Sannleikurinn: Mesti óþverri ársins Andri Þór Sturluson skrifar 28. nóvember 2013 17:08 Helgi Seljan og Jóhannes Kr úr Kastljósinu eru sannfærandi persónur í myndinni.
Kvikmyndin Fifth Estate, eða Fíflið í Efstaleiti 1, sem fjallar um blóðuga niðurskurðinn hjá Ríkisútvarpinu er að mati Páls Magnússonar, útvarpstjóra, mesti óþverri ársins. Þetta tjáði Páll starfsfólki sínu á fámennum starfsmannafundi í dag sem hefði getað orðið fjölmennur en það er búið að reka alla. Þrátt fyrir ágætis leik Benedicts Cumberbatch sem túlkar Helga Seljan, hápólitískt viðfangsefni og hinn verðlaunaða leikstjóra Bill Condon við stjórnvölinn gekk myndin ekki upp og að sögn útvarpstjóra ættu menn að skammast sín.„Good evening, welcome to Kastljós“ - Benedict í hlutverki blaðamannsins knáa.Kvikmyndin, þar sem reynt er að segja sögu RÚV frá stofnun til dagsins í dag, hefur hlotið skelfilega gagnrýni og dræmar viðtökur áhorfenda auk þess sem Helgi Seljan sjálfur hefur gagnrýnt myndina og sagt hana „barnalega“. Hún hefur aðeins skilað 60 þúsund krónum í tekjur en kostaði 28 milljónir í framleiðslu. Stór nöfn hjá RÚV eru áberandi í myndinni en athygli vekur að Egill Helgason, sem lék sjálfan sig, hefur verið klipptur út úr myndinni. Það hefur nú tekið sinn tíma.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur ríkisrekna Facebook-síðu
Harmageddon Mest lesið Ragnar Sólberg svitnaði og skalf Harmageddon Er píkan óhrein? Harmageddon "Píkan mín er svo ljót" Harmageddon Högni sveipaður dulúð og þokka Harmageddon Þættir um sögu rokksins á X977 Harmageddon David Beckham samþykkir að koma fram í nýju tónlistarmyndbandi Harmageddon "Var þunnur í fimm ár“ Harmageddon BDSM - hjartnæm reynslusaga Harmageddon Rokkprófið - Jónsi vs. Ólöf Jara Harmageddon Davíð Oddsson tjáir sig um bankahrunið Harmageddon