Kastaði nýfæddum hvolpum í poka í ruslið í Kaliforníu Samúel Karl Ólason skrifar 21. apríl 2019 19:20 Myndband sýnir að konan virtist fyrst ætla að setja hvolpana í endurvinnslugám en hætti við þegar hún leit ofan í hann. Skjáskot
Lögreglan í Coachella í Kaliforníu leitar nú konu sem náðist á myndband við það að kasta sjö nýfæddum hvolpum í ruslið. Nánar tiltekið setti hún pokana í plastpoka og kastaði þeim nærri ruslagámum við bílaverkstæði nú á fimmtudaginn. Starfsmenn dýraeftirlits Riverside sýslu, í samstarfi með lögreglunni og saksóknurum, undirbúa nú mál gegn konunni fyrir dýraníð. Vegfarandi rambaði á hvolpana við gáminn en talið er að þeir séu um þriggja daga gamlir. Ólíklegt þykir að þeir hefðu lifað af ef þeir hefðu ekki fundist svo fljótt vegna þess hve heitt er í Kaliforníu um þessar mundir. Dýraeftirlit Riverside sýslu hefur birt myndband úr öryggisvélum verkstæðisins með því markmiði að einhver geti borið kennsl á konuna. Myndbandið sýnir að konan virtist fyrst ætla að setja hvolpana í endurvinnslugám en hætti við þegar hún leit ofan í hann. Chris Meyer, frá dýraeftirlitinu, segir í tilkynningu að það sé óafsakanlegt að koma fram við dýr með þessum hætti. Sérstaklega með tilliti til þess að dýraeftirlitið og önnur skýli taka reglulega við hvolpum sem þessum.
Bandaríkin Dýr Mest lesið Fengu tæpar fimm og sex milljónir króna í tvöföldum launagreiðslum Innlent Finnst of langt gengið í glæpavæðingu í umfjöllun um Carbfix Innlent Viðbúin því að fylgjendum fækki í kjölfar TikTok-banns Innlent Undrast sinnuleysi forvera sinna og vill lagabreytingar Innlent Ungmenni nota tálbeituaðferðir til að ráðast á meinta níðinga Innlent Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að breikka faðminn og vera hlýrri Innlent Starfsmanni ÍSÍ dauðbrá þegar hún mætti til vinnu Innlent Starfsmaður frá Filippseyjum syngur og syngur á Selfossi Innlent Reyndi að stinga af á bíl og svo á hlaupum Innlent Meinað að heimsækja fjölskylduna því hann var skyndilega kominn á bannlista Innlent Fleiri fréttir Hæstaréttardómarar skotnir til bana í Tehran Samþykktu vopnahlé en framtíðin óljós Innsetningarathöfnin verður innandyra í fyrsta sinn í fjörutíu ár Hæstiréttur veitir TikTok banninu blessun sína Ríkisstjórnin fundar um vopnahlé Deilur á þingi gætu komið niður á áherslum Trumps Styrkur gróðurhúsalofttegunda aldrei aukist eins hratt Andstaða gegn banni við hjónaböndum systkinabarna Mikið sjónarspil eftir að Starship sprakk „Kallaðu mig Meistara, þá fæ ég það“ Imran Khan í fjórtán ára fangelsi Ræddu í 45 mínútur um Grænland og dönsk fyrirtæki Hindranir úr vegi og vopnahlé yfirvofandi Segir samkomulagið standast og vopnahléið hefjist á sunnudag Fyrrverandi forsætisráðherra Finna fer fram á nálgunarbann Her Súdan í sókn gegn RSF og hermenn sakaðir um ódæði Hótar hörðum viðbrögðum hafi Rússar tekið Ástrala af lífi Rak formann mikilvægrar nefndar að beiðni Trumps Betri aðstæður næstu daga: Rúmlega tólf þúsund byggingar hafa brunnið Ný eldflaug Bezos náði á sporbraut í fyrstu tilraun Deila um ákvæði um fangaskipti Ráðleggja blóðtöku fyrir íbúa Jersey Áhrifavaldur ákærður fyrir að eitra fyrir barni sínu fyrir athygli Forsætisráðherrann fyrirskipar rannsókn á umdeildri auglýsingu Biden varar við fáveldi í Bandaríkjunum Hamas og Ísrael komast að samkomulagi um vopnahlé Sakar Rússa um skipulagningu hryðjuverka Óttast áhrif orðræðu Trumps á fjárfesta Mál horfinna systra skekur Skotland Gerðu umfangsmikla árás á vesturhluta Úkraínu Sjá meira