Skoðun

Loðin stefna Pírata

Egill Þór Jónsson skrifar
Líkt og greint var frá í fréttum þá var meirihlutinn í Reykjavík ósamstíga á síðasta borgarstjórnarfundi í afstöðu sinni til samgöngusáttmála ríkis og sveitarfélaga. Eins og Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata, greindi sjálf frá í sjónvarpsfréttum Ríkisútvarpsins þá greiddu Píratar atkvæði með sáttmálanum en þó með fyrirvara. En alla jafna setur fólk fyrirvara í atkvæðagreiðslu sem þessari ef samþykki þeirra er bundið ákveðnum skilyrðum. Einn þessara fyrirvara sneri að því að veggjöld myndu ekki koma niður á þeim tekjulægri í samfélaginu. Þrátt fyrir það er afstaða Pírataflokksins í borgarstjórn til veggjalda ansi óljós og vel loðin.

Í því samhengi er rétt að benda á að Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður skipulags- og samgönguráðs, er í raun brautryðjandi í þeim fyrirætlunum meirihlutans að leggja á sérstök veggjöld í Reykjavík. Því til stuðnings segir orðrétt í fréttum RÚV frá 25.05.2019: „Sigurborg segir að þetta gæti orðið hluti af þeirri leið sem farin yrði til þess að fjármagna uppbyggingu borgarlínu á höfuðborgarsvæðinu.“ Þá segir jafnframt í fréttinni að í Noregi séu þetta gjöld á bilinu 1200 til 1800 krónur hver ferð.

Þessi hugmynd Sigurborgar er í hróplegu ósamræmi við þá fyrirvara sem hún og flokkur hennar setti við samþykkt samgöngusáttmálans í borgarstjórn þriðjudaginn 15. október síðastliðinn. Þar er þess sérstaklega getið að útfærsla sérstakrar fjármögnunar komi ekki niður á þeim tekjulægstu í samfélaginu. Píratar í Reykjavík gera hins vegar enga athugasemd við veggjöld að öðru leyti, en það hlýtur vera krafa kjósenda að þeir upplýsi um afstöðu sína til sérstakra veggjalda. Þá hefur oddviti Pírata ítrekað vikið sér undan því að svara því hvort flokkurinn sé fylgjandi veggjöldum eða ekki. 

Píratar hafna samkomulaginu í rafrænni atkvæðagreiðslu 

Píratar á höfuðborgarsvæðinu eru ekki einhuga um samgöngusáttmálann. Til að mynda lögðu fulltrúar Pírata í bæjarstjórn Kópavogs til atkvæðagreiðslu inn í kosningakerfi Pírata um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Sáttmálanum var hafnað í þeirri atkvæðagreiðslu með meirihluta atkvæða.

Við afgreiðslu samgöngusáttmálans á bæjarstjórnarfundi Kópavogs í gær, þriðjudaginn 22. október 2019, greiddi Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata, ekki atkvæði í atkvæðagreiðslunni um samgöngusáttmálann. Sú ákvörðun Sigurbjargar hlýtur fyrst og fremst að byggjast á ákvörðun grasrótar Pírata í Kópavogi.

Í mínum huga eiga kjósendur hins vegar rétt á að fá að vita hver raunveruleg afstaða borgarstjórnarflokks Pírata er til veggjalda. Eða er það kannski svo að Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, og aðrir fulltrúar flokksins í borgarstjórn Reykjavíkur styðja það heilshugar að samkomulagið verði fjármagnað með veggjöldum? 

Það vekur athygli að Píratar í Kópavogi hafi fellt samkomulagið í atkvæðagreiðslu innan flokksins. Þá vekur það óneitanlega athygli að grasrót Pírata fékk ekki segja sitt álit á samningnum, en í grunnstefinu Pírata er rætt sérsteklega um beint lýðræði og aðkomu grasrótar að ákvörðunartöku skv. sjöttu grein grunnstefnu Pírata um beint lýðræði og sjálfsákvörðunarrétt. 

Ég veit ekki hvort borgarfulltrúar Pírata í Reykjavík óttist grasrótina í Reykjavík eða bara hreinlega þekki ekki grunnstefnu Pírata, betur en svo að þeir láti hjá líða að halda kosningu um samgöngusáttmálann í Reykjavík.

Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×