Þetta segir Einar Andri Einarsson, þjálfari toppliðs Aftureldingar í Olís-deild karla, við Vísi um fyrsta leik strákanna okkar í handboltalandsliðinu í undankeppni EM 2018 sem fram fór í gær. Þar vann Ísland nauman sigur á Tékklandi, 25-24.
Ísland var 12-10 yfir í hálfleik en missti svo Tékkana fram úr sér í seinni hálfleiknum. Jafnt var nánast á öllum tölum undir lokin en Aron Pálmarsson gekk frá leiknum með sigurmarkinu og þá fiskaði hann ruðning í síðustu sókn gestanna.
„Það eru allir sammála um að spilamennskan getur verið betri en varnarleikurinn var þéttari en undanfarin og virðist á réttri leið,“ segir Einar Andri. „Markvarslan var samt ekki nógu góð og ég er viss um að Börgvin er sammála mér í því.“
„Það var líka lítið af hraðaupphlaupum sem stafar meðal annars af markvörslunni en þar setti líka strik í reikninginn að Rúnari Kárasyni var skipt út af í vörninni og Aron Pálmarsson spilaði hægra megin í vörninni fyrir hann. Menn voru því ekki að spila fram boltanum í eðlilegum stöðum þegar við fengum tækifæri til að sækja hratt. Ég man ekki eftir að hafa séð þetta í langan tíma hjá landsliðinu,“ segir Einar Andri.
Markvarslan datt aðeins niður í seinni hálfleik, eins og sjá má hér. #handbolti #isltek pic.twitter.com/tPO8K9Qscb
— HBStatz (@HBSstatz) November 2, 2016

Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk í tíu skotum og Guðjón Valur Sigurðsson sex mörk í átta skotum þar af var hann tveir af þremur í vítum og brenndi af mikilvægu vítakasti á lokamínútunum.
Alls komu því tíu mörk í 18 skotum af vinstri vængnum en kannski í fyrsta sinn í langan tíma var hægri vængurinn virkilega sterkur. Þar skoraði Rúnar Kárason fimm mörk í ellefu skotum og Arnór Þór Gunnarsson fimm mörk í sjö skotum, þar af nokkur mjög mikilvæg þegar mest á reyndi undir lokin.
„Guðjón Valur og Aron hafa oft gert meira. Við setjum bara svo svakalegar kröfur á þá, en það er gott að vinna leikinn án þess að þeir eigi einhvern stórleik,“ segir Einar Andri sem fagnar framlagi örvhentu mannanna.
„Það er langt síðan við unnum leikinn á hægri vængnum og það var gaman að sjá. Rúnar var virkilega ákveðinn og og hélt alltaf áfram. Arnór tók líka meiri ábyrgð undir lokin og virðist vera að færa sinn leik upp í næsta þrep.“
Í heildina var Einar samt ekkert alltof ánægður með sóknarleikinn: „Það vantaði miklu meira flot á boltann og að láta hann vinna betur fyrir liðið. Við vorum stundir of fljótir að slútta í staðinn fyrir að hreyfa tékknesku vörnina áður en við fórum í að gerðir,“ segir hann.
Skotdreifing úr stöðum í leiknum. Ísland greinilega að opna hornin vel í dag, með 67% nýtingu. #handbolti #isltek pic.twitter.com/ev315AmpsY
— HBStatz (@HBSstatz) November 2, 2016

Aron Pálmarsson hóf leikinn sem leikstjórnandi en hann er búinn að spila þá stöðu í atvinnumennskunni undanfarin ár og er einn af þremur bestu leikstjórnendum heims. Með landsliðinu hefur hann spilað nær eingöngu sem skytta en nú eru nýir tímar eftir að Snorri Steinn Guðjónsson lagði landsliðsskóna á hilluna.
„Það er fínt að láta Aron spila bæði sem leikstjórnanda og skyttu. Þannig koma mismunandi ógnir í sóknarleikinn en okkur skortir meira jafnvægi í sóknina þegar hann spilar á miðjunni. Það er kannski eðlilegt því Snorri Steinn er búinn að spila 70 prósent leiktímans undanfarin áratug á miðjunni og Arnór Atlason hin 30 prósentin,“ segir Einar Andri.
„Liðinu vantar meira jafnvægi þegar Ólafur Guðmundsson er vinstra megin og Aron á miðjunni. Ég vil líka sjá meira frá Óla. Hann skortir enn þá sjálfstraust með landsliðinu. Þetta er frábær leikmaður sem gerir mikið fyrir okkur því hann spilar þristinn í vörninni. Það er alveg nýtt að vera með svona mann í miðjublokkinni sem þarf ekki að skipta út af. Hann á helling inni en ég vil sjá hann grimmari.“
Ef Ólafi gengur betur að fóta sem sem aðalskytta landsliðsins sér Einar Andri framtíð Arons Pálmarssonar sem leikstjórnanda hjá landsliðinu.
„Það eru náttúrlega allir skrefi á eftir Aroni þannig sá sem spilar skyttuna þegar hann er ekki þar verður aldrei jafnöflugur. Aroni líður vel í skyttunni en til framtíðar er sterkast að hafa hann á miðjunni þegar Óli og fleiri koma inn og geta tekið af skarið. Með Aron á miðjunni og góða skyttu er svo svakaleg skotógn í þessu liði,“ segir Einar Andri.
Attacker of the Match: A.Pálmarsson (8.05) Gls: 4/10 (40%) Ast: 5 Get7m: 0 TO: 2 #handball #handbolti #ICECZE
— HBStatz (@HBSstatz) November 2, 2016
Defender of the Match: Ó.Guðmundsson (8.16) L.Stop: 5 Stl:1 Blk:2 Reb:2 #handball #handbolti #ICECZE
— HBStatz (@HBSstatz) November 2, 2016

Önnur stór breyting í áttina að því að fækka skiptingum og jafnvel hætta með þær á stórum kafla hvers leiks var að kalla Arnar Frey Arnarsson, tvítugan línumann Svíþjóðarmeistara Kristianstad, í landsliðið.
Arnar Freyr kom sterkur inn af bekknum í gær og fiskaði víti í fyrstu sókn. Hann spilar bæði vörn og sókn hjá Kristianstad og er búinn að skora tíu mörk í fjórum leikjum í Meistaradeildinni gegn fjórum af átta bestu liðum heims.
„Mér fannst Arnar Freyr flottur. Hann kom tiltölulega snemma inn á þegar við vorum einum færri og sótti vítakast strax. Þetta var frábær byrjun á landsliðsferli,“ segir Einar Andri sem er hrifinn af umhverfinu sem Arnar Freyr er í hjá liði sínu Kristianstad.
„Hann spilar vörn og sókn fyrir þjálfara sem er mjög varnarþenkjandi þannig ef hann heldur áfram að bæta sig gætum við á næsta ári eða svo farið að spila án þess að skipta inn á milli varnar og sóknar sem yrði mikill styrkur og eitthvað sem þjálfarateymið væri mjög ánægð með.“
Þrátt fyrir langt því frá fullkominn leik er Einar Andri bjartsýnn á næstu mánuði landsliðsins og sér strákana okkar koma sér nokkuð þægilega á EM 2018 í Króatíu.
„Það er alveg full ástæða til bjartsýni. Þessi sigur gefur öllum sjálfstraust; bæði leikmönnum og þjálfurum. Við erum með frábært þjálfarateymi og leikmenn. Menn sjá alveg hvað er að og fara núna í að laga það. Ég er viss um að við vinnum Úkraínu og siglum þessum riðli svo heim,“ segir Einar Andri Einarsson.
Final: Iceland Gls: 25 (49%) Ast: 13 TO: 6 - Czech Republic Gls: 24 (59%) Ast: 6 TO: 16 #handball #handbolti #ICECZE
— HBStatz (@HBSstatz) November 2, 2016
Final: Iceland Saves: 9 (27%) L.Stop: 10 Stl: 7 Blk: 5 - Czech Rep Saves: 18 (42%) L.Stop: 15 Stl: 4 Blk: 3 #handball #handbolti #ICECZE
— HBStatz (@HBSstatz) November 2, 2016