Vann LIV-mótaröðina annað árið í röð Andri Broddason skrifar 10. ágúst 2026 08:32 Jon Rahm er búinn að tryggja sigur LIV-mótaraðarinnar fyrir síðustu keppni tímabilsins David Cannon/Getty Images John Rahm hefur unnið LIV-mótaröðina nú í annað skiptið í röð. Hann tryggði sigurinn um helgina eftir að hafa endað í 41. sæti í næstsíðasta einstaklingsmóti tímabilsins.
John Rahm hefur unnið LIV-mótaröðina annað skiptið í röð. Hann er 219 stigum á undan Bryson DeChambeau í öðru sætinu fyrir síðustu einstaklingskeppni tímabilsins. Hann hefur því tryggt sigurinn. Rahm endaði í 41. sæti um helgina á LIV-móti sem var haldið í New York en það var nóg til að tryggja titilinn. Joaquin Nieman sigraði mótið sjálft en hann endaði á sextán höggum undir pari, 24 höggum á undan sigurvegara mótaraðarinnar. Spænski kylfingurinn vann aðeins tvö mót á LIV-mótaröðinni á tímabilinu en hann endaði fjórum sinnum í öðru sæti. Hann náði að vinna tímabilið í fyrra án þess að vinna nokkurt mót og því fínasta tilbreyting. „Þetta er búið að vera frábært ár. Smá súrsætt vegna lélegrar spilamennsku þessa vikuna en tímabilið er eitthvað sem ég get verið stoltur af,“ sagði Rahm eftir að hafa unnið tímabilið. Hann bætti einnig við að það hefði verið gott að vinna aftur eftir að hafa efast um sjálfan sig eftir tímabilið í fyrra. Hann var ekki viss um hvort að hann ætti skilið að vera sigurvegari eftir að hafa ekki unnið eitt einasta mót. Síðasta mót LIV-mótaraðarinnar er í lok ágúst þar sem keppt verður í Michigan í Bandaríkjunum.
LIV-mótaröðin Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira