Skoðun

Hraða þarf endurskoðun útvarpslaga

Guðmundur Magnússon



Álitsgerð umboðsmanns Alþingis um fréttavef Ríkisútvarpsins er rökrétt þegar tillit er tekið til þess lagagrundvallar sem starfsemi stofnunarinnar er reist á. Löggjafinn ætlar Ríkisútvarpinu eingöngu að annast útvarpsstarfsemi, það er að reka hljóðvarp og sjónvarp, en hvorki að halda úti blöðum, tímaritum, netmiðlum eða starfsemi af öðru tagi. Þá gera útvarpslög ekki ráð fyrir að stofnunin afli tekna með sölu auglýsinga á netinu.

En um leið og þetta er viðurkennt verður að segjast að með þessu er Ríkisútvarpinu sniðinn þrengri stakkur en eðlilegt er um fjölmiðil. Tækninni fleygir fram og óskir og kröfur neytenda breytast ört. Fjölmiðlar verða að geta lagað sig að nýrri tækni og breyttum tíðaranda ef þeir eiga ekki að daga uppi. Netið er að vera mikilvægasti vettvangur fjölmiðlunar nútímans og miðlar sem ekki taka tillit til þeirrar staðreyndar munu eiga erfitt uppdráttar.

Málið er þó ekki svo einfalt að nú þurfi einfaldlega að breyta lítillega orðalagi útvarpslaga og leyfa stofnuninni hömlulausa starfrækslu netmiðils. Ágreiningurinn um netmiðilinn ruv.is er aðeins ein birtingarmynd þess ósættis og skoðanamunar sem ríkir í þjóðfélaginu og á vettvangi fjölmiðlanna, sérstaklega um hlutverk og fjármögnun Ríkisútvarpsins. Þau mál hafa verið í brennidepli um nokkurt skeið og mögnuðust í tengslum við hin ólánlegu fjölmiðlalög ríkisstjórnarinnar.

Væri Ríkisútvarpið ekki starfandi í dag er óhugsandi að nokkrum dytti í hug að vilja stofna það, a.m.k. ekki í núverandi mynd. En hefðin og sagan, sem um margt er glæsileg, hefur skapað stofnuninni svo öflugan stuðning meðal þjóðarinnar að ekki er í alvöru rætt um að leggja hana niður, þótt það væri helst í anda nútímasjónarmiða um frjálsa fjölmiðlun og mörk ríkisafskipta og einkarekstrar. Þess vegna er umræðan bundin við að finna leiðir til að láta Ríkisútvarpið starfa og njóta sín innan um sjálfstæða fjölmiðla einkaaðila - án þess að ríkisreksturinn skekki samkeppnina á markaðnum og geri öðrum miðlum lífið erfitt.

Niðurstaða umboðsmanns er árétting um nauðsyn þess að taka útvarpslög í heild til endurskoðunar og marka framtíðarstefnu. Það yrði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra til mikils álitsauka ef henni tækist að koma þessu þjóðþrifamáli í þann farveg sem víðtæk sátt gæti skapast um. Það þarf að skapa frið um Ríkisútvarpið en slíkur friður getur ekki orðið meðan samkeppnisaðilar telja að lögbundin forréttindi stofnunarinnar komi í veg fyrir að þeir vaxi og dafni með eðlilegum hætti.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×