Lífið

„Þetta finnst mér langbesta lagið í keppninni“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jóhannes hefur fundið sigurvegarann í keppninni í ár.
Jóhannes hefur fundið sigurvegarann í keppninni í ár.
Jóhannes Þór Skúlason er gríðarlega vel að sér í Eurovision-fræðum og hefur fylgst með keppninni hér heima og erlendis í mörg ár. Í dag starfar Jóhannes sem framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og var áður aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Jóhannes er fyrsti gestur Einkalífsins eftir hlé en í síðustu viku fór hann yfir fyrra undankvöldið í Söngvakeppninni þar sem Hera Björk og Hatari fóru áfram.

Nú er komið að seinni undankeppninni og þar fara tvö lög áfram og hugsanlega eitt wild-card lag.

Jóhannes gefur hverju lagi stig frá 1-12 eins og þekkist í Eurovision. Hér að neðan má sjá stigagjöf hans.

Jeijó, keyrum alla leið  

Lag: Barði Jóhannsson

Texti: Barði Jóhannson

Flytjendur: Elli Grill, Skaði og Glymur

Dómur Jóhannesar: 5 stig



Hvað ef ég get ekki elskað? / What If I Can’t Have Love?

Lag: Friðrik Ómar Hjörleifsson

Íslenskur texti: Friðrik Ómar Hjörleifsson

Enskur texti: Sveinbjörn I. Baldvinsson og Friðrik Ómar Hjörleifsson

Flytjandi: Friðrik Ómar

Dómur Jóhannesar: 6 stig 



Þú bætir mig / Make Me Whole

Lag: Stefán Þór Steindórsson og Richard Micallef

Íslenskur texti: Stefán Þór Steindórsson og Nikos Sofis

Enskur texti: Stefán Þór Steindórsson og Nikos Sofis

Flytjandi: Ívar Daníels

Dómur Jóhannesar: 7 stig (gæti farið áfram)



Betri án þín / Fighting For Love

Lag: Andri Þór Jónsson og Eyþór Úlfar Þórisson

Íslenskur texti: Andri Þór Jónsson, Eyþór Úlfar Þórisson og Tara Mobee

Enskur texti: Andri Þór Jónsson og Eyþór Úlfar Þórisson

Flytjandi: Tara Mobee

Dómur Jóhannesar: 12 stig (fer áfram og vinnur keppnina)



Helgi / Sunday Boy

Lag: Heiðrún Anna Björnsdóttir

Íslenskur texti: Sævar Sigurgeirsson og Heiðrún Anna Björnsdóttir

Enskur texti: Heiðrún Anna Björnsdóttir

Flytjandi: Heiðrún Anna Björnsdóttir

Dómur Jóhannesar: 7 til 8 stig (gæti farið áfram)


Tengdar fréttir

Reyndist vel að lenda á milli tannanna á fólki

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er 27 ára alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Áslaug er ungur þingmaður sem hefur náð mjög langt á stuttum tíma en hún er fjórði gestur Einkalífsins á Vísi.

Kristbjörg hefur fórnað miklu fyrir mig

Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði og leikmaður Cardiff í ensku úrvalsdeildinni gaf á dögunum út bókina Aron – Sagan mín. Þar fer hann ítarlega yfir ferilinn, uppvaxtarárin á Akureyri og lífið í heild sinni.

Pabbi var mín besta forvörn

Heiðar Logi Elíasson er einn þekktasti brimbrettakappi landsins. Hann starfar meðal annars sem fyrirsæta, er með sítt, ljóst og fallegt hár og vakti athygli lesenda Vísis á dögunum þegar hann var fastur í Málmey í fjóra daga án vatns og matar.

Árin án móður sinnar í Rússlandi voru lærdómsrík

Katrín Lea Elenudóttir var krýnd Miss Universe í ágúst en hún mun taka þátt í 67. Miss Universe keppninni í Bangkok í desember. Katrín er í fullum undirbúningi fyrir keppnina og er hún þriðji gestur Einkalífsins á Vísi.

„Hún er algjörlega stelpan fyrir mig“

Gunnar Nelson er besti bardagamaður Íslands og hefur náð gríðarlega langt í sínu sporti og þá sérstaklega í UFC. Hann er í 14. sæti á styrkleikalistanum hjá UFC og mætir Alex Oliveira í Toronto þann 8. desember.

Páll Óskar ætlar alfarið að sniðganga Eurovision

"Ég fer í Eurovision þegar það kemur flott lag og ég hef ekki fengið inn lag sem kýlir mig kaldan,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson sem er áttundi gestur Einkalífsins en í þáttunum er rætt við fólk sem skarar fram úr á sínu sviði.

„Það erfiðasta sem ég hef gert“

Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir fer á kostum í kvikmyndinni Lof mér að falla en þar leikur hún sprautufíkil sem hefur misst öll tök á lífi sínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.