Golf

Aron fagnaði sigri eftir bráða­bana

Aron Snær Júlíusson fagnaði sigri á fyrsta móti GSÍ-mótaraðarinnar í golfi sem fram fór um helgina eftir mikla spennu. Perla Sól Sigurbrandsdóttir fagnaði sigri í kvennaflokki.

Golf

„Þá hefði ég tekið því og hlaupið í burtu“

„Þetta er lífið í ferðatösku, eins og hjá atvinnumönnum. En maður velur þetta og þetta er það skemmtilegasta sem maður gerir. Ég myndi ekki skipta þessu út fyrir neitt,“ segir Ragnhildur Kristinsdóttir, einn fremsti kylfingur landsins, sem verður að vanda á faraldsfæti í sumar.

Golf

Svíinn sjóð­heitur í lokin og McIlroy stimplaði sig inn

Hinn 26 ára gamli Svíi Ludvig Åberg var sjóðheitur á seinni níu holunum í dag og stimplaði sig inn í toppbaráttuna á PGA-meistaramótinu í golfi. Norður-Írinn Rory McIlroy kom sér sömuleiðis í gang eftir skelfilegan fyrsta hring en það eru tveir Bandaríkjamenn sem leiða.

Golf

„Ég er búin að bíða eftir þessu lengi“

„Ég er mjög spennt fyrir sumrinu. Fimm mót á dagskrá heima og svo þrjú til fjögur erlendis, svo það verður nóg að gera í sumar,“ segir kylfingurinn Perla Sól Sigurbrandsdóttir brosmild. Hún er sérstaklega spennt fyrir að spila um Íslandsmeistaratitil á sínum heimavelli.

Golf

„Við erum alltaf að gefa í“

Íslenska golfsumarið hófst formlega í dag með Reykjanesmótinu, fyrsta móti GSÍ-mótaraðarinnar, og framundan eru spennandi mánuðir hjá íslenskum áhuga- og atvinnukylfingum sem sjaldan hafa myndað eins breiða sveit.

Golf

McIlroy klár þrátt fyrir sárs­auka

Rory McIlroy segist hafa farið upp um skónúmer vegna verkja í hægri fæti fyrir PGA-meistaramótið í golfi sem hefst í dag. Honum tókst að spila níu holur í upphitun í gær.

Golf

Blaðran heldur á­fram að bögga McIlroy

Blaðra undir tánögl Rory McIlroy hefur verið kylfingnum til mikils ama í aðdraganda PGA meistaramótsins. McIlroy hætti aftur snemma á æfingu dagsins, lokaæfingunni áður en mótið hefst.

Golf

McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur

Rory McIlroy, einn besti kylfingur heims, þurfti að hætta æfingu eftir fyrir PGA meistaramótið eftir að hafa aðeins leikið þrjár holur í gær. McIlroy hefur verið að glíma við óþægindi á hægri fæti.

Golf

Nær Spieth loksins að loka hringnum?

PGA-meistaramótið í golfi hefst á fimmtudag og margra augu verða á Jordan Spieth sem reynir enn og aftur að vinna mótið en það myndi setja hann í ansi fámennan hóp.

Golf

Golfsveifla Sig­mundar Davíðs heldur hægri sinnuð

Haraldur Franklín Magnús, einn fremsti kylfingur landsins, sló á létta strengi á samfélagsmiðlum um helgina þar sem hann greindi golfsveiflu þingmannsins Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins. Sigmundur var full hægri sinnaður í sveiflunni.

Golf

Sigurður fór hringinn á tíu höggum undir pari

Sigurður Arnar Garðarsson lék í dag einn besta golfhring sem íslenskur kylfingur hefur farið á alþjóðlegu atvinnumannamóti. Sigurður lauk leik tíu höggum undir pari á Sand Valley Spring Series Finals móti í Póllandi í dag.

Golf

LIV heldur sínu striki í miðjum stormi

Óvissa er uppi um framtíð LIV mótaraðarinnar í golfi. Sagt er að ríkissjóður Sádi-Arabíu muni draga úr eða jafnvel hætta öllum fjárframlögum en stjórnarmenn LIV blása á allar sögusagnir. Mótaröðin heldur áfram með móti í Mexíkó í dag.

Golf

Heiða Rakel vann háskólamót

Heiða Rakel Rafnsdóttir, úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar, fagnaði sigri í fyrsta móti sínu fyrir Grand Valley State University-skólann í Bandaríkjunum.

Golf