Kristinn Torfa mætir Dana og Breta Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. janúar 2014 08:00 Gariner, Jensen og Kristinn. Mynd/Frjálsíþróttasamband Íslands
FH-ingurinn Kristinn Torfason fær væna samkeppni utan úr heimi í langstökkskeppni Reykjavik International Games í Laugardalshöll á sunnudaginn. Daninn Morten Jensen hefur boðað komu sína á leikana. Enginn Dani hefur stokkið lengra en Jensen en landsmet hans frá árinu 2005 er 8,25 metrar. Hann fékk brons á EM innanhúss árið 2011 þegar hann stökk 7,64 metra.Danier Gariner frá Bretlandi er efnilegur stökkvari sem hefur verið að bæta sig undanfarin ár. Hann á best 7,58 metra frá því í fyrra en hann er einnig öflugur hlaupari líkt og Kristinn. Þá ku hann vera með svarta beltið í júdó og bæði öflugur sundkappi og knattspyrnumaður. Kristinn hefur staðið uppi sem sigurvegari á leikunum undanfarin tvö ár. Hans besti árangur innanhúss er 7,77 metrar frá árinu 2011. Hann stökk lengst 7,63 metra í fyrra. Íslandsmetið innanhúss sem utanhúss er í eigu Jóns Arnars Magnússonar. 8,00 metrar er met Jóns Arnars utanhúss en 7,82 metrar innandyra.Keppni í langstökki hefst á sunnudaginn klukkan 13.15 í frjálsíþróttasal Laugardalshallar.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Fótbolti Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga Fótbolti Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Fótbolti Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Fleiri fréttir Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ósigraður Kolbeinn kominn með næsta andstæðing Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Sjá meira