Evrópsk eldflaug hrapaði í Atlantshafið Kjartan Kjartansson skrifar 11. júlí 2019 08:39 Teikning af Vega-eldflauginni. Hún er þrjátíu metra há og samsett úr fjórum þrepum. Vísir/EPA
Vega-eldflaug geimferðafyrirtækisins Arianespace fórst skömmu eftir geimskot í nótt. Um borð var hergervitungl frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Talið er að eldflaugin hafi hrapað í Atlantshafið norður af skotstaðnum í Frönsku Gíönu.Að sögn breska ríkisútvarpsins BBC er þetta í fyrsta skipti sem Vega-eldflaugin bregst en þetta var fimmtánda geimskot hennar. Það hefur eftir Luce Fabreguettes, varaforseta Arianespace, að „meiriháttar frávik“ hafi átt sér stað um tveimur mínútum eftir að eldflaugin hóf sig á loft, rétt um það leyti sem kveikja átti á öðru þrepi eldflaugarinnar. Geimskotinu hafði verið frestað í tvígang vegna veðurs. Ítalska og evrópska geimstofnunin hönnuðu Vega-eldflaugina saman og var hún notuð í fyrsta skipti árið 2012. Hún átti að gera Evrópuþjóðum kleift að skjóta litlum gervihnöttum út í geim. Arabíska gervitunglið sem fórst með eldflauginni nefndist FalconEye1. Það átti að vera það fyrra af tveimur sams konar tunglum sem komið væri fyrir á braut um jörðina.
Geimurinn Tækni Vísindi Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Sjá meira