Gunnlaugur Árni hefur leik á U.S. Amateur Andri Broddason skrifar 10. ágúst 2026 10:32 Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur leik á stærsta áhugamannamóti Bandaríkjanna í dag. Mynd: Golfsamband Íslands Gunnlaugur Árni Sveinsson mun taka þátt á bandaríska áhugamannamótinu í dag en það er eitt stærsta áhugamannamót heims.
U.S. Amateur er stærsta áhugamannamót í Bandaríkjunum og mun Gunnlaugur Árni Sveinsson taka þátt í mótinu í ár. Risanöfn á borð við Viktor Hovland og Bryson DeChambeau hafa unnið mótið á sínum tíma. Mótið er leikið með skemmtilegu fyrirkomulagi þar sem fyrstu tveir hringirnir eru spilaðir í höggleik á tveimur mismunandi völlum. Eftir þá hringi munu efstu 64 kylfingar mótsins halda áfram í holukeppni þar sem útsláttur verður leikinn. View this post on Instagram A post shared by Golfsamband Íslands (@gsigolf) Kylfingar leika einn hring á Merion Golf Club og annan á Philadelphia Country Club áður en ákveðið verður hverjir halda áfram í holukeppnina. Yfir 300 kylfingar eru skráðir til leiks og því verður hörð barátta um að komast í lokahluta mótsins. Á síðasta ári komst Gunnlaugur Árni í holukeppnina en hann tapaði þar í 64-manna úrslitum gegn Max Herendeen. Mótherji Gunnlaugs Árna í fyrra rétt tapaði í 16-manna úrslitum.
Íslendingar erlendis Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira