Golf

Hlynur byrjaði betur en Íslandsmeistarinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bergsson lék mjög vel á fyrsta hring á FootJoy Skåne Challenge-golfmótinu sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni.
Hlynur Bergsson lék mjög vel á fyrsta hring á FootJoy Skåne Challenge-golfmótinu sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Getty/Octavio Passos

Íslendingar eiga tvo fulltrúa á FootJoy Skåne Challenge golfmótinu í Svíþjóð og báðir spiluðu þeir undir pari á fyrsta hring.

Atvinnukylfingarnir Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson stöldruðu ekki lengi við eftir að Íslandsmótinu í golfi lauk um helgina. Aðeins tveimur dögum síðar eru þeir mættir aftur til leiks í Svíþjóð á Söderslätts golfvellinum og takast á við 156 aðra kylfinga næstu þrjá daga. 

Mótið, sem heitir FootJoy Skåne Challenge, er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni sem er þriðja sterkasta atvinnumótaröð í Evrópu.

Íslensku kylfingarnir eru báðir inni í baráttunni eftir fyrsta keppnisdag en það var mjög jafnt í leikum á Söderslätts vellinum. Það verður áhugavert að fylgjast með þeim næstu tvo dagana í þessu móti sem stefnir í að verða æsispennandi keppni.

Dagbjartur Sigurbrandsson, sem sýndi yfirburði á Íslandsmótinu um síðustu helgi og fagnaði sigri með fjögurra högga mun, spilaði gott golf í dag. Hann lék á 71 höggi, eða einu höggi undir pari. Þar með endar hann 7 höggum frá efsta sæti eftir fyrsta keppnisdag. Tveir keppnisdagar eru enn eftir og því nóg eftir til að vinna sig upp skortöfluna.

Hlynur Bergsson, sem hafnaði í 14. sæti á Íslandsmótinu um síðustu helgi, byrjaði mótið í Svíþjóð af miklum krafti og lék á 68 höggum. Hann endaði daginn á fjórum höggum undir pari og er aðeins 4 höggum frá efsta sætinu. Hlynur hefur sýnt að hann kann vel við aðstæður í Svíþjóð, en þar lék hann til sigurs á mótaröðinni um sama leyti í fyrra, sem gæti unnið með honum í framhaldinu.

Nordic Golf League hefur um árabil verið mikilvægur stökkpallur fyrir efnilega atvinnukylfinga á Norðurlöndum sem hafa í auknum mæli skilað sér í hóp bestu kylfinga heims á síðustu árum. Þaðan hafa meðal annars leikmenn á borð við Ludvig Åberg og tvíburabræðurnir Nicolai og Rasmus Højgaard lagt leið sína á stærstu mótaraðir heims, þar á meðal PGA Tour.

Á mótaröðinni safna keppendur stigum yfir tímabilið samkvæmt árangri sínum í mótum og berjast um efstu fimm sæti stigalistans á mótaröðinni, en efstu fimm kylfingarnir öðlast þátttökurétt á HotelPlanner Tour, sem er næststerkasta atvinnumótaröð Evrópu.

Fyrir þetta mót eru okkar menn í ágætis málum á stigalistanum en Dagbjartur er í 29. sæti og Hlynur í 32. Nokkur mót eru eftir af tímabilinu og nóg af stigum í boði, sem þýðir að með góðu gengi gætu þeir enn komið sér í toppbaráttu stigalistans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×