Enski boltinn

„Ef Henderson ætlar að spila fyrir stórlið verður hann að gera betur“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Henderson niðurlútur.
Henderson niðurlútur. vísir/getty
Chris Wilder, knattspyrnustjóri Sheffield United, sagði að Dean Henderson, markvörður liðsins, hefði átt að gera betur þegar Georginio Wijnaldum skoraði sigurmark Liverpool í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Á 70. mínútu átti Wijnaldum skot frá vítateigslínu sem lak á milli fóta Hendersons.

„Ef hann vill spila fyrir bestu liðin og fyrir enska landsliðið verður hann að gera betur. Hann verður að einbeita sér meira. Þetta var vonbrigðadagur fyrir hann,“ sagði Wilder.

Hann var ekki á þeim buxunum að vorkenna Henderson sem er á láni hjá Sheffield United frá Manchester United.

„Ég ætla ekki að taka utan um hann. Hann verður að gera betur,“ sagði Wilder.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×