á árleg hámarksútgjöld einstaklinga vegna lyfjakaupa. Sama ár er einnig ráðgert að verja um 20 milljónum króna í niðurgreiðslur á hormónalykkjunni fyrir konur sem þurfa á henni að halda af klínískum ástæðum, t.d. vegna endómetríósu. Til lengri tíma litið hefur heilbrigðisráðherra sett fram áætlun með hliðsjón af fjármálaáætlun stjórnvalda um að 1,1 milljarði króna verði varið sérstaklega til að lækka lyfjaútgjöld lífeyrisþega, barna og ungmenna. Bætt þjónusta við lungnasjúklinga og fólk með sykursýki Léttum súrefnissíum verður fjölgað umtalsvert á næsta ári en slíkar síur geta verið mikilvæg forsenda fyrir virkni fólks með lungnasjúkdóma og þátttöku í daglegu lífi. Nú eiga um 120 einstaklingar kost á þessum búnaði en áætlað er að tryggja framboð á léttum súrefnissíum fyrir allt að 250 manns. Aukin fjárframlög vegna þessa eru áætluð um 35 milljónir króna. Tekinn verður í notkun búnaður fyrir sykursjúka sem er nýr hér á landi. Þetta eru nemar sem fylgjast með blóðsykri í gegnum húð notenda að staðaldri og hafa reynst afar vel. Þessi tækni breiðist ört út í heiminum, er hagkvæm, notendavæn og ýtir undir heilsulæsi notendanna. Í Svíþjóð nota til að mynda um 75% einstaklinga með sykursýki 1 þennan búnað. Hingað til hefur smæð markaðarins hér á landi komið í veg fyrir innflutning á þessum búnaði, en nú hefur verið ráðið fram úr þeim vanda. Búnaðurinn mun standa til boða þeim sem eru með insúlínháða sykursýki (sykursýki I) eða meðgöngusykursýki. Samhliða þessu verður reglugerð um kostnaðarhlutdeild í búnaði fyrir sykursjúka breytt þannig að sömu reglur gildi fyrir alla, ólíkt því sem verið hefur. Þar er um að ræða strimla og hnífa sem þeir nota sem ekki geta nýtt sér fyrrnefnda blóðsykurnema eða eru með sykursýki II. Rýmri reglur um ferðakostnað Í janúar næstkomandi tekur gildi ný reglugerð um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innanlands. Með reglugerðinni verður m.a. komið til móts við þá sem þurfa reglulega að ferðast um lengri veg vegna blóðskilunar. Enn fremur er það nýmæli að greitt verður fargjald fylgdarmanns konu sem þarf að takast ferðalag á hendur til að fæða barn á heilbrigðisstofnun eða sjúkrahúsi. Aukin útgjöld vegna þessara breytinga eru áætluð um 25 milljónir króna á ári
Heilbrigðismál Mest lesið Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Innlent Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Innlent Launahækkun Höllu illskiljanleg Innlent Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Erlent Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Erlent Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Innlent Nánast búin með stafrófið Innlent Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Erlent Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Innlent Fleiri fréttir Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Inga sendir boltann á sveitarfélögin „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Vill verja hundruðum milljóna í þegar dýrt leikskólakerfi „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Þúsundir karla byrla eiginkonum sínum og nauðga Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Aðildar- eða aðlögunarviðræður, djúptækni og tekist á í borginni Innbrot í kirkju og slagsmál í strætisvagni Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Sjá meira