Viðskipti innlent
159 160 161 162 163 164 165 166 167 … 334 ›
Landsbankinn hagnast um 14,1 milljarð króna Landsbankinn hagnaðist um 6,5 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2021 og var afkoma bankans jákvæð um 14,1 milljarð króna á fyrri helmingi ársins. Til samanburðar var 3,3 milljarða króna tap á sama tímabili árið 2020. Viðskipti innlent 22.7.2021 13:23
Metpantanir hjá Marel á öðrum ársfjórðungi Annan ársfjórðung í röð var slegið met í pöntunum hjá Marel en pantanirnar á fjórðunginum voru upp á 370 milljónir evra. „Annar ársfjórðungur var góður fyrir Marel. Okkar metnaðarfulla teymi tókst á við áskoranir með bjartsýni og þrautseigju í nánu samstarfi við birgja og viðskiptavini.“ segir Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, í tilkynningu um ársfjórðungsuppgjör. Viðskipti innlent 22.7.2021 13:10
Góður ársfjórðungur hjá Össuri Hagnaður Össurar á öðrum ársfjórðungi nam 2,4 milljörðum króna eða 10 prósent af veltu. Á sama ársfjórðungi í fyrra var 2,3 milljarða króna tap á rekstri fyrirtækisins. Viðskipti innlent 22.7.2021 07:46
Arnar kærir forstjóra ÁTVR til lögreglu Arnar Sigurðsson, eigandi áfengisverslunarinnar Santewines, hefur lagt fram kæru á hendur Ívari J. Arndal, forstjóra ÁTVR, fyrir rangar sakargiftir. ÁTVR hefur kært Arnar og fyrirtæki hans Sante ehf. og Santewines SAS til lögreglu og skattayfirvalda fyrir stórfelld skattaundanskot. Arnar hefur alfarið hafnað ásökununum. Viðskipti innlent 21.7.2021 15:44
Neytendastofa sektar þrjú apótek Neytendastofa hefur sektað þrjú apótek vegna vankanta á verðmerkingum. Stofnunin skoðaði ástand þeirra í apótekum í Reykjanesbæ í mars og tók skoðunin til fimm apóteka á svæðinu. Var sérstaklega kannað hvort vörur væru verðmerktar, hvort verðmerking þeirra væri rétt og hvort verðmerkingar fyrir aftan afgreiðsluborð væru nægilega sýnilegar neytendum. Viðskipti innlent 21.7.2021 15:00
Enn hækkar íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu Samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu að meðaltali um 1,4 prósent milli maí og júní. Árshækkun mælist nú 16 prósent og hefur ekki verið hærri síðan í október 2017. Viðskipti innlent 21.7.2021 11:47
Áform um stóra vindmyllugarða milli Langaness og Vopnafjarðar Sveitarstjórn Langanesbyggðar skoðar nú hugmyndir um að reisa hátt í þrjúhundruð vindmyllur á sex svæðum milli Langaness og Vopnafjarðar. Rætt er um að allt að eitt þúsund megavött raforku verði virkjuð í vindmyllugörðunum. Viðskipti innlent 20.7.2021 23:03
Krónan vill rúman milljarð króna í bætur frá ríkinu Krónan fer fram á ríflega milljarð króna í bætur frá íslenska ríkinu út af meintum hagnaðarmissi á árunum 2015 til 2018 af völdum innflutningshamla sem brutu gegn EES-samningnum. Málið á sér langan aðdraganda og varðar innflutning á fersku kjöti, eggjum og mjólkurvörum. Viðskipti innlent 20.7.2021 16:37
Matthías frá Eimskip til Borgarplasts Matthías Matthíasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Borgarplasts og tekur við af Guðbrandi Sigurðssyni. Á árunum 2009 til 2020 starfaði Matthías sem framkvæmdastjóri flutningasviðs hjá Eimskip. Viðskipti innlent 20.7.2021 13:38
Norðurál ræðst í fimmtán milljarða framkvæmdir Norðurál og Landsvirkjun hafa gert með sér samkomulag um þriggja ára framlengingu á raforkusölusamningi og mun hann taka gildi þann 1. janúar 2023. Í framhaldinu mun Norðurál fara í fimmtán milljarða króna framkvæmdir: byggingu steypuskála við álverið á Grundartanga. Viðskipti innlent 20.7.2021 07:40
Segir ásakanir ÁTVR vera rógburð og vill afsökunarbeiðni Arnar Sigurðsson, eigandi áfengisvefverslunarinnar Santewines, segir að allar ásakanir ÁTVR um skattsvik og undanskot séu rógburður. Hann fer fram á að kærurnar verði dregnar til baka og ÁTVR biðjist afsökunar í helstu fjölmiðlum. Viðskipti innlent 19.7.2021 12:52
Heildarlaun lækkuðu í sumum starfsgreinum Grunnlaun hækkuðu að jafnaði um 6,6% milli áranna 2019 og 2020. Á sama tíma hækkuðu heildarlaun fullvinnandi um 5,3% og því ljóst að stytting vinnutíma hefur haft áhrif á þróunina. Viðskipti innlent 19.7.2021 10:32
„Algjörlega galið“ að herða tökin á landamærunum frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar og þeirri efnahagslegri viðspyrnu sem fjölgun ferðamanna hér á landi veiti sé það „algjörlega galið" ætli stjórnvöld sér að herða tökin á landamærunum, líkt og sóttvarnalæknir hefur í hyggju að leggja til að verði gert. Viðskipti innlent 16.7.2021 14:36
Taka yfir annað stærsta eggjabú landsins Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Líflands ehf. á helmingshlut í Nesbúeggjum ehf. Eftir kaupin er fyrirtækið alfarið í eigu Líflands sem átti áður 50 prósent hlutafjár í eggjabúinu. Viðskipti innlent 16.7.2021 13:50
Frá Ölmu til Eimskips María Björk Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eimskips. Hún kemur til starfa frá Ölmu íbúðafélagi þar sem hún hafði verið framkvæmdastjóri síðastliðin sjö ár. Viðskipti innlent 16.7.2021 09:30
200 milljóna króna gjaldþrot Ostabúðarinnar á Skólavörðustíg Skiptum í þrotabúi Þriggja grænna osta, sem rak veitingastaðinn Ostabúðina við Skólavörðustíg 8 frá 2015-2019, er lokið. Rúmlega sjö milljónir króna fengust greiddar upp í forgangskröfur. Viðskipti innlent 16.7.2021 09:08
Elmar þarf ekki að snúa aftur í gamla starfið Elmar Ásbjörnsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra bankasviðs Seðlabanka Íslands en staðan var auglýst laus til umsóknar í lok júní. Viðskipti innlent 16.7.2021 09:03
Flateyri komin í tísku hjá Íslendingum „Mig langaði að prófa að fara á verbúð,“ segir Sunna Reynisdóttir aðspurð hvernig áratuga ástarsamband þeirra Magnúsar Eggertssonar er til komið. Hjónin reka saman Bryggjukaffi á Flateyri við Önundarfjörð þar sem gestagangur í sumar hefur farið fram úr björtustu vonum heimafólks. Viðskipti innlent 16.7.2021 08:15
ÁTVR kærir Arnar til lögreglu og skattayfirvalda Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) hefur kært Arnar Sigurðsson, frönsku netverslunina Santewines SAS og innflutningsfyrirtækið Sante ehf. til lögreglu og Skattsins. Fyrirtækið er sakað um að standa ekki skil á innheimtum virðisaukaskatti. Viðskipti innlent 16.7.2021 07:45
Vatnsforði Þórisvatns aldrei mælst minni á miðju sumri Vatnshæð Þórisvatns hefur aldrei mælst lægri um þetta leyti árs frá því farið var að nýta vatnið sem helsta vatnsforðabúr þjóðarinnar og er yfirborð þess núna sjö metrum lægra en í meðalári. Talsmaður Landsvirkjunar segir þó enga ástæðu til að óttast raforkuskort í vetur. Viðskipti innlent 15.7.2021 22:22
Margfalt fleiri hlutabréfaeigendur og gengi rýkur upp Hlutabréfaeigendur eru fjórfalt fleiri en þeir voru í lok árs 2019, en þeir hafa farið úr átta þúsund í 32 þúsund. Þá hefur gengið hlutabréfa rokið upp á síðustu tólf mánuðum og aðeins eitt félag á markaði sýnir neikvæða ávöxtun. Almenningur sýnir stöðugt meiri áhuga á hlutabréfaviðskiptum. Viðskipti innlent 15.7.2021 19:00
Bréf í Solid Clouds halda áfram að lækka Gengi hlutabréfa í íslenska tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds lækkaði um 14,9 prósent í dag. Frá skráningu félagsins á markað á mánudaginn hafa bréf í því lækkað um 36 prósent. Viðskipti innlent 15.7.2021 18:42
Flugvélin sem gæti orðið sú fyrsta rafknúna hjá Icelandair Ráðamenn Icelandair telja að vetnis- og rafmagnsflugvélar geti orðið raunhæfur kostur í innanlandsfluginu á fáum árum og hafa skrifað undir tvær viljayfirlýsingar við erlend fyrirtæki með það að markmiði að verða á meðal fyrstu flugfélaga heims til að gera innanlandsflug kolefnislaust. Viðskipti innlent 14.7.2021 22:44
Annar ársfjórðungur Arion umfram spár Samkvæmt drögum að uppgjöri Arion banka fyrir annan ársfjórðung 2021 er afkoma bankans umtalsvert umfram spár greiningaraðila á markaði. Viðskipti innlent 14.7.2021 14:30
Dagný ráðin framkvæmdastjóri Ólafs Gíslasonar & co. Dagný Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Ólafs Gíslasonar & co., Eldvarnamiðstöðvarinnar og Rafborgar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólafi Gíslasyni & co. Viðskipti innlent 14.7.2021 11:02
Icelandair skoðar vetnis- og rafknúið innanlandsflug Icelandair Group hefur skrifað undir tvær viljayfirlýsingar um að kanna möguleika á orkuskiptum í innanlandsflugi félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Viðskipti innlent 14.7.2021 10:17
Hluthöfum fækkar um fjögur þúsund Hluthöfum í Íslandsbanka hefur fækkað um fjögur þúsund frá því bankinn var skráður á hlutabréfamarkað í síðasta mánuði. Þetta kemur fram í Markaði Fréttablaðsins í dag en fækkunin nemur liðlega sautján prósentum. Viðskipti innlent 14.7.2021 08:08
„Algjör sprenging“ í einkafluginu Sprenging hefur orðið í komum einkaflugvéla á Reykjavíkurflugvöll frá mánaðamótum, að sögn rekstrarstjóra á vellinum. Reiknað er með meiri umferð nú í júlímánuði en í júlí 2019, sem var einn besti mánuður fyrirtækisins frá upphafi. Viðskipti innlent 14.7.2021 07:00
Bílaleigubílar þrefaldast í verði: „Þetta er bara lögmálið um framboð og eftirspurn“ Dæmi eru um verð á bílaleigubílum hafi meira en þrefaldast frá því í desember en fjölmargir ferðamenn hafa gripið í tómt undanfarna daga. Mikil umframeftirspurn er eftir bílaleigubílum og er útlit fyrir að bílaleigur verði nærri uppseldar fram í ágúst. Viðskipti innlent 14.7.2021 06:00
Verktakar börðust hart um að fá að breikka Lögbergsbrekku Vegagerðinni bárust fjögur tilboð í tvöföldun Suðurlandsvegar á 3,3 kílómetra kafla um Lögbergsbrekku í útjaðri Reykjavíkur en tilboð voru opnuð í dag. Þrjú þeirra reyndust undir 937 milljóna króna kostnaðaráætlun. Það lægsta kom frá Jarðvali sf. í Kópavogi, upp á 791 milljón króna, sem var 84,5 prósent af áætluðum verktakakostnaði. Viðskipti innlent 13.7.2021 21:31