Fréttastofa hefur ritgerðina undir höndum og af lestri hennar að dæma virðist stór hluti ritverksins byggja á meistararitgerð Magnúsar Hauks Ásgeirssonar sem skilað var inn til viðskiptafræðideildar í júní í fyrra. Leiðbeinandi Magnúsar við skrifin var Dr. Þórhallur Örn Guðlaugsson dósent, en hann var einnig leiðbeinandi hins nýútskrifaða viðskiptafræðinema.
Sjá einnig: Viðskiptafræðideild rannsakar tvö mál
Ritgerð Magnúsar, sem aðgengileg er á Skemmu, er rannsókn á markaðsinngöngu fyrir ferðaþjónustuaðila á Suður-Grænlandi. Efnistök hennar eru um margt heimfæranleg á rannsóknarefni viðskiptafræðinemans sem fól í sér markaðsgreiningu á Suðurlandi.

Af lestri ritgerðar hins nýútskrifaða að dæma verður ekki um villst að hann hefur ekki einungis sótt innblástur í skrif Magnúsar heldur beinlínis heilu kaflana – jafnvel orðrétt.
Þess má gæta strax í öðrum kafla ritgerðarinnar en glefsur úr kaflanum má sjá hér til hliðar. Brot úr ritgerð viðskiptafræðinemans er hér lagt ofan á kafla úr ritgerð Magnúsar og ljóst er að meistararitgerðin hefur haft töluverð áhrif á skrif viðskiptafræðinemans.
Síðar í sama kafla notfærir viðskiptafræðineminn sér mynd sem einnig má finna í ritgerð Magnúsar, Þjónustuþríhyrning með áhrifum tækni. Ekki náðist í Magnús Hauk við gerð þessarar fréttar en allar líkur benda til þess að Magnús hafi sjálfur gert myndina enda virðist hana hvergi annars staðar að finna, hvorki í öðrum fræðiskrifum né á netinu.

Þá segir hinn nýútskrifaði viðskiptafræðingur að ritgerðin byggi á óstöðluðum viðtölum en þau eru í raun samtöl, ekki með fyrirfram ákveðnum spurningum. Í viðauka ritgerðar hans lætur hann þó fylgja með staðlaðan spurningalista sem hann á að hafa lagt fyrir viðmælendur sína.
Fréttablaðið greindi frá því á laugardag að viðskiptafræðineminn hefði hins vegar alls ekki rætt við nafngreinda viðmælendur í ritgerðinni heldur falsað þau. Þettta staðfesta Friðrik Pálsson hótelstjóri, Henk Hoogland, eigandi gistiheimilis, og þriðji viðmælandi sem kaus að koma ekki fram undir nafni. Allir viðmælendurnir hafa staðfest að höfundur ritgerðarinnar hafi aldrei rætt við þá.
Spurt um afþreyingu á Akureyri
Þrettán spurningar eru á hinum staðlaða lista sem finna má í viðhengi ritgerðarinnar og viðskiptafræðineminn segist hafa lagt fyrir. Listann má sjá hér til hliðar en allt bendir til þess að þær hafi verið fengnar að láni úr ritgerð Elfars Halldórssonar frá árinu 2011. Ritgerð Elfars laut að byggingu nýs hótels á Akureyri.

Sú áttunda spyr um aðkomu „aðila úr bænum“ en ekki er tilgreint hvaða bæ hér er um að ræða. Þó verður að gera ráð fyrir því að hér sé verið að vísa til Akureyrar því næsti liður spurningarinnar vísar til ráðstefnuhússins Hofs sem staðsett er í bænum.
Níunda spurning lítur að afþreyingu þar sem þarf að geyma búnað fyrir ferðamenn. Sérstakt verður að teljast að ferðaþjónustuaðilar á Suðurlandi séu spurðir sérstaklega um skíðabúnað því ekkert skíðasvæði er á Suðurlandi – ef frá er taldir Hveradalir sem eru í órafjarlægð frá starfsemi viðmælenda viðskiptafræðinemans.
Samanburð á listunum má sjá hér að neðan.

Þórhallur Örn Guðlaugsson, dósent og leiðbeinandi í verkefninu, sagðist ekki vilja tjá sig um mál einstakra nemenda í samtali við Vísi í síðustu viku.
„Nemendur bera ábyrgð á sínum verkum fyrst og fremst,“ segir Þórhallur, aðspurður um ábyrgð leiðbeinenda. Hann bætti við að svona mál færu sína leið og að skólinn tæki málið mjög alvarlega. Þegar rætt var við Þórhall hafði ekki uppgötvast að hann hefði verið leiðbeinandi að meistararitgerðinni þaðan sem ýmislegt virðist hafa verið fengið að láni.
Nemandinn fékk 8 í einkunn fyrir ritgerðina og er útskrifaður viðskiptafræðingur í dag.
„Ég er búinn að gera upp hug minn og ætla ekki að tjá mig um þetta mál,“ sagði viðskiptafræðingurinn nýútskrifaði þegar fréttastofa náði af honum tali í morgun. Hann fékk átta í einkunn fyrir ritgerðina sem nú er til skoðunar hjá Háskóla Íslands.
Ekki náðist í Þórhall Örn dósent eða Magnús Hauk við vinnslu þessarar fréttar.