Golf

Bandaríkjamenn leiða í Ryder-bikarnum
Það tókst að klára fyrstu umferðina í Ryder-bikarnum í morgun og eftir hana hafa Bandaríkjamenn nauma forystu. Þeir nældu í tvo og hálfan vinning á meðan Evrópa fékk einn og hálfan.

Rigningin að riðla öllu í Ryder-bikarnum
Enginn fjórleikur kláraðist á fyrsta degi Ryder-bikarsins í golfi í dag en það varð að fresta leik í sjö tíma vegna mikilla rigninga. Þetta er í 38. sinn þar sem Bandaríkin og Evrópu keppa í þessari frægustu liðakeppni í golfi og hafa Bandaríkjamenn titil að verja.

Of mikið gert úr erjum Tiger og McIlroy
Fjölmiðlar hafa gert sér mikinn mat úr þeim orðum Norður-Írans Rory McIlroy að Tiger Woods sé ekki upp á sitt besta og hann vilji leggja hann af velli í Ryder-bikarnum.

McIlroy vill ólmur mæta Tiger
Norður-Írinn Rory McIlroy er fullur sjálfstrausts fyrir Ryder Cup og segist vilja mæta Tiger Woods í mótinu enda sé hann ekki lengur sami kylfingurinn og hann var.

Poulter ætlar að nota Twitter
Kylfingurinn Ian Poulter segir það ekki vera rétt að leikmenn Evrópu í Ryder Cup séu í Twitter-banni og hann ætlar að halda áfram að nota samskiