Sport

„Strætóskýlið var gjör­sam­lega frá­bært í dag“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Valur - Fram Olís deild kvenna Vor 2026
Valur - Fram Olís deild kvenna Vor 2026 Pawel Cieslikiewicz

Valur sópaði Fram í sumarfrí með 31-27 sigri á Hlíðarenda í kvöld. Valur vann einvígið 3-0 og mætir ÍBV eða Haukum í úrslitaeinvíginu.

„Þegar þú ert kominn í undanúrslit þá viltu auðvitað vinna sem flesta leiki,“ sagði Anton Rúnarsson, þjálfari Vals, eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum.

„Ég er mjög stoltur af stelpunum og það er búið að ganga mikið á. Þær gerðu þetta mjög vel, þannig ég er auðvitað ánægður með 3-0.“

Valur róteraði vel á liði sínu í dag og fengu ungir leikmenn liðsins mikilvægar mínútur.

„Mér fannst stelpurnar vera með mikinn fókus og gerðu þetta vel. Við fengum framlag frá mörgum leikmönnum og margar yngri sem fengu dýrmætar mínútur. Eldri leikmenn stóðu líka upp í dag og þetta var heilsteyptur og flottur leikur. Auðvitað eru alltaf einhver atriði hér og þar en þær gerðu þetta samt sem áður mjög vel og sannfærandi.“

Sjálfsöryggi Valsmanna var það mikið að stuðningsmenn sóttu kústana í hálfleik og voru vel undirbúin því að sópa Fram í sumarfrí.

„Ég verð bara að segja það að strætóskýlið var gjörsamlega frábært í dag. Það er mjög gaman að fá svona góðan stuðning, við erum búin að vera fá það í síðustu leikjum. Ég veit að þær munu fjölmenna á úrslitaeinvígið, þetta skiptir okkur máli, þetta skiptir stelpurnar máli og það er gaman að spila fyrir okkar fólk. Baldur Bongó og Krissi eiga hrós skilið líka, þetta er alvöru stemning.“

Kústarnir ennþá í geymslunni þarna.Pawel Cieslikiewicz



Fleiri fréttir

Sjá meira


×