Skoðun

Kaupfélag Þingeyinga

Jón Sigurðsson skrifar
Öllum verkum mannanna er markaður tími. Miklu varðar að menn finni mörkin. Sorglegt er að sjá veikan skugga þess sem ljómaði forðum. Aðstæður og þarfir breytast og veita þarf viðbragð og svar við hæfi hvers tíma.

Nú er ákveðið að slíta Kaupfélagi Þingeyinga sem stofnað var 20. febrúar 1882. Félagið hefur ekki haft rekstur síðustu árin, en félagaskrá tengist viðskiptakorti KEA og Samkaupa. Það verður áfram. Kaupfélagið var alla tíð allra hagur í héraði, stoð og stytta mannfélagsins. Kaupfélag Þingeyinga var stolt héraðsins. Og nú kveður það með því að gera að fullu upp við alla – með þingeyskum sóma.

Samvinnufélögin voru hluti þjóðarvakningar og þjóðfrelsisbaráttu. Þau voru innbyrðis ólík nokkuð og mótuð af hverju nærsamfélagi fyrir sig. Sunnan og suðvestan voru þau sérgreind en fjölgreina-rekstur annars staðar í landinu. Víðast voru þau opnir þróunar- og nýsköpunarsjóðir byggðanna. Þau urðu sterkustu stoðir byggðanna og framfaranna áratugum saman.

Tekið var á móti kaupfélögunum með hörðum hnefum, en fólkið stóð þétt saman að þeim. Kaupfélögin ýttu undir sérhæfingu og viðskiptamótun landbúnaðarins, nýja atvinnuþróun og fjölgun starfa í þéttbýli í öllum landshlutum. Þau opnuðu og mótuðu fyrsta markaðarumhverfi víðs vegar um landið og stuðluðu að því að gamla frumvinnslu- og sjálfsnægtasamfélagið hvarf. Og samvinnuhreyfingin var áratugum saman eina eiginlega samkeppnisaflið í íslensku atvinnu- og viðskiptalífi.

Þá er ótalið að félögin voru lifandi félagsmálaskóli fyrir almenning. Fjármagni þeirra var dreift til hvers konar félagslífs, íþrótta- og uppeldismála, líknarmála, samgöngubóta, atvinnusköpunar, menningar- og listalífs og fjölbreytilegustu velferðar-, hagsmuna- og áhugamála. Almenningur víðs vegar um landið hefur orðið kaupfélaganna var á síðustu árum – í því að þau eru horfin.

Næg verkefni fyrir ný samvinnufélög

Kaupfélögin viku fyrir þróun samfélagsins, viðskipta- og atvinnulífsins. Fjármálaþróun, verktækni og samgöngubætur sameinuðu gömlu atvinnu- og þjónustusvæðin sem félögin tilheyrðu. Samfélagið breyttist og áreiðanlega drógust félögin aftur úr síðasta skeiðið.

En kaupfélögin viku ekki vegna þess að þau voru samvinnufélög. Óarðsækinn félagsgeiri er í fullu gildi og styrk víða um lönd. Eftir sem áður eru næg verkefni hvarvetna fyrir ný samvinnufélög, nýja félagsorku í nýju samfélagi. Samvinnufélögin hafa sterk sérkenni. Þau eru lýðræði í atvinnulífi, sameiginlegt átak fyrir félagslega hagsmuni og markmið. Samkvæmt sannvirðisreglu samvinnufélaga njóta félagsmenn arðsins sameiginlega og hver eftir viðskiptaþátttöku sinni. Eðlilega verður hlé í samvinnustarfi meðan menn átta sig á breyttum aðstæðum og viðhorfum. Þarfir almennings skópu samvinnufélögin og eins verður í framtíðinni.

Þingeyingar hafa rétt fyrir sér í því að skynsamlegast er að skapa og móta ný áhöld við hæfi tímans og framtíðarinnar. Kaupfélagi Þingeyinga er þökkuð forysta og samfylgd. Nú gera Þingeyingar hreint fyrir dyrum. Sá er háttur þeirra. Þeir eru sjálfum sér líkir í röskleik og myndarskap. Síðan finna þeir samvinnuanda, metnaði og krafti sínum nýjar leiðir.

 

Höfundur er fyrrverandi skólastjóri.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×