Mátturinn er með mér 19. maí 2006 18:15 Gamli góði Frasier hefur heldur betur haft hamskipti fyrir X-Men The Last Stand.
Gamalt máltæki segir að það séu allir froskar stórir í eigin drullupolli. Þetta sannast heldur betur í Cannes þar sem íslenskir blaðamenn eru álíka öflugir og moskítófluga á köldu Reykjavíkurkvöldi. Manni finnst maður nefnilega oft svolítið stór heima á Íslandi þar sem hægt er að tryggja viðtöl og landa skúbbum í krafti þess að maður skrifar fyrir útbreiddasta dagblað landsins. Tölur eins og 67% á hverjum degi og um það bil 110.000 prentuð eintök á dag vega þungt á Íslandi. Í Cannes ná þær því ekki einu sinni að vera fyndnar. Mér var til dæmis ekki boðið á rauðadregils frumsýningu The Da Vinci Code þar sem SONY hafði aðeins um 200 miðum til að dreifa á fjölmiðla í gervallri Evrópu. Maður getur rétt ímyndað sér hversu ofarlega á forgangslistanum Fréttablaðið frá litla Íslandi var. Ein eftirsóttasta fjölmiðlauppákoman í Cannes þetta árið verður haldin á morgun þegar blaðamenn fá tækifæri til að hitta sjörnurnar úr þriðju X-Men myndinni The Last Stand. Þetta eru engin smá nöfn og nægir þar að nefna Hugh Jackman, Halle Berry, Ian McKellen, Famke Janssen, Anna Paquin, Kelsey Grammer og Rebecca Romijn. Ég var einu sinni bálskotinn í Halle Berry en það var þegar hún lék súlustelpu í The Last Boy Scout. Sá þá strax að hún yrði stjarna en hef tekið út það mikinn þroska í millitíðinni að ég er ekkert uppveðraður yfir því að hitta hana. Grammer er sá sem ég er spenntastur fyrir enda einlægur aðdáandi dr. Frasier Crane. Kannski hljóma ég galinn en veit í það minnsta að Kolla Bergþórs vinkona mín skilur mig og væri alveg til í að skipta við mig. Fox tók upp á þeim óskunda að breyta áætlunum sínum á síðustu stundu og fækka verulega þeim fjölmiðlum sem fá að senda sitt fólk á þessa fundi. Ástæðan er sú að ákveðið var að breyta gigginu úr "international" í "global" en það þýðir að þá þarf bandaríska pressann að komast að og annara þjóðakvikindum er að sjálfsögðu skipt út fyrir þá sem starfa á heimamarkaði. Þetta er auðvitað algalið þar sem heimurinn allur samanlagður er miklu stærra markaðssvæði en Bandaríkin. Þetta vita auðvitað allir nema þeir en svona er það þegar maður telur sig búa í nafla alheimsins. Mér skilst að öðrum íslenskum miðlum hafi verið úthýst og ég sé sá eini frá Íslandi sem fær að vera memm. Þetta gæti verið heppni ef ég væri ekki óheppnasti maður í heimi þannig að ég hlýt að skrifa þessa lukku á Fréttablaðið og kraftinn sem felst í 110.000 prentuðum eintökum á dag. Það er semsagt bíó í kvöld klukkan 22 á lokaða X-Men sýningu og feis tú feis við stórstyrnin á morgun. The Force is with me.
Cannes Mest lesið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Kát á kynfræðslukarnivali Menning Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira