Lífið

Innilit á æfingu á Jólagestum Björgvins
Björgvin Halldórsson heldur sína árlegu jólatónleika á laugardag, Jólagestir Björgvins. Tónleikarnir fara fram klukkan 17 og 20 í Laugardalshöll og verða einnig sýndir í streymi.

Hótel Flatey á Breiðafirði komið á sölu
Rekstur og húsakostur Hótel Flatey á Breiðafirði er nú til sölu, alls 678,3 fermetrar.

„Það þarf að moka skít, annars koma þær ekkert aftur“
Áhrifavaldarnir Sunneva Einarsdóttir og Jóhanna Helga Jensdóttir reyna fyrir sér í hinum ýmsu störfum víðs vegar um Ísland í þáttunum #Samstarf á Stöð 2.

Dóra Júlía hélt forsýningarpartý á Þetta reddast á Petersen svítunni
Plötusnúðurinn og fjölmiðlakonan Dóra Júlía Agnarsdóttir verður seint talin vera stjörnukokkur. Hún er nú samt að fara af stað með matreiðsluþætti þann 23. desember á Stöð 2.

„Því meira sem þú segist vera eitthvað, því minna ert þú það“
Fjölmiðlamaðurinn Þorkell Máni Pétursson gaf á dögunum út bókina Þú þarft ekki að vera svona mikill aumingi og ræddi Sindri Sindrason við Mána um bókina í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær.

Prins Nutella tróð upp í eins árs afmæli
Verzlanahöllinn hélt upp á eins árs afmælið í gær. Meðal þeirra sem glöddu viðstadda var upprennandi söngstjarnan Prins Nutella, eða Baldvin Tómas Sólmunarson,en hann mun stíga á svið meðJólagestumBjörgvins næsta laugardag.

Meirihluti fatlaðs fólks á erfitt með að ná endum saman
„Það sem sló mig strax í upphafi hvað það var lítil aðstoð sem fjölskyldum er veitt í svona aðstæðum. Þarna gerist atvik sem að breytir öllu í lífi fjölskyldu og aðstandenda og ekki síst breytir öllu mínu lífi,“ segir Þuríður Harpa Sigurðardóttir formaður Öryrkjabandalags Íslands.

Shannon tvíburarnir segja Hefner hafa neytt sig í trekant
Shannon tvíburarnir, fyrrverandi kærustur stofnanda Playboy, bera hann þungum sökum í viðtali sem birtist í gær. Þær saka hann meðal annars um að hafa neytt þær til að sofa saman.

Fékk símreikning upp á hundrað þúsund nokkrum vikum eftir að hann hitti Ingu
Inga sá Góa fyrst þegar hann birtist í stefnumótaþættinum Djúpu lauginni árið 2003. Hún fékk númerið hans hjá sameiginlegum vini og fóru þau að skiptast á SMS-skilaboðum. Þegar þau ákváðu loks að hittast hafði Gói aldrei litið Ingu augum, en féll þó fyrir henni í gegnum símann þegar hann heyrði að hún kynni að meta slátur og saltkjöt.

Sævar semur fyrir Skugga-Svein og vinnur plötu með Sony
Tónskáldið og píanistinn Sævar Jóhannsson semur og útsetur tónlistina fyrir Skugga-Svein sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í janúar 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Leikfélaginu.

William Hung með sprenghlægilega kveðju til Steinda
Í gær kom út nýjasti þátturinn af hlaðvarpi FM95BLÖ og það í mynd.

Var ekki að fara missa af fæðingu frumburðarins út af smá snjó
Jólaauglýsingar verða alltaf stærri og stærri og fyrir mörgum eru þær mikilvægur hluti af jólahaldinu.

Búið að velja tíu lög Söngvakeppninnar sem haldin verður í kvikmyndaverinu Gufunesi
Söngvakeppnin snýr aftur á RÚV í febrúar og mars og þá verður valið framlag Íslands í Eurovision sem haldin verður í Torino á Ítalíu í maí. Alls voru 158 lög send inn í Söngvakeppnina í ár.

Elísabet Ormslev eignaðist draumadreng: „Alveg fullkominn“
Söngkonan Elísabet Ormslev og Sindri Þór Kárason hljóðvinnslumaður eignuðust dreng 11. desember. Elísabet birti nokkrar myndir af frumburðinum á samfélagsmiðlum í gær.

