Enginn Birkir er sigurganga Villa hélt áfram Anton Ingi Leifsson skrifar 10. apríl 2019 20:45 Kodija jafnar af vítapunktinum. vísir/getty
Birkir Bjarnason var ekki í leikmannahópi Aston Villa sem heldur sigurgöngunni áfram í ensku B-deildinni með 2-1 sigri gegn Rotherham á útivelli í kvöld. Það byrjaði ekki vel fyrir Villa því Tyrone Mings fékk tvö gul spjöld í fyrri hálfleik og var sendur í sturtu. Will Waulks kom svo Rotherham yfir á 36. mínútu úr víti. Önnur vítaspyrna var dæmd á þriðju mínútu síðari hálfleiks, nú fyrir Villa, og það var Jonathan Kodjia sem steig á punktinn og jafnaði. Þremur mínútum síðar var staðan orðinn 2-1 er Jack Grealish skoraði sigurmarkið. Eftir nokkuð brösugt gengi framan af er Villa nú komið í fimmta sæti deildarinnar. Þeir eru með 66 stig og eru fimm stigum fyrir ofan Middlesbrough sem er í sjöunda sætinu. Það var heldur enginn Jón Daði Böðvarsson í eldlínunni með Reading sem gerði 2-2 jafntefli við Norwich á útivelli en Norwich er á toppnum. Reading er í 20. sætinu, tveimur stigum frá fallsæti. Leeds er áfram í öðru sætinu eftir að Sheffield United tapaði stigum gegn Birmingham er liðin gerðu 1-1 jafntefli í kvöld. Leeds er með eins stigs forskot á Sheffield í öðru til þriðja sætinu.Úrslit kvöldsins: Birmingham - Sheffield United 1-1 Brentford - Ipswich 2-0 Hull - Wigan 2-1 Millwall - QPR 0-0 Norwich - Reading 2-2 Rotherham - Aston Villa 1-2
Fótbolti Mest lesið „Stjörnufólk er pirrað“ Körfubolti Mikill skellur fyrir Skagamenn sem leita á náðir KSÍ Íslenski boltinn Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ Körfubolti Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Enski boltinn Tætir í sig færslu Salah: „Liverpool FC ekki Salah FC“ Enski boltinn Tárvot sigurstund bræðranna frá Grindavík Körfubolti Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Handbolti Myndaveisla: Sigurhátíð Grindvíkinga í Síkinu Körfubolti Bournemouth - Manchester City | Ekkert nema sigur dugir City í baráttu um titilinn Enski boltinn Jota fær heiðurspláss í hóp Portúgala á HM Fótbolti Fleiri fréttir Chelsea - Tottenham | Geta bjargað sæti sínu í kvöld Southampton rekið úr umspilinu og fær stigarefsingu Bournemouth - Manchester City | Ekkert nema sigur dugir City í baráttu um titilinn Jason Daði fer frá Grimsby Ekki sáttur með hugarfar fyrirliðans Horfir með fjölskyldunni og verður mesti stuðningsmaður sögunnar Sjáðu sigurmark Havertz sem slapp við rauða spjaldið Tætir í sig færslu Salah: „Liverpool FC ekki Salah FC“ Dagskráin í dag: Tveir gífurlega mikilvægir leikir Arsenal einu skrefi frá Englandsmeistaratitli Guardiola hætti með Manchester City eftir tímabilið Viðurkenna mistök og markið hefði aldrei átt að standa Haaland verður víkingur í teiknimynd Salah eigingjarn og skuli hent út úr hópnum Sjáðu Bruno jafna metið og von West Ham dofna enn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Daninn í stuði og West Ham nálgast fall Jafntefli Brentford og tap Brighton gefa Sunderland séns Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United Alonso tekur við Chelsea Gerrard um yfirlýsingu Salah: „Talsverður áfellisdómur yfir stjóranum“ Guardiola: „Ég er fyndinn gaur“ Sjáðu markið hjá Semeyno og bikarlyftinguna The Athletic: Alonso samþykkir að taka við Chelsea Bomba frá Salah: „Liverpool þarf að endurheimta heví metal boltann“ Hælspyrna Semenyo tryggði City FA bikarinn Sjáðu mörkin sem gerðu vörn Liverpool sögulega slæma „Ég vildi að hann væri skoskur“ Villa í Meistaradeild Evrópu en Liverpool þarf að bíða Kalla eftir brottrekstri Southampton vegna njósnanna Sjá meira