Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: KR - FH 3-1 | KR á toppinn Henry Birgir Gunnarsson skrifar 25. ágúst 2013 12:59 Mynd / Daníel Rúnarsson
KR er komið á topp Pepsi-deildar karla og er í vænlegri stöðu eftir sterkan sigur á FH í stórskemmtilegum leik í kvöld. KR á stig á FH og hefur leikið tveimur leikjum færra. Fyrri hálfleikur var algjörlega stórkostleg skemmtun. Strax á 11. mínútu fékk FH vítaspyrnu eftir klaufalegt brot Grétars Sigfinns. Davíð Þór tók vítið gegn Rúnari Alex sem var að spila sinn fyrsta leik í Pepsi-deildinni. Rúnar Alex gerði sér lítið fyrir og varði vítið glæsilega út við stöng. FH-ingar voru ívið beittari framan af en KR-ingar voru alltaf hættulegir í sínum sóknaraðgerðum. Bæði lið fengu góð færi sem ekki gekk að nýta. KR fékk tvö algjör dauðafæri rétt fyrir hlé en Róbert Örn sá við þeim með frábærum markvörslum og því var markalaust í leikhléi. Algjörlega ótrúlegt miðað við færin. Sama fjörið var upp á teningnum í síðari hálfleik og FH komst í dauðafæri strax í upphafi. Það færi var ekki nýtt frekar en önnur. Fyrsta mark leiksins var skrautlegt. Varamaðurinn Freyr Bjarnason var þá nýkominn af bekknum þangað sem honum var skipað þar sem hann var í innanundirbuxum í röngum lit. Freyr hljóp inn í teiginn og varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið mark. KR komst í 2-0 skömmu síðar þegar Guðmundur Reynir hamraði boltann í netið eftir laglega sókn heimamanna. KR í verulega huggulegum málum. Níu mínútum fyrir leikslok fékk FH líflínu þegar Atli Viðar skoraði mark með gullfallegu skoti í teignum. Sú líflína var skorin niður er Óskar Örn innsiglaði sigur KR með föstu skoti í teignum eftir að KR hafði fengið óbeina aukaspyrnu. KR á toppnum og á tvo leiki inni. Vinni liðið þá leiki er það komið með sjö stiga forskot á FH. KR er því í mjög góðum málum. Það er þeirra að klúðra mótinu er því sem komið er. Hinn 18 ára gamli Rúnar Alex spilaði sinn fyrsta leik fyrir KR í kvöld. Ekki auðvelt fyrir hann en sá sýndi hvað í honum býr. Varði víti frábærlega og mörg skot mjög vel. Spilaði eins og margreyndur leikmaður í gríðarlega erfiðum leik. Ótrúleg frumraun hjá þessum stórefnilega leikmanni. Baldur Sigurðsson er maður stóru leikjanna og hann var í toppformi. Átti frábæran leik. FH-ingar fengu færin til þess að vinna leikinn en nýttu þau ekki. Þeir geta því engum nema sjálfum sér um kennt. Þeir spiluðu oft á köflum flottan fótbolta en það lá ekki fyrir þeim að vinna þennan leik. Báðum liðum verður að hrósa fyrir frábæra skemmtun. Stórskemmtilegur leikur tveggja bestu liða landsins í dag. Rúnar Alex vissi hvar Davíð myndi skjóta"Mér leið bara eins og ég ætti heima hérna. Ég vil fá að spila með þeim bestu. Það voru allir búnir að tala við mig og róa mig niður fyrir leikinn," sagði hetja KR-inga, Rúnar Alex Rúnarsson, sem sló í gegn í sínum fyrsta Pepsi-deildarleik. "Að sjálfsögðu var ég svolítið stressaður en það vandist hratt. Sérstaklega eftir að ég varði vítið. Ég held að öll frammistaða mín í leiknum byggist á því að ég varði vítið." Rúnar Alex þekkir Davíð Þór, sem tók vítið fyrir FH, vel og það reyndist honum happadrjúgt í dag. "Hann skaut alltaf í þetta horn þegar við vorum að leika okkur í garðinum hjá Arnari bróður hans í Belgíu. Ég tók sénsinn og hann setti boltann þarna." Rúnar Alex viðurkenndi að frammistaðan væri framar vonum hjá sér. "Ég er bara 18 ára gamall og því alveg rólegur. Auðvitað vil ég fá að spila en ég átta mig á því hversu erfitt er að koma í liðið og ég bíð því rólegur." Heimir: Þetta er búið "Það eru vonbrigði að fá ekkert úr leiknum því mér fannst við spila á köflum mjög vel. Sköpuðum góð færi og áttum möguleika að jafna," sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, eftir leikinn. "Við erum búnir að fá þrjú víti og klúðra þeim öllum. Það er dýrkeypt. Það hefði verið sterkt að komast yfir og geta hangið á okkar leikskipulagi." Það var Davíð Þór Viðarsson sem klúðraði vítinu og Heimir var ekki sáttur við hann. "Björn Daníel átti að taka vítið en Davíð vildi taka það. Þegar þú tekur fram fyrir hendurnar á mönnum þá er betra að þú skorir," sagði Heimir ákveðinn. Heimir segir að möguleikar síns liðs á að verða Íslandsmeistarar séu í raun úr sögunni eftir þennan leik. "Þetta verður erfitt enda komið úr okkar höndum. Ég á erfitt með að sjá KR misstíga sig og tapa tveim til þrem leikjum af síðustu sjö. Þeir þurfa að tapa helmingnum af sínum leikjum og ég sé það ekki gerast," sagði Heimir en er hann sem sagt að segja að þetta sé búið? "Já, ég er að segja það." Heimir var ekki par ánægður með Þorvald Árnason dómara. "Í þriðja markinu þá sjá allir að þar var bara frábær varnarleikur hjá Brynjari. Hvernig dómarinn fékk það út að þetta væri óbein aukaspyrna skil ég ekki. Það rýrði möguleika okkar á að jafna leikinn. "Áðu en við fáum á okkur fyrsta markið þá segir hann Frey Bjarnasyni að hlaupa af velli þar sem hann sé í innanundirbuxum sem séu í röngum lit. Ekkert mál. Þóróddur (varadómari) kom inn í klefa fyrir leik og sagði okkur frá þessu. Við tökum það á okkur að hafa ekki haft þetta rétt. "En í fótbolta og dómgæslu er oft best að nota skynsemina. Þá gerir hann þetta ekki þegar þeir eiga innkast á okkar vallarhelmingi. Þú bíður þar til maður meiðist eða ekkert sé að gerast. Það tók enginn eftir þessu á vellinum og ég gat ekki séð að þetta væri svona mikið mál að það hafi þurft að senda manninn strax af velli. Dómgæslan var ekki góð en við töpuðum ekki út af henni. Hún aftur á móti rýrði möguleika okkar í leiknum." Rúnar: Heimir er Mourinho okkar ÍslendingaRúnar Kristinsson, þjálfari KR, var brosmildur eftir leikinn og það skiljanlega. "Staða okkar er góð eftir þennan sigur en það er mikið eftir af þessu móti. Við megum hvergi slaka á og mitt helsta verkefni er að fá menn niður á jörðina fyrir leikinn gegn Val á fimmtudag," sagði Rúnar en hann gaf lítið fyrir þau ummæli Heimis Guðjónssonar að mótinu væri lokið. "Heimir er Mourinho okkar Íslendinga. Hann er mjög góður í að tala önnur lið upp. Ég hef alltaf gaman af því." Rúnar Alex markvörður er sonur Rúnars þjálfara. Hvernig var að vera þjálfari og faðir í dag? "Mér fannst ég ráða ágætlega við þetta en ég vissi ekki alveg hvernig þetta yrði. Ég er oft mjög stressaður þegar ég er að horfa á hann í 2. flokki og hef ekki stjórn á honum. Ég var nokkuð rólegur í dag því ég veit hversu góður hann er. Ég held að hann sé einn besti markvörður sem hefur komið upp hér í langan tíma. Það er mín skoðun sem faðir en ég er kannski svolítið hlutdrægur," sagði Rúnar en hann viðurkenndi að vítið hefði breytt miklu. "Fyrir strákinn þá gaf það honum mikið sjálfstraust að verja vítið. Ég veit líka að strákarnir í liðinu eru ánægðir með hann og treysta honum eins og mátti sjá í leiknum í dag. Hann hefur varið mikið af vítumí gegnum tíðina og það voru því helmingslíkur á að hann myndi verja vítið í dag." Rúnar sagði að þrátt fyrir frammistöðu sonarins þá myndi Hannes Þór Halldórsson koma aftur inn í liðið í næsta leik. Hannes hefði ekki verið búinn að spila sig úr liðinu.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Enski boltinn Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Enski boltinn Litlu munaði að illa færi er Bill Clinton birtist óvænt Sport Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Enski boltinn Sex vítaspyrnur fóru forgörðum í taugatrekkjandi undanúrslitaleik Fótbolti Lærisveinar Freys komnir í úrslitaleik norska bikarsins Fótbolti Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti Trump vill fá Ítalíu á HM í stað Írans Fótbolti Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Enski boltinn „Strætóskýlið var gjörsamlega frábært í dag“ Sport Fleiri fréttir Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Markaskorari sem svífur framhjá leikmönnum HK, Grótta, Fylkir og Þróttur á leið í Bestu deildirnar? Valur keypti Samúel Kára fyrir mikið fé Besta-spá kvenna 2026: Baráttan á botninum Valsmenn opna veskið til að landa Samúel Kára Valsmönnum fjölgar í Mosfellsbæ Breiðabliki spáð titli en Val neðri helmingi Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Svona var fundurinn fyrir Bestu deild kvenna KR-ingar komast ekki til Eyja: „Þetta er leiðindamál“ Spilað inni á Akranesi á miðvikudaginn Unglingalandsliðsfyrirliði frá Blikum í Val „Strákur sem Vesturbærinn hefur beðið lengi eftir“ Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Uppgjörið: Breiðablik-ÍA 1-0 | Blikar stóðust stórsókn Skagamanna Uppgjörið: Fram-Keflavík 3-1: Vuk Oskar kom, sá og sigraði í sigri Framara Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi áfram á skotskónum og Víkingar unnu fyrir norðan „Klárlega léttir þetta pressu“ Sjá meira
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti
Grindavík - Valur 82-81 | Deildarmeistararnir yfir þegar það skipti máli í leik tveggja hálfleika Körfubolti