Djörf BDSM-sena í nýju tónlistarmyndbandi Örnu Báru
Nekt, grímur, vopn og svipur koma fyrir í nýju tónlistarmyndbandi fyrirsætunnar og tónlistarkonunnar, Örnu Báru Karlsdóttur.

Aron og Hildur efna til giskkeppni um nafn sonarins
Leikarinn Aron Már Ólafsson, betur þekktur sem Aron Mola, og kærastan hans og sálfræðingurinn Hildur Skúldóttir efndu til giskkeppni á Instagram í dag í tilefni þess að yngri sonur þeirra var skírður.

Þjófar fengu yfir sig prumpuglimmer-sprengju fjórða árið í röð
Fyrir rúmlega þremur árum varð verkfræðingurinn Mark Rober mjög reiður þegar þjófar stálu pakka sem stóð fyrir utan heimili hans.

Risafyrirtækin og jólaauglýsingarnar
Stórfyrirtæki um heim allan leggja töluvert upp úr því að gefa út og framleiða jólaauglýsingar.

Bylgja Babýlons þriðji fyndnasti grínistinn í Skotlandi
Grínistinn Bylgja Babýlons hafnaði í þriðja sæti á lista Rotunda Comedy Club í Skotlandi yfir bestu grínistana árið 2021.

Varð pirraður á grímum á stangli og hefur tínt 8.000 síðasta árið
Síðastliðið ár hefur Örlygur S. Sigurjónsson, fararstjóri og leiðsögumaður hjá Ferðafélagi Íslands, tínt átta þúsund andlitsgrímur í náttúrunni og á götum Reykjavíkurborgar. Hann segir að tínslan hafi byrjað þegar það angaraði hann að sjá alltaf grímur í runna á leið sinni í vinnuna og hafi síðan undið upp á sig.

Kim náði lögfræðiprófinu í fjórðu tilraun
Kim Kardashian West tilkynnti á Instagram í dag að hún náði lögfræðiprófinu sem hún hefur lært fyrir undanfarin tvö ár.

Fúlsar við Fyrsta blikinu og horfir frekar til Filippseyja
Árni Stefán Árnason, dýralögfræðingur sem hefur látið sig varða umræðuna um blóðmerahald og annað er við kemur dýravelferð, segir ekki annað fyrir íslenska karlmenn á hans aldri en að leita annað, til dæmis til Filippseyja. Aktvívistahópnum Öfgum blöskrar ummæli lögfræðingsins og segja skrifin ógeðfelld.

Bölvað ves á Bassa í des
Í gærkvöldi fór í loftið jólaútgáfa af Blindum bakstri þar sem Eva Laufey fær til sín skemmtilega gesti næstu tvö sunnudagskvöld.

Ísland kom fyrir í furðulegu atriði Billie Eilish fyrir SNL
Saturday Night Live hefur birt á Twitter atriði með einstakri listakonu frá Íslandi.

Úrslitin í Kviss réðust á lokaspurningunni
Úrslitaviðureignin í Kviss fór fram í beinni útsendingu á laugardagskvöldið en þar mættust KR og Þróttur.

Stjörnulífið: Jólakúlur, glimmer og Disney World
Það styttist í jólin og er ljóst að Íslendingar eru flestir að komast í smá jólaskap. Þeir sem ekki eru búnir að finna jólaandann geta skoðað allt jólaefnið okkar hér á Lífinu, en við birtum daglega jólalög, jólaviðtöl og fleira skemmtilegt.

Dóra setur Íslandsmet í langlífi
Dóra Ólafsdóttir á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík hefur nú náð hærri aldri en nokkur annar hér á landi. Frá þessu er greint á Facebook-hópnum Langlífi.

Svona lítur fataskápur Dóru Júlíu út
Plötusnúðurinn Dóra Júlía er á leiðinni í loftið með nýja þætti á Stöð 2 sem heita Þetta reddast þar sem hún fær skemmtilegt fólk til að elda með sér á meðan hún spjallar við það um alls konar hluti.

Harnaaz Kaur Sandhu er Miss Universe 2021
Miss Universe India, Harnaaz Kaur Sandhu, var í nótt valin Miss Universe árið 2021. Keppnin fór fram í Eliat í Ísrael.

Páll Óskar syrgir Gutta: „Takk fyrir að velja mig sem lífsförunaut“
Tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson kvaddi köttinn Gutta á föstudag eftir alls átján ára samveru. Gutti var orðinn nítján ára gamall þegar nýru hans byrjuðu að gefa sig.