Viðskipti erlent
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 334 ›
Hráolíuverð heldur áfram að lækka Heimsmarkaðsverð á Brent-hráolíu lækkaði á föstudag og stefnir í lækkun aðra vikuna í röð. Olíuverð náði miklum hæðum í kjölfar stríðsins í Úkraínu en frá maílokum hefur Brent-olíuverð lækkað úr 120 bandaríkjadölum á tunnu niður í um 109, næstum tíu prósent lækkun. Viðskipti erlent 24.6.2022 11:13
Stærsta rafrettuframleiðandanum skipað að taka vörur af markaði Rafrettuframleiðandanum Juul var skipað að fjarlægja vörur sínar af markaði í Bandaríkjunum í gær. Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) telur fyrirtækið ekki hafa sýnt fram á að vörur þess gagnist lýðheilsu. Viðskipti erlent 24.6.2022 10:19
Þrjú hundruð sagt upp hjá Netflix Bandaríska streymisveitan Netflix hefur sagt upp þrjú hundrið starfsmönnum. Ástæðan er sú að áskrifendum fer fækkandi. Viðskipti erlent 23.6.2022 22:35
Mesta vaxtahækkun í Noregi í tuttugu ár Norski seðlabankinn hækkaði í morgun stýrivexti um hálft prósentustig, úr 0,75 í 1,25 prósent. Norskir fjölmiðlar segja að þetta sé mesta hækkun stýrivaxta í landinu í heil tuttugu ár. Viðskipti erlent 23.6.2022 12:56
Húsleit gerð hjá dönsku dótturfélagi Eimskips Danska samkeppniseftirlitið framkvæmdi í dag húsleit hjá Atlantic Trucking, dönsku dótturfélagi í eigu Eimskipafélags Íslands, í Álaborg í Danmörku. Viðskipti erlent 20.6.2022 20:57
Musk og fyrirtækjum hans stefnt vegna pýramídasvindls með rafmynt Fjárfestir í rafmyntinni Dogecoin stefndi Elon Musk, rafbílaframleiðandanum Tesla og og geimferðafyrirtækinu SpaceX vegna meints pýramídasvindls með myntina í dag. Hann krefst 258 milljarða króna frá Musk og fyrirtækjum hans. Viðskipti erlent 16.6.2022 20:16
Rafmyntir í ólgusjó Einn versti dagur í sögu rafmyntamarkaðsins rann upp nú á mánudag. Markaðurinn hefur tekið vænar niðursveiflur á síðustu vikum vegna hækkandi vaxta og aukinnar verðbólgu en heildarvirði rafmyntamarkaðsins hrundi niður fyrir eina trilljón Bandaríkjadala. Viðskipti erlent 14.6.2022 16:39
Sriracha-sósuskortur vegna veðurs Skortur á Sriracha sósu er yfirvofandi vegna veðrabreytinga í Mexíkó en Huy Fong Foods, framleiðandi sósunnar notar um það bil fimmtíu þúsund tonn af eldpipar í sósurnar sínar. Þetta hráefni er nú veðursins vegna af skornum skammti. Viðskipti erlent 14.6.2022 13:18
Opna McDonald's aftur í Rússlandi undir nýju nafni Veitingastaðir McDonald‘s í Rússlandi voru opnaðir á nýjan leik í morgun eftir að stórfyrirtækið yfirgaf landið fyrr í vor vegna innrásarinnar í Úkraínu. Litlar breytingar hafa verið gerðar á veitingastöðunum eða matnum sem seldur er þar. Viðskipti erlent 12.6.2022 09:50
Hækka stýrivexti í fyrsta sinn í ellefu ár Evrópski seðlabankinn hyggst færa stýrivexti sína upp um 0,25 prósentustig í júlí sem verður fyrsta hækkunin í ellefu ár. Þá boðar seðlabankinn aðra hækkun í september sem gæti reynst umfangsmeiri ef ekki tekst að koma böndum á verðbólguna. Viðskipti erlent 9.6.2022 21:17
Apple þarf að breyta hleðslutengjum fyrir 2024 Evrópusambandið og Evrópuþingið hafa náð samkomulagi um að snjalltæki þurfi að hafa einu og sömu tegundina af hleðslutengi fyrir árið 2024. Samkomulagið þýðir að tæknirisinn Apple þarf að breyta hleðslutengjum í snjalltækjum sínum í Evrópu. Viðskipti erlent 7.6.2022 13:09
Samþykktu tímabundið bann við rafmyntargreftri Ríkisþing New York samþykkti frumvarp sem leggur tímabundið bann við að gefin verið út ný eða endurnýjuð leyfi fyrir jarðefnaeldsneytisorkuver sem eru notuð til að knýja gröft eftir rafmyntum. Slíkur gröftur hefur stórt kolefnisspor. Viðskipti erlent 3.6.2022 15:40
Sheryl Sandberg hættir hjá Meta Sheryl Sandberg, framkvæmdastjóri Meta, ætlar að hætta hjá fyrirtækinu eftir að hafa verið mjög áberandi í fremstu röðum þar í fjórtán ár. Í tilkynningu segist hún ætla að einbeita sér að mannúðarstarfi og að öðru leyti viti hún ekki hvað framtíðin beri í skauti sér. Viðskipti erlent 1.6.2022 22:21
Króatía tekur upp evruna á næsta ári Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að Króatía uppfylli öll skilyrði til þess að taka upp evruna, strax á næsta ári. Minna en áratugur er liðinn síðan Króatía gekk í Evrópusambandið. Viðskipti erlent 1.6.2022 17:47
Olíuverð tekur kipp eftir innflutningsbann ESB Tunnan af olíu hækkaði um þrjú prósent og kostar nú nærri því 120 dollara eftir að Evrópusambandríki náðu samkomulagi um að banna innflutning á nær allri olíu frá Rússlandi vegna stríðsins í Úkraínu. Olíuverð hefur þegar hækkað um sextíu prósent á þessu ári. Viðskipti erlent 31.5.2022 13:19
Hvalrekaskatti skellt á bresk orkufyrirtæki Breska ríkisstjórn hyggst leggja 25 prósent hvalrekaskatt á hagnað breskra olíu- og gasframleiðanda. Samhliða kynnti ríkisstjórnin fimmtán milljarða punda stuðningspakka fyrir bresk heimili vegna hækkandi orkuverðs. Viðskipti erlent 26.5.2022 22:39
Ætla að láta Musk standa við gerðan samning Stjórn samfélagsmiðilsins Twitter segist ætla að láta Elon Musk standa við gerðan samning um kaup hans á miðlinum fyrir 44 milljarða dollara. Musk reynir nú að nota hlutfall gervireikninga á Twitter til að gera breytingar á samningnum eða komast undan honum. Viðskipti erlent 18.5.2022 20:01
Musk skapar enn meiri vafa um kaupin á Twitter Kaup auðkýfingsins Elons Musk á samfélagsmiðlinum Twitter eru nú í lausu lofti eftir að hann byrjaði að efast um tölur stjórnenda Twitter um hversu hátt hlutfall reikninga eru gervireikningar eða yrki (e. bot). Hann vill greiða minna en tilboðið sem hann lagði fram í síðasta mánuði. Viðskipti erlent 17.5.2022 17:40
Musk segir Twitter-kaupin í bið Elon Musk, auðugasti maður heims, segir kaup hans á samfélagsmiðlinum Twitter vera í bið. Það sé á meðan verið sé að ganga úr skugga um hve margir falskir reikningar og ruslpóstsbottar séu í rauninni. Viðskipti erlent 13.5.2022 10:11
Þýðingarvél Google stækkuð Þýðingarvél tæknirisans Google hefur nú verið stækkuð en 24 nýjum tungumálum hefur verið bætt við þjónustuna. Rúmlega 300 milljónir manna tala tungumálin sem um ræðir en um helmingur þeirra er frá Afríku. Viðskipti erlent 12.5.2022 07:25
Saka Facebook um að valda usla í Ástralíu til að hafa áhrif á löggjöf Á meðan ástralska þingið fjallaði í fyrra um nýtt lagafrumvarp sem myndi krefja tæknirisa á borð við Facebook og Google um að greiða fjölmiðlum fyrir notkun á efni þeirra lokaði Facebook fyrir aðgang að áströlskum fjölmiðlum og tók niður síður ástralskra spítala, stofnana og góðgerðarfélaga. Viðskipti erlent 6.5.2022 15:09
Musk verði forstjóri Twitter eftir kaupin Auðjöfurinn Elon Musk er sagður ætla að taka við sem forstjóri Twitter um tíma eftir að kaup hans á samfélagsmiðlafyrirtækinu ganga í gegn. Hann er fyrir forstjóri Tesla og stýrir þar að auki SpaceX og Boring Company. Viðskipti erlent 5.5.2022 19:28
Átta Íslendingar sagðir eiga eignir í Dúbaí Átta Íslendingar eiga fasteignir í Dúbaí ef marka má gögn sem lekið var til norska viðskiptamiðilsins E24. Að sögn miðilsins er þetta í fyrsta sinn sem greinargott yfirlit fæst yfir eigendur lúxusfasteigna, íbúða og skrifstofubygginga í furstadæminu sem hefur lengi verið þekkt sem leikvöllur ríka fólksins. Viðskipti erlent 5.5.2022 17:09
Olíufyrirtæki skila methagnaði í skugga verðhækkana Alþjóðlegir orkurisar hafa stórgrætt á umfangsmiklum hækkunum á mörkuðum fyrir gas og olíu að undanförnu og skiluðu mörg hver methagnaði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Viðskipti erlent 5.5.2022 11:40
Musk íhugar að rukka vissa aðila fyrir notkun Twitter Auðkýfingurinn Elon Musk, sem vinnur nú að því að ganga frá kaupum sínum á Twitter, segir að samfélagsmiðilinn komi mögulega til með að rukka stjórnvöld og aðila sem noti Twitter í viðskiptalegum tilgangi „vægt“ gjald fyrir notkunina. Þó muni almennir notendur ávallt geta notað Twitter að endurgjaldslausu. Viðskipti erlent 4.5.2022 16:22
Fáránlega ríkur maður með takmarkaðan skilning á málfrelsi Kaup Elon Musk á samfélagsmiðlinum Twitter hafa vakið mikil viðbrögð um allan heim. Milljarðamæringurinn segist ætla að efla tjáningarfrelsi á miðlinum og útrýma gervimennum. Sérfræðingar setja stórt spurningamerki við þær fyrirætlanir. Viðskipti erlent 26.4.2022 21:01
Stjórn Twitter samþykkir kauptilboð Musk Stjórn samfélagsmiðlafyrirtækisins Twitter hefur ákveðið að samþykkja kauptilboð auðkýfingsins Elon Musk í fyrirtækið. Viðskipti erlent 25.4.2022 19:12
Elon Musk og stjórn Twitter nálgist samkomulag um sölu á samfélagsmiðlinum Twitter og Elon Musk nálgast nú samkomulag um að selja samfélagsmiðilinn til auðkýfingsins. Þetta hefur The New York Times eftir tveimur ónefndum heimildarmönnum sem eru sagðir þekkja stöðu mála. Viðskipti erlent 25.4.2022 08:44
Telja stjórn Twitter á milli steins og sleggju Stjórn samfélagsmiðla fyrirtækisins Twitter eru undir þrýstingi vegna kauptilboðs auðkýfingsins Elon Musk samkvæmt frétt Financial Times. Viðskipti erlent 22.4.2022 14:01
Carbfix vann tvöfalt í fyrri umferð kolefniskeppni Elon Musk Carbfix vann til tveggja verðlauna í fyrri umferð alþjóðlegrar keppni auðkýfingsins Elon Musk, þar sem markmiðið er að finna leiðir til að draga úr koltvíoxíðmengun í andrúmsloftinu. Viðskipti erlent 22.4.2022 13:31