Drykkjurútur slasaðist á girðingu Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. júní 2018 06:38 Það var hamagangur í Laugardal í nótt
Ölvaðir höfuðborgarbúar voru til margvíslegra vandræða í nótt. Tveir drukknir menn lentu til að mynda í brasi í Laugardal á öðrum tímanum í nótt. Þar hafði annar þeirra reynt að klifra yfir girðingu sem fór ekki betur en svo að hann slasaðist á fæti. Þegar lögreglumenn komu á vettvang brást slasaði maðurinn ókvæða við og er hann sagður hafa verið með „dólgshátt“ við lögreglu - án þess að það sé útskýrt nánar í dagbókarfærslu lögreglunnar. Hinn maðurinn er sagður hafa verið með álíka mikil drykkjulæti við lögreglumennina, sem ákváðu að handtaka báða mennina og flytja þá lögreglustöðina á Hverfisgötu. Eftir að hafa rætt við mennina tvo fengu þeir þó að halda til síns heima. Um svipað leyti var karlmaður handtekinn í Vesturbænum, en hann er einnig sagður hafa verið í annarlegu ástandi vegna vímuefnaneyslu. Lögreglan segir manninn hafa verið með mikinn hávaða og raskað svefnfrið Vesturbæinga. Hann var því handtekinn og fluttur í fangaklefa þar sem hann hefur mátt sofa úr sér vímuna. Þá komust fjölda margir ölvaðir ökumenn í kast við lögin í nótt, sem og þrír menn sem teknir voru með fíkniefni í Laugardal.
Lögreglumál Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands Sjá meira