Körfubolti

Finnur: Það er eldur í Pavel
Finnur Freyr Stefánsson, nýráðinn þjálfari Vals í Dominos-deild karla, segir að Pavel Ermolinskij sé klár í slaginn á næstu leiktíð. Þetta staðfesti Finnur í Sportinu í dag og sagði að það væri hugur í Pavel.

„Stórt félag með mikla sögu og tækifæri til að gera betur“
Nýr þjálfari karlaliðs Vals stefnir á að koma því í úrslitakeppnina á næsta tímabili.

Segir Isiah Thomas næstbesta leikstjórnanda sögunnar þótt hann hati hann
Rúmur aldarfjórðungur er síðan Michael Jordan og Isiah Thomas mættust inni á körfuboltavellinum. Þeir eru samt enn andstæðingur og hatrið milli þeirra ristir djúpt.

Nýir þjálfarar hjá báðum Valsliðunum: Finnur tekur við karlaliðinu
Valsmenn skipta um þjálfara hjá báðum meistaraflokkum sínum í sumar en Finnur Freyr Stefánsson var ekki lengi að finna sér vinnu á Íslandi eftir að hann hætti með danska liðið Horsens.

Tíu leikmenn sem fengu hærri laun á ferlinum en Michael Jordan
Michael Jordan er enn meðal launahæstu íþróttamanna heimsins en það voru þó ekki peningarnir frá Chicago Bulls sem skiluðu honum öllum þessum tekjum.

Finnur Freyr tekur við Val
Fimmfaldi Íslandsmeistarinn Finnur Freyr Stefánsson verður næsti þjálfari karlaliðs Vals í körfubolta.

Herra Njarðvík og Herra Keflavík urðu Íslandsmeistarar saman
Friðrik Ingi Rúnarsson rifjaði það upp á fésbókinni þegar hann, Teitur Örlygsson og Guðjón Skúlason unnu Íslandsmeistaratitil saman fyrir 42 árum.

Hvað hefur komið mest á óvart í vetur?
Yfirstandandi tímabil í NBA-deildinni verður alltaf minnst fyrir ótímabært andlát Kobe Bryant og kórónufaraldursins. Ef við horfum fram hjá því, hvað hefur komið mest á óvart í vetur?

Finnur Freyr hættur sem þjálfari Horsens og á leið heim
Finnur Freyr Stefánsson er á leið heim eftir að hafa þjálfað Horsens í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

KV þáði sæti í 1. deild
KV, sem nú er undir hatti körfuknattleiksdeildar KR, hefur þegið boð frá KKÍ um að taka sæti í 1. deild karla í körfubolta á næstu leiktíð.

Benedikt fer yfir hlutabréf leikmanna | Hverjir hækkuðu og hverjir lækkuðu?
Benedikt Guðmundsson, sérfræðingur Domino´s Körfuboltakvölds, fór yfir hvaða leikmenn komu best og verst út úr Domino´s deild karla í vetur.

Draumalið Domino´s deildar karla | Myndskeið
Benedikt Guðmundsson og Kristinn Friðriksson tveir af álitsgjafar Domino´s Körfuboltakvölds völdu draumalið leiktíðarinnar. Lið þeirra voru nær alveg eins.

KR endurheimtir efnilegan leikmann
KR-ingar hafa endurheimt hinn efnilega körfuboltamann Veigar Áka Hlynsson eftir eins árs dvöl hans í Keflavík.

Hafnaði 15 milljörðum fyrir tveggja tíma vinnu
Fyrrverandi umboðsmaður Michael Jordan hefur rifjað upp ótrúlega sögu af körfuboltastjörnunni sem greinilega lætur peninga ekki stjórna sínum ákvörðunum alfarið.

Isiah Thomas vann Jordan oftar en hann tapaði fyrir honum
Michael Jordan og Isiah Thomas háðu hatrama baráttu á níunda áratugnum og svo harða að þeir eru ennþá engir vinir í dag.

