Væri ekki bara hreinlegra að vísa manni úr landi? Ragnar Þór Ingólfsson skrifar 18. febrúar 2011 10:10 Ég var á upplýsingafundi VR um stöðu kjarasamninga í gærkvöldi og get ekki orða bundist. Dagskipun verkalýðshreyfingarinnar er að launafólk sýni ábyrgð og fari fram á hóflegar launahækkanir, sem tryggi kaupmátt og viðhaldi stöðugleika. Hugmyndafræði SAASÍ gengur út á að fylkja sér á bakvið verðbólguspá seðlabankans (sem hefur aldrei staðist frá því að mælingar hófust) og bæta lítilræði við til þess að sýna fram á jákvæða og ábyrga kaupmáttaraukningu. Hugmyndirnar ganga út á 2,5-3% hækkun á ári í 3 ár þannig að mismunur á launahækkunum og verðbólgu verði jákvæður um 1-3% yfir samningstímann. Á fundinum í gær kom skilyrðislaus stuðningur Alþýðusambandsins við verðtryggingu fjárskuldbindinga sem eitt og sér hlýtur að gera ASÍ vanhæft til að fjalla um hagsmuni launafólks. Er það ekki ótrúlegt að stærstu hagsmunasamtök launafólks skuli verja fjármagnseigendur, sem stjórna stöðugleikanum og hafa beinan hag af óstöðugleika í skjóli verðtryggingar? Hvernig væri ástandið ef að þeir sem stjórna stöðugleika hefðu allt undir með stöðugleika en ekki öfugt? Vissulega eru lífeyrissjóðir fjarmagnseigendur sem aftur erum við fólkið. En hver er okkar mikilvægasti lífeyrir? Eignaupptakan á okkar mikilvægasta lífeyri í gegnum verðbætur er notaður sem spilapeningur í fjárhættuspili viðskiptalífsins þar sem allt snýst um völd og aðgang hinna útvöldu að almannafé, sem tapast svo í kerfisbundnum markaðsáföllum. Þeir lífeyrisþegar sem standa best í dag fóru skuldlausir á lífeyri og höfðu þak yfir höfuðið sem árangur ævistarfsins í stað innihaldslausra loforða. Verkalýðshreyfingin hefur stungið hausnum í sandinn gagnvart launafólki hingað til og er mér spurn um hvers lags ábyrgð og hófsemi ég á að sýna eftir allt sem á undan er gengið. Hvaða ábyrgð, hófsemi og aðhald hefur verkalýðshreyfingin sýnt? Við höfum séð ábyrgar skattahækkanir sem engu hafa skilað nema hækkun á neysluvísitölu. Við höfum séð hófsamar og ábyrgar innistæðutryggingar án takmarkana þar sem stór hluti þeirra upphæða sem tryggður var, eru sömu skuldirnar og almenningur verður skattpíndur næstu áratugi til að greiða. Við höfum séð ábyrgð og hófsemi í gjaldskrárhækkunum orkuveitunnar og niðurskurði hjá leikskólum og grunnskólum. Við þekkjum ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar í að mótmæla því að ríkið innheimti skattstofn sinn í séreignasparnaði til að hlífa heimilum landsins við frekari álögum. Með ábyrgum og hófsömum hætti stakk Verkalýðshreyfingin hausnum á bólakaf í sandinn á meðan almenningur leitaði réttar síns vegna stökkbreyttra húsnæðis og bílalána og tók svo á endanum ábyrga afstöðu með fjármálafyrirtækjunum. Með ábyrgum hætti studdi verkalýðshreyfingin Icesave samninginn sem hefði verið síðasti naglinn í líkkistu velferðar á íslandi ef almenningur hefði ekki risið upp og hafnað honum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Nú ætlar verkalýðshreyfingin að bjóða launafólki í kökuboð þar sem sýnt verður fram á hversu lítið sé til skiptanna. Hvar var verkalýðshreyfingin þegar fjármagnseigendur voru að skera sínar sneiðar af sömu köku sem ekkert er eftir af? Hvar var verkalýðshreyfingin þegar milljarðahundruðum var eytt í að kaupa verðlaus skuldabréf út úr peningamarkaðssjóðum sem ekki voru ríkistryggðir en í eigu og stjórnað af útvöldum. Hvar var verkalýðshreyfingin þegar kökusneiðunum var sólundað í sama svartholið og kom okkur á hliðina? 26 milljarða kr. vegna VBS, 12 milljarða kr. vegna Sjóvár, 20 milljarðar vegna Saga Capital, 6 milljarða vegna Aska Capital, 5 milljarða vegna Byrs, 14 milljarða vegna Sparisjóðs Keflavíkur og væntanlega 3,5 milljarða vegna Byggðastofnunar og 20 milljarðar í SpKef. Launafólk þarf svo sárlega á sterkri forystu að halda sem hefur kjark í að berjast gegn grímulausu óréttlætinu, en hefur yfir sér stjórn þar sem ákvörðunarfælnin, meðvirknin og tepruskapurinn er slíkur að það hálfa væri nóg. Eru forystumenn verkalýðshreyfingarinnar kanski að starfa fyrir fjármagnseigendur og atvinnurekendur? Vil enda þetta á orðum vinar míns Guðmundar Más Ragnarssonar: Velferðastjórnin búin að lækka barnabætur fjölskyldunnar um helming. Á sama tíma kemur glaðningur frá leikskóla, systkinaafsláttur lækkaður og gjaldið hækkað í ofanálag. Nýtt „endurvinslusorpstöðvargjald“ lagt á heimilið. Gengdarlausar skattahækkanir kryddaðar með hækkun allra tilfallandi gjalda. Væri ekki bara hreinlegra að vísa manni úr landi? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ragnar Þór Ingólfsson Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Skoðun Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason skrifar Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Í krónuklóm Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Landsvirkjun, „Ísland allt“ og óvissan um ESB-aðild Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Breytt heimsmynd Sigurgeir Jónasson skrifar Skoðun Komin með nóg af umræðu um ESB? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Viltu hætta á samsekt í þjóðarmorði eða stríðsrekstri fyrir hagnað annarra? Bergljót T. Gunnlaugsdóttir skrifar
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar