Eiga fleiri dómsmál á hendur fyrrverandi stjórnendum Kaupþings eftir að líta dagsins ljós?
Þrátt fyrir að sérstakur saksóknari hafi gefið út ákæru í máli sem kennt er við katarska sjeikinn Al Thani þýðir það ekki að fyrrverandi stjórnendur í Kaupþingi séu komnir fyrir vind í öðrum málum sem hafa verið til rannsóknar hjá embættinu.
Rannsókn allnokkurra mála sem tengjast Kaupþingi er enn í fullum gangi hjá embættinu, að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara, og gæti leitt til útgáfu ákæra.
Ákæran í Al Thani-málinu er sú fyrsta sem tengist Kaupþingi. Þar eru Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður, Magnús Guðmundsson, sem var forstjóri bankans í Lúxemborg, og Ólafur Ólafsson, stærsti eigandi bankans, ákærðir fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun vegna 26 milljarða króna lánveitinga í september 2008.
Keyptu þriðjung allra eigin bréfaEn það er bara eitt mál af mörgum. Af hinum ber fyrst að nefna grun um umfangsmikil kaup deildar eigin viðskipta Kaupþings í bankanum sjálfum, sem saksóknari rannsakar sem markaðsmisnotkun.
Yfirstjórnendur bankans eru taldir hafa skipulagt kaupin til að halda uppi gengi bréfa í bankanum. Árin 2005 til 2008 keypti bankinn sjálfur 29 prósent af öllu útgefnu hlutafé í sjálfum sér.
Taldir hafa bjargað eigin skinniSaksóknari hefur einnig lagt talsverða áherslu á rannsókn máls sem kennt hefur verið við eignarhaldsfélagið Lindsor Holdings Corporation á Tortóla. Það félag fékk 27,4 milljarða króna lán frá Kaupþingi 6. október 2008, daginn sem neyðarlögin voru sett, sem var notað til að kaupa skuldabréf sem voru að hrapa í verði af Kaupþingi í Lúxemborg, starfsmönnum bankans og félagi í eigu Skúla Þorvaldssonar, eins stærsta skuldara Kaupþingssamstæðunnar.
Inn í það mál fléttast þrettán milljarða króna millifærsla inn á reikning félagsins Marple Holdings S.A., sem var í eigu Skúla. Skjöl vegna þessara viðskipta eru talin hafa verið fölsuð eftir bankahrun.
Lánuðu vildarkúnnum tugmilljarðaKaupþing lánaði jafnframt félögum í eigu áðurnefnds Skúla, Egils Ágústssonar, sem kenndur er við félagið Íslensk-ameríska, og breska kaupsýslumannsins Kevins Stanford, háar fjárhæðir til að kaupa bréf í bankanum. Þetta er talið varða við lagaákvæði um bæði umboðssvik og markaðsmisnotkun.
Að síðustu eru til rannsóknar risavaxin lán, samtals að andvirði tæplega 82 milljarðar króna, til félaga að mestu í eigu þessara sömu þriggja manna, Skúla, Egils og Stanfords, til að kaupa skuldatryggingar á Kaupþing til að lækka skuldatryggingarálagið og mæta veðköllum frá Deutsche Bank.
Þessu til viðbótar lágu enn fleiri mál í stærri kantinum tengd Kaupþingi til grundvallar húsleitum hjá Kaupþingi í Lúxemborg fyrir tæpu ári. Upplýsingar um þau hafa ekki enn orðið opinberar.
stigur@frettabladid.is
Fleiri mál vofa yfir Kaupþingsmönnum - fréttaskýring

Mest lesið

Gefur reikniformúlu tollgjaldanna falleinkunn
Viðskipti erlent

Leggja til 25 prósent tolla á valdar bandarískar vörur
Viðskipti erlent


Trump hótar Kínverjum 50 prósenta viðbótartolli
Viðskipti erlent

Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent

Kaupa fyrir 234 milljónir og eiga rúman þriðjung
Viðskipti innlent




Enn meiri lækkanir í Asíu við opnun markaða
Viðskipti erlent