Enski boltinn

Walcott fluttur á sjúkrahús

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Walcott fékk slæmt höfuðhögg í leiknum í dag
Walcott fékk slæmt höfuðhögg í leiknum í dag vísir/getty
Theo Walcott var fluttur á sjúkrahús vegna höfuðmeiðsla sem hann hlaut í leik Everton og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Walcott fékk fyrirgjöf Raheem Sterling aftan í höfuðið strax í upphafi leiks og þurfti að stoppa leikinn í dágóðan tíma á meðan Walcott fékk aðhlynningu.

Hann var að lokum borinn af velli og samkvæmt fréttamiðlum á Englandi var hann fluttur á sjúkrahús til þess að gangast undir frekari rannsóknir.

Walcott var í byrjunarliði Everton í fyrsta skipti á tímabilinu í dag, en hann hafði komið af varamannabekknum í fjórum leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×