Sauðir og sauðfjárrækt í sjálfheldu styrkja Þórólfur Matthíasson skrifar 13. ágúst 2011 06:00 Búreikningar eru skýrslur og úrvinnsla sem Hagþjónusta landbúnaðarins hefur unnið upp úr bókhaldi bænda. Ekki er um tilviljanakennt úrtak að ræða, en yfirleitt er gengið út frá að það séu frekar betur búandi bændur sem senda inn bókhaldsupplýsingar en þeir sem lakar eru búandi. Raunafkoma meðalbús ætti því að vera heldur lakari en fram kemur í úrvinnslu Hagþjónustunnar. Búreikningar ársins 2009 liggja fyrir. Athyglivert er í ljósi umræðu liðinna vikna að skoða útkomu sauðfjárbúanna sérstaklega. Ég skoða hér meðaltal skv. búreikningaskýrslum fyrir hrein sauðfjárbú. Afkoma batnar eftir því sem bú stækka og einnig kann að vera hagstæðara að reka blandað bú en hreinræktað sauðfjárbú. Afkoma einstakra búa getur vikið verulega frá afkomu meðalbúsins. Meðfylgjandi tafla gefur yfirlit yfir afkomu og afkomuþætti meðalsauðfjárbús á árinu 2009: Taflan ber með sér að þegar búið er að borga fyrir aðföng (þ.e.a.s. nauðsynlegar rekstrarvörur á borð við áburð, olíu, kjarnfóður o.s.frv.) þá eru eftir 73 þúsund krónur á ársgrundvelli upp í laun, afskriftir og vexti. Búreikningar tilgreina að bóndi, annað heimilisfólk og aðkeypt vinnuafl vinni samtals 13,6 mánaðarverk á meðalbúi á ári. Verðmætasköpunin í hreinræktuðum sauðfjárbúum er þess vegna heilar 5.300 þúsund krónur á hvert mánaðarverk vinnuframlags! Þetta er framlag meðalsauðfjárbús til verðmætasköpunarinnar í hagkerfinu! Til samanburðar var verðmætasköpun á starfandi Íslending um 750 þúsund krónur á mánuði árið 2009. Framlag starfsmanns á meðalsauðfjárbúi er því aðeins um 1/150 hluti þess sem meðalstarfsmaður á Íslandi leggur fram í verðmætasköpun. Styrkjagreiðslur skattgreiðenda breyta afkomumynd sauðfjárbænda nokkuð: Beingreiðslur og framleiðslustyrkir losa 3 milljónir króna. Af þessum 3 milljónum fara 1.882 þúsund krónur í vaxtagreiðslur af lánum. Þá er eftir tæp milljón króna sem bókhaldarar bænda gera ráð fyrir að sé öll lögð á afskriftarsjóð. En ólíklegt er að meðalsauðfjárbóndinn geri það. Líklegra er að hann láti frekar sitja á hakanum að endurnýja tæki og hús og noti þessa milljón sér til framfærslu. Tilkostnaður vegna búrekstrarins lendir ekki allur inn í bókhaldsforriti bænda. Íslenskar lambær og dilkar þeirra eyða drjúgum hluta sumarsins í úthaga. Gróflega ætlað er ríflega helmingur fóðurþarfar sauðfjárbúsins upprunninn af landi utan búsins. Varlega áætlað er óbókfærður ávinningur af þessari beit um 1.650 þúsund krónur á ársgrundvelli. Sé tekið tillit til þessa kostnaðar er beint þjóðhagslegt tap af rekstri meðalsauðfjárbúsins. Þ.e.a.s. það væri hægt að auka hag þegnanna með því að hætta rekstri hreinna sauðfjárbúa! Þetta er nöturleg staðreynd. Þetta þýðir að allt bjástur sauðfjárbænda sem búa á hreinum sauðfjárbúum er til einskis! Þeir eyða meiru en þeir afla! Búreikningarnir sýna að stærri bú eru arðvænlegri en smærri bú. Vera kann að stærri búin nýti úthaga í ríkari mæli en smærri búin. Þá er væntanlega talsvert hagræði af blönduðum búrekstri þar sem álagstoppar falla ekki að öllu leyti saman. Það eru talsverðir ónýttir hagræðingarmöguleikar í greininni. Í iðnaði, verslun og viðskiptum er lítið um vannýtta augljósa hagræðingarmöguleika. Ástæðan er sú að fyrirtæki sem ekki hagræða í rekstri sínum eru rekin með tapi sem þau geta að lokum ekki fjármagnað. Fyrirtæki sem ekki geta fjármagnað hallarekstur sinn hætta starfsemi. Þetta gerist ekki í sauðfjárbúskapnum vegna þess að skattgreiðendur eru þvingaðir til að fjármagna hallarekstur meðalsauðfjárbúsins. Afleiðingin er að sauðfjárbúskapur er í sjálfheldu beingreiðslnanna: Óhagkvæm bú hanga á horriminni árum og áratugum saman og koma í veg fyrir að hagkvæmari rekstraraðilar fái notið sín. Það er tími til kominn að sauðfjárbúskapurinn losni úr sjálfheldu styrkja og beingreiðslna. Tölurnar sýna að meðalsauðfjárbóndinn verður að nota fjármuni sem ættu að fara í endurnýjun búnaðar, tækja og húsnæðis til framfærslu. Sagt með öðrum orðum þá eru sauðfjárbændur að borða útsæðið! Það hefur aldrei þótt uppskrift að góðri afkomu! Sá sem þetta skrifar efast ekki um að rekstrargrundvöllur sé fyrir sauðfjárbú sé rétt á málum haldið. Sá rekstur verður þó að vera í allt öðru formi en núverandi rekstur: Búin verða að stækka og þeim verður að fækka ef þau eiga að eiga sér lífsins von. Heildarumfang framleiðslunnar hlýtur einnig að minnka mikið frá því sem nú er. Umbreyting á sauðfjárbúskapnum í átt til arðbærari eininga og minni heildarframleiðslu mun draga úr rányrkju og ofbeit á heiðarlöndum, bæta afkomu bænda og mun stuðla að mikilli minnkun fjárausturs úr opinberum sjóðum í þetta tilgangslausa verkefni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórólfur Matthíasson Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar