Svöl vika fram undan Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. maí 2019 07:51 Það er ekki beint vorlegt hitakortið fyrir fimmtudaginn. veðurstofa íslands
Vikan verður fram undan verður svöl eftir hlýjan apríl að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í dag er fremur hæg austlæg átt með skúrum en þurrt og bjart norðan til. Hiti verður á bilinu þrjú til tíu stig, hlýjast á Vesturlandi en víða næturfrost norðaustan lands. Á morgun er því svo spáð að hann gangi í norðaustan átt með átta til þrettán metrum á sekúndu og mun kólna í veðri. „Um norðanvert landið þykknar upp með deginum og með dálítil él þar annað kvöld. Áfram skúrir sunnanlands á morgun en það styttir upp og rofar til á miðvikudag, eins og svo oft þegar að vindur er norðlægur. Svalt veður, hiti 0 til 5 stig að deginum og víða næturfrost, en ætli sólin nái ekki að hífa hitann að 10 stigum suðvestanlands. Útlit er fyrir að norðlæga áttin haldist og að veður breytist lítið fram yfir helgi. Apríl var hlýr mánuður á landinu, en þessi vika verður svöl,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu:Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og skúrir um sunnanvert landið en þurrt og bjart norðan til. Norðaustan 5-10 á morgun en 10-15 norðvestan til síðdegis. Skúrir sunnanlands og þykknar upp um norðanvert landið með deginum, dálítil él þar annað kvöld. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast á Vesturlandi og víða næturfrost inn til landsins.Á þriðjudag:Norðaustan 8-15 m/s, hvassast NV-til. Skýjað að mestu og stöku él norðanlands, en skúrir syðra. Hiti 1 til 8 stig að deginum, hlýjast á Vesturlandi.Á miðvikudag og fimmtudag:Norðan- og norðaustan átt, víða 5-10 m/s. Skýjað og dálítil él á norðanverðu landinu, en þurrt og bjart sunnan til á landinu. Hiti 0 til 7 stig, mildast á Suðurlandi og víða næturfrost.Á föstudag, laugardag og sunnudag:Útilit fyrir áframhaldandi norðlægar áttir með dálitlum éljum, en bjartviðri sunnan- og vestanlands, og áfram svalt veður.
Veður Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira