
Menning

Norskur rithöfundur drepur sóknarprestinn í Reykholti
„Jú, jú, það er engin tilviljun að séra Magnús er með grátt hár, gleraugu og geithafursskegg. Og er forfallinn áhugamaður um Snorra,“ segir norski rithöfundurinn Tom Egeland.

Minning Göggu
Söngkonan Engel Lund, eða Gagga eins og hún var gjarnan kölluð hérlendis, verður heiðruð með margvíslegum hætti í Íslensku óperunni á sunnudagskvöldið.

Upplestraröð að hefjast
Nú eru að hefjast upplestrar á vegum bókaforlaganna. Í kvöld kl. 20 ríður Forlagið á vaðið. Upplestrar munu fara fram á Te & kaffi á annarri hæð bókabúðar Máls og menningar við Laugaveg (áður Súfistinn) hvert fimmtudagskvöld fram í miðjan desember.

Gáttaþefur og sálir tvær
Þjóðleikhúsið frumsýnir leikritið Utan gátta eftir Sigurð Pálsson á laugardag í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur í Kassanum. Fjögur hlutverk eru í verkinu sem þau Arnar Jónsson, Kristbjörg Kjeld, Eggert Þorleifsson og Ólafía Hrönn Jónsdóttir fara með. Leikmynd og búninga annast Grétar Reynisson.

Fjórum dönsum betur
Sýning Íslenska dansflokksins á fimmtudagskvöld á fjórum nýjum dúettum – tvídönsum – er um flest markverður vitnisburður um stöðu dansins hér. Innan dansflokksins eru flinkir dansarar, konurnar sterkari en karlarnir, efni flokksins til að gera sýningar sæmilega úr garði felast fyrst og fremst í tíma til æfinga og vinnu.

Listahátíð leggur net fyrir vorið
Listahátíð í Reykjavík verður haldin í 39. sinn á vori komanda og er nú hafinn undirbúningur fyrir hátíðina undir stjórn nýs listræns stjórnanda, Hrefnu Haraldsdóttur. Hefur hátíðin nú auglýst eftir umsóknum um tónleikahald í heimahúsum í Reykjavík í maí 2009.

Ókeypis sinfóníur í kvöld
Í kvöld og á morgun býður Sinfóníuhljómsveit Íslands öllum sem áhuga hafa á tónleika í Háskólabíó. Tónleikarnir í kvöld hefjast kl. 19.30 en á morgun verða þeir kl. 17.

Gallery verður Projects
Tekið hefur til starfa sýningarrýmið 101 Projects. Eins og nafnið gefur til kynna er 101 Project á vegum 101 Gallery og byggir á grunni þess, enda rekið í sama húsnæði. Í sýningarrýminu 101 Projects verður áfram boðið upp á samtímamyndlist, með aukinni áherslu á sýningar framsækinna, alþjóðlegra myndlistarmanna. Listrænn stjórnandi 101 Projects er Birta Guðjónsdóttir.

Hart í bak aftur á svið
Annað kvöld frumsýnir Þjóðleikhúsið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson á Stóra sviðinu í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar. Er þetta í þriðja sinn sem verkið er sett á svið í Reykjavík en það var frumsýnt 1962 í Iðnó.

Sigurður frumflytur á Háskólatónleikum í dag
Hádegistónleikaröð á vegum Háskóla Íslands hefur síðustu vetur gert sitt til að gleðja tónlistarunnendur á höfuðborgarsvæðinu enda metnaðarfull og áhugaverð dagskrá. Það er því mörgum eflaust fagnaðarefni að tónleikaröðin fer af stað á nýjan leik með tónleikum Kvartetts Sigurðar Flosasonar í Norræna húsinu í hádeginu í dag. Kvartettinn mun þar frumflytja nýja tónlist eftir Sigurð.

Woyzek sýndur í New York
Vesturport sýnir sviðsetningu Gísla Arnar Garðarssonar á Woyzek í New York í vikunni. Nær fimmtíu manna flokkur hélt til New York á sunnudag og eru þrjár sýningar á verkinu á vegum BAM-hátíðarinnar.

Jákvæð skilaboð á erfiðum tíma
Fjöldi fólks mætti á Hótel Borg síðastliðið fimmtudagskvöld til að hlusta á uppbyggilegan boðskap sem er byggður á nýútkominni bók Maxine Gaudio, Ferðalagið að kjarna sjálfsins. Salka forlag gefur bókina út í íslenskri þýðingu Malínar Brand og að sögn Hildar Hermóðsdóttur, eiganda og framkvæmdastjóra Sölku, var stemningin góð.

Fólkinu í blokkinni fagnað
Söngleikurinn Fólkið í blokkinni var frumsýndur í Borgarleikhúsinu á föstudagskvöld. Gestir kunnu vel að meta verkið og var aðstandenum vel fagnað að sýningu lokinni.

Fólkið í blokkinni
Það er skammt stórra högga á milli hjá Ólafi Hauki Símonarsyni þessar vikurnar. Ný bók er væntanleg í prentsmiðjur næstu daga. Á föstudag var frumsýnt nýtt verk eftir hann sem byggist á ævibrotum Janis Joplin og á morgun frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur á Stóra sviðinu nýjan söngleik Ólafs, Fólkið í blokkinni.

Tenór á túr
Leikverk Guðmundar Ólafssonar, Tenórinn, var frumsýnd á Berjadögum norður í Ólafsfirði í ágúst 2003 og þá um haustið í Iðnó þar sem sýningin var á fjölunum í tvö ár. Hún var tekin upp haustið 2006 og leikin í Freyvangi í Eyjafjarðarsveit fyrir troðfullu húsi.

Aðeins ein íslensk mynd slegin hjá Bruun
„Fyrir um ári hefði verið slegist um þessi verk. Þá hefðu verið hér tíu til fimmtán Íslendingar, og annað eins í símanum, að bítast um þau. Ég sá hér engan Íslending,“ segir Pétur Þór Gunnarsson listaverkasali.

Gangverk leikhúsa
Fyrsta verkefni Nemendaleikhússins í vetur, sýningin Gangverkið, verður frumsýnt í kvöld á Litla sviði Borgarleikhússins.

Vinsæll bloggari gefur út bók
„Ég ætlaði mér alltaf að verða rithöfundur," segir Jóna Ágústa Gísladóttir, höfundur bókarinnar Sá einhverfi og við hin, sem kemur út í lok október. Bókin er að stórum hluta byggð á bloggfærslum Jónu en hún heldur úti bloggsíðunni jonaa.blog.is þar sem hún skrifar um fjölskyldu sína og lífið með syni sínum Ian Anthony sem er einhverfur.

Góð aðsókn að Braga
Ef aðeins er tekið mið af aðsóknartölum má ætla að löngu hafi verið orðið tímabært að setja upp veglega yfirlitssýningu á verkum Braga Ásgeirssonar, en aðsókn á sýningu hans á Kjarvalsstöðum hefur farið fram úr björtustu vonum.

Sinfó undir áhrifum austurs
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld verða með austurlensku yfirbragði, nánar tiltekið indónesísku, en þá verður flutt tónlist sem á einn eða annan hátt sækir innblástur í gamelan-tónlist frá Jövu og Balí.

Tveir módernistar
Sýning á verkum eftir þá Sigurjón Ólafsson og Þorvald Skúlason verður opnuð í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, nú á laugardag kl. 15. Yfirskrift sýningarinnar er Tveir módernistar.

Fígúra lifði í 500 daga
Verslunin Fígúra fagnar 500 daga afmæli sínu með rýmingarsölu í dag, en dagurinn er sá síðasti sem verslunin verður opin. „Eftir það verðum við eingöngu á myspace á netinu," útskýrir Guðjón Rúnar Emilsson, eigandi verslunarinnar.

Ina verðlaunuð
Norski danshöfundurinn Ina Christel Johannessen hlaut í síðustu viku Norsku gagnrýnendaverðlaunin fyrir verk sitt Ömbru sem hún samdi fyrir Íslenska dansflokkinn og dansflokkinn Carte Blanche í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík og Listahátíðina í Bergen.

Hagþenkir deilir út fé
Á fimmtudag var tilkynnt hverjir fengu styrk úr sjóðum Hagþenkis til vinnu og útgáfu hugverka, ritverka og sjónvarpshandrita.

Óperukór vestur
Óperukór Hafnarfjarðar, undir stjórn óperusöngkonunnar Elínar Óskar Óskarsdóttur, er um þessar mundir ásamt Peter Máté píanóleikara á tónleikaferð um Kanada. Kórinn kemur fram í borgunum Toronto, Ottawa og Montreal og flytur metnaðarfulla dagskrá; blöndu af íslenskum lögum eftir okkar ástsælu tónskáld bæði eldri og núlifandi. Töluverð eftirvænting hefur ríkt vestra vegna komu kórsins og birtist meðal annars tilkynning um tónleikana á forsíðu Lögbergs-Heimskringlu.

Hrafnhildur um eigin verk
Hrafnhildur Arnardóttir myndlistarmaður fjallar um eigin verk í hádegisfyrirlestri í dag kl. 12.30 í húsnæði myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegi 91.

Elsta leyndarmál þjóðarinnar
Hnífur Abrahams eftir Óttar M. Norðfjörð var ein af metsölubókum síðustu jólavertíðar og seldist í sex þúsund eintökum. Nú fylgir Óttar bókinni eftir með nýrri skáldsögu, Sólkrossi. „Þessi bók gerist á Íslandi og kærasta Adams Swift, Embla Þöll, er aðalsöguhetjan þótt Adam komi líka við sögu,“ segir Óttar. „Þetta er miklu metnaðarfyllri bók. Síðast var ég að gera tilraun með að skrifa svona flugvallarmetsölubók, en þessi er rólegri og skandinavískari.“

Leikur Don Juan í þekktasta leikhúsi Bretlands
„Þetta er stór rulla sem maður verður að prófa," segir Gísli Örn Garðarsson leikari, sem hefur þekkst boð hins virta breska leikhúss Royal Shakespeare Company um að taka að sér hlutverk kvennabósans Don Juan í væntanlegri leiksýningu. Um er að ræða nýja leikgerð sem byggð er á hinni þekktu óperu Don Giovanni. Leikritið kallast Don John og gerist árið 1978, á pönktímabilinu í Bretlandi. „Þetta leggst bara vel í mig, mér líst ótrúlega vel á það sem mér hefur verið sagt af þessu," segir Gísli, sem mun sýna á sér nýja hlið í hlutverki Don Juan sjálfs.

Útilistaverk í Árborg fjórfaldaðist í verði
Útilistaverkið Sveipur, sem sveitarfélagið Árborg samdi um kaup á við listakonuna Sigrúnu Ólafsdóttur í ársbyrjun 2006, hefur enn ekki verið gert. Kostnaður við smíði verksins verður margfalt hærri en þær þrjár til fimm milljónir króna sem upphaflega var áætlað.

Óperur á neti
Metropolitan Opera í New York er fremst í flokki þeirra óperuhúsa heimsins sem vilja halda sér í takt við tímann. Þar er uppi sú hreyfing að heimta að óperusöngvarar grenni sig, þar er lengst komið tæknivæðingu í þjónustu við áhugamenn um óperur á netinu.