Segir forsetann tala fyrir einangrun 4. desember 2010 18:08 Skúli Thoroddsen.
Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, segir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, mæla fyrir einangrun. Forsetinn virðist tala gegn lausn á Icesavemálinu en dekri í staðinn við aukin efnahagsleg tengsl við „nútímanýlenduherra í Kína og í Rússlandi Pútíns." Ólafur Ragnar sagði í viðtali við fjármálaritið The Banker að Íslendingar þurfi ekki á erlendri fjárfestingu að halda. Of mikið innstreymi erlends fjármagns hafi einkennt efnahagslífið á Íslandi fyrir bankahrun og orðið til þess að hagkerfið hafi ofhitnað og hrunið. Þetta gagnrýnir Skúli í pistli á heimasíðu Starfsgreinasambandsins. Hann segir að það skjóti skökku við að forsetinn skuli halda því fram að Íslendingar þurfi ekki á erlendri fjárfestingu að halda. „Er forsetinn búinn að gleyma orsökinni, þeirri að hið frjálshyggju einkavædda bankakerfi hrundi yfir okkur hin með skelfilegum afleiðingum, vegna þess m.a. að hagkerfið ofhitnaði vegna útlánsþenslu sem reyndist vera froða," segir Skúli. Þá segir hann: „Vissulega eru til menn sem vilja festa Ísland í sessi eylandsins, en átta sig ekki á að í leiðinni er verið að festa í sessi einangrun láglaunasamfélagsins og kotungsskap."
Tengdar fréttir Ólafur Ragnar: Þurfum ekki erlent fjármagn Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir í viðtali við fjármálaritið The Banker að Íslendingar þurfi ekki á erlendri fjárfestingu að halda. Of mikið innstreymi erlends fjármagns hafi einkennt efnahagslífið á Íslandi fyrir bankahrun og orðið til þess að hagkerfið ofhitnaði og hrundi. 4. desember 2010 09:53 Mest lesið Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Innlent Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Innlent Farþeginn enn í haldi lögreglu Innlent Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Innlent Tæplega tvö hundruð þúsund vottorð gefin út af læknum á ári Innlent Fólk farið að reykja kókaínið Innlent Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Innlent Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Innlent Ummæli Þórunnar dapurleg Innlent Elsti Íslendingurinn er látinn Innlent Fleiri fréttir Tæplega tvö hundruð þúsund vottorð gefin út af læknum á ári Langþráð verk í vegagerð bíða fram á næsta áratug Farþeginn enn í haldi lögreglu Sextán ára martröð strætóbílstjóra í Reykjanesbæ Slökkvilið kallað út vegna ammoníakleka Ummæli Þórunnar dapurleg Margt sem gildir enn í samstarfi Íslands og Bandaríkjanna Fólk farið að reykja kókaínið Kókaínreykingar algengari, vonbrigði í vegagerð og háskaleg eftirför lögreglu Mikið viðbragð vegna umferðarslyss Taldi brúðkaup í Keníu ekki telja og krefst ógildingar Slökktu eld á Stórhöfða Ráðherra bað skólameistara afsökunar sem klóra sér enn í kollinum Elsti Íslendingurinn er látinn Eldri kona stórslösuð og vitni gefa sig fram Halla Bergþóra sækir um en ekki Páley Hafnarfjörður mátti ekki afturkalla ráðningu Óskars Steins Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Furðar sig á uppbyggingu við inngang þjóðgarðsins Grindvíkingar fái að velja hvar þeir kjósa „Auðvitað er forgangsröðun jarðganga vonbrigði fyrir mig“ „Þetta er stórkostlegt vandamál fyrir Íslendinga“ Ekki búið að bera kennsl á þann sem ekið var á Uggur í læknum og samtöl við Norðurlönd nauðsynlegt Fóru ekki fram á lengra varðhald yfir lögmanninum Áhyggjufullir læknar Hlaup hafið í Skaftá Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Lífið gjörbreytt Grindvíkingar hugsa um að fara heim: Gott að vera í Grindavík en verður aldrei eins Sjá meira
Ólafur Ragnar: Þurfum ekki erlent fjármagn Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir í viðtali við fjármálaritið The Banker að Íslendingar þurfi ekki á erlendri fjárfestingu að halda. Of mikið innstreymi erlends fjármagns hafi einkennt efnahagslífið á Íslandi fyrir bankahrun og orðið til þess að hagkerfið ofhitnaði og hrundi. 4. desember 2010 09:53