KR-ingar halda upp á „Stöndum saman“ með hátíð á fésbókinni
Leikmenn og þjálfarar körfuboltaliða KR munu gera upp tímabilið á morgun í sérstakri uppgjörshátíð „Stöndum saman“ verkefnisins sem verður send út beint á fésbókinni.

Frákastið sem Rodman náði ekki voru flottustu tilþrif hans með Chicago Bulls
Chicago Bulls tók saman fimm flottustu tilþrifin hjá Dennis Rodman þegar hann var leikmaður liðsins.

FIBA: Tryggvi er sönnun þess að líf manns getur breyst mjög fljótt
Alþjóðakörfuknattleikssambandið, FIBA, fer yfir ótrúlegt ferðalag íslenska miðherjans Tryggva Snæs Hlinasonar á síðu sinni.

Sonur Rodman frétti fyrst af Vegas ævintýrum pabba síns þegar hann horfði á „Last Dance“
Dennis Rodman hefur ekki sagt syni sínum frá öllum ævintýrum sínum hjá Chicago Bulls liðsin ef marka má viðbrögð stráksins við síðustu þáttum af „The Last Dance“ á ESPN.

Lykilatriði að fá börnin á æfingar í maí: „Fundist þetta mjög erfitt“
Pálmar Ragnarsson, körfuboltaþjálfari í yngri flokkum Vals, segir mikilvægt að fá börn í innanhússíþróttum aftur inn á æfingar í maí til að klára tímabilið almennilega og hindra brottfall í sumar.

Charles Barkley sagði sögur af Michael Jordan
Allir eru að rifja upp sögur af Michael Jordan í tilefni af því heimildaþættirnir "The Last Dance" hafa slegið í gegn og Charles Barkley er þar engin undantekning.

Martin tilbúinn að klára tímabilið: „Langar að verða þýskur meistari“
Landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson segist gjarnan vilja byrja að spila körfubolta aftur og líst ágætlega á þær hugmyndir sem uppi eru um að klára tímabilið í Þýskalandi fyrir lok júní.

Þórsarar fá til sín einn af erlendu leikmönnunum hjá Keflavík
Callum Lawson hefur samið við Þór frá Þorlákshöfn fyrir næstu leiktíð í Domino´s deild karla í körfubolta.

Jordan aðeins í fjórða sæti á lista Isiah Thomas
Þrír leikmenn voru betri en Michael Jordan á lista manns sem í mörg ár stóð í vegi fyrir því að Jordan næði fyrsta meistaratitlinum sínum í NBA-deildinni.

Dennis Rodman og Carmen Electra stunduðu kynlíf á miðjum æfingavelli Chicago Bulls
Það var komið að Dennis Rodman í nýjustu þáttum „The Last Dance“ um 1997-98 tímabil Chicago Bulls liðsins í NBA og það gekk mikið hjá Dennis og kærustu hans þennan vetur.

Martin á leið í tíu liða úrslitakeppni
Martin Hermannsson og félagar í Alba Berlín munu spila í tíu liða úrslitakeppni í Þýskalandi sem ljúka á fyrir 30. júní, ef áætlanir ganga eftir.

Fann besta erlenda leikmann sem hefur leikið hér á landi í körfuboltabúðum í New Jersey
Rætt var um bestu erlendu körfuboltamenn sem hafa leikið á Íslandi í Domino's Körfuboltakvöldi.

Á undan Shaq var íslenski Shaq
Einn af strákunum í NBA-þættinum The Starters rifjaði það upp hvaða leikmaður lék í treyju númer 34 hjá Los Angeles Lakers áður en Shaquille O'Neal klæddist henni sem leikmaður Lakers.

Domino's Körfuboltakvöld: „Þetta verður aldrei samþykkt“
Formenn innan körfuboltahreyfingarinnar hafa stigið fram á undanförnum vikum og talað um það að búa til heiðursmannasamkomulag innan körfuboltans hvað varðar erlenda leikmenn.

Domino's Köfuboltakvöld: Fimm leikmenn sem eiga að fara í stærri lið
Í Domino's Körfuboltakvöldi á föstudagskvöldið fóru spekingarnir yfir tvo lista sem Benedikt Guðmundsson gerði á dögunum.