

Forsetinn minn
En sá veldur sem á heldur og Ólafur Ragnar Grímsson beitir þessari skilgreiningu og skilgreinir um leið einn og sjálfur hvert halda skuli. Hann vill, eins og ég margoft benti á í kosningastarfinu, taka þátt í umræðu um „stóru málin" með eindregnar skoðanir, líka með og á móti, ella veit hann ekki að eigin sögn til hvers forsetinn er nýtur. Með þessum hætti blandar hann sér beint sem eins manns stjórnmálaflokkur í umræður í samfélaginu jafnt og á Alþingi enda þótt hann hafi sagt í fyrri sjónvarpsumræðunum að hlutverk forsetans fælist ekki í að blanda sér í umræður á þingi. Sem sagt: Með eða á móti krónunni, með eða á móti aðild að ESB, með eða móti endurskoðun stjórnarskrár með þessu eða hinu innihaldinu eða á einum eða öðrum tímapunkti, og með eða á móti einhverjum aðgerðum til að auka traust Alþingis. Fleira má flokka sem „stór mál".
Ýmsir ganga fram og telja Ólaf Ragnar hafa með þessu og þrefaldri beitingu málskotsréttar breytt embættinu til frambúðar og jafnvel að hann geti gengið lengra án þess að brjóta stjórnarskrána. Sannarlega er breytingin ekki til frambúðar nema til komi vilji raunverulegs meirihluta til slíks og breytingar á stjórnarskrá. Plaggið er nú bærilega skýrt að þessu leyti og gerir ekki ráð fyrir að forseti sé fjórða hjól undir vagni með sérstaka utanríkisstefnu, orkumálastefnu, umhverfisstefnu, heilbrigðisstefnu, stefnu um innihald stjórnarskrár eða leiðir og réttan tíma til að semja hana og svo framvegis. Hvað endurskoðun hennar allrar eða hluta leiðir um síðir í ljós er önnur saga. Með því að tala og hegða sér öndvert við Ólaf Ragnar og halda í heiðri skynsömum notum málskotsréttar (sem varla var unnt að beita áður fyrr vegna hótana um stjórnarslit) væri embættið látið virka á ný sem embætti þjóðkjörins trúnaðarmanns mikils meirihluta fólks; manns sem langflestir geta bent á og sagt: - Þetta er forsetinn minn.
Hann byggir brýr en grefur ekki skurði. Auðvitað tekur þessi forseti þátt í umræðum um „stóru málin". Hann er hvetjandi, fundvís á verkefni til að ræða, setur fram nýja fleti á málefnum, greinir mót- og meðrök og kallar eftir lausnum, hvetur til að verkefni verði sett á dagskrá og þannig má telja áfram. Hann útskýrir utanríkisstefnu samstarfsflokka sem skipa ríkisstjórn hverju sinni og gerir grein fyrir minnihlutaáliti um leið. Hann er forsetinn þinn en ekki einstakra og ólíkra fylkinga eftir málefnum hverju sinni.
Ef haldið er áfram að knýja forsetaembættið út fyrir ramma upplýstrar umræðu þar sem forsetinn er leiðandi, sættandi og skýrandi, verður það smám saman að allt öðru en þjóðareign. Ef vilji er fyrir annars konar forsetaembætti, í líkingu við það franska eða bandaríska, er slíkt áskorun um uppstokkun á stjórnarskránni og tilefni til langrar og vandaðrar vinnu.
Skoðun

Guðrún Hafsteinsdóttir, leiðtogi með sterka framtíðarsýn
Jón Ólafur Halldórsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, seinni grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Glötuðu tækifærin
Guðmundur Ragnarsson skrifar

Hnignun samgangna og áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf
Sverrir Fannberg Júliusson skrifar

Ísland á tímamótum – Við skulum leiða gervigreindaröldina!
Sigvaldi Einarsson skrifar

Hvað eru Innri þróunarmarkmið?
Þuríður Helga Kristjánsdóttir skrifar

Hagur okkar allra
Steinþór Logi Arnarsson skrifar

Áskoranir næstu áratuga kalla á fjármögnun rannsókna
Silja Bára R. Ómarsdóttir skrifar

Ég styð Guðrúnu Hafsteinsdóttur sem formann – en hvers vegna?
Karl Guðmundsson skrifar

Smíðar eru nauðsyn
Einar Sverrisson skrifar

Nýsköpunarlandið
Elías Larsen skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar – Móse og boðorðin 10
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Sérfræðingarnir
Sölvi Tryggvason skrifar

Af góða fólkinu og vonda fólkinu í VR og stóra biðlaunamálinu
Arnþór Sigurðsson skrifar

Venjuleg kona úr Hveragerði
Árni Grétar Finnsson,Björg Ásta Þórðardóttir skrifar

Hljóð og mynd fara ekki saman
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ertu að grínast með þinn lífsstíl?
Halla Þorvaldsdóttir skrifar

Guðrún Hafsteins er leiðtogi
Eiður Welding skrifar

Öflugur iðnaður, sterkt samfélag – Guðrún Hafsteinsdóttir veit hvað þarf
Hópur iðnaðarmanna skrifar

Óvissuferð Hafnfirðinga í boði Orkuveitu Reykjavíkur
Kristín María Thoroddsen skrifar

Herleysið er okkar vörn
Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar

Raddir, kyn og kassar
Linda Björk Markúsardóttir skrifar

Færni á vinnumarkaði – ný námsleið fyrir fólk með þroskahömlun
Helga Gísladóttir skrifar

Framtíðarfyrirkomulag biðlauna formanns VR
Ólafur Reimar Gunnarsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, fyrri grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Rödd friðar á móti sterkum her
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Leiðtogi nýrra tíma
Auður Kjartansdóttir,Bjarnveig Guðbrandsdóttir,Brynhildur Einarsdóttir,Guðrún Ingadóttir,G. Sirrý Ágústsdóttir,Hafdís Gunnarsdóttir,Jónas Kári Eiríksson,Júlíus Guðni Antonsson,Ragnhildur Eva Jónsdóttir,Róbert Smári Gunnarsson skrifar

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?
Birgir Orri Ásgrímsson skrifar

Tollflokkun rifins osts: Rangfærslur og staðreyndir
Erna Bjarnadóttir skrifar

Framtíð löggæslu fínpússuð í tilraunastofunni Gaza
Kristján Þór Sigurðsson skrifar