Fíkniefnasalar rændu viðskiptavin sinn Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. maí 2018 06:25 Lögreglan aðstoðaði fíkniefnakaupanda í Breiðholti í gærkvöldi. Vísir/gva
Hann hafði ekki heppnina með sér, fíkniefnakaupandinn sem hugðist endurnýja birgðir sínar í gærkvöldi. Í skeyti lögreglunnar kemur fram að maðurinn hafði mælt sér mót við fíkniefnasala í Breiðholti á áttunda tímanum í gærkvöldi. Þegar hann kom til fundarins kárnaði þó gamanið fljótt þegar sölumennirnir rifu upp hníf. Þeir eru sagðir hafa ógnað manninum og skipað honum að láta sig hafa alla peningana sem maðurinn hafði á sér. Því næst óku þeir burt. Ekki fylgir sögunni hver eftirleikurinn verður, hvort málið sé til rannsóknar, hvort vitað sé hverjir fíkniefnasalarnir eru eða hversu samvinnuþýður kaupandinn var. Það var svo á níunda tímanum í gærkvöldi sem lögreglan fékk tilkynningu um konu sem var ofurölvi á Laugavegi. Þegar lögreglumenn höfðu afskipti af konunni brást hún ókvæða við og er hún sögð hafa slegist við lögreglumennina. Konan var því handtekin á staðnum og flutt í fangaklefa á Hverfisgötu, þar sem hún hefur mátt sofa úr sér vímuna.
Lögreglumál Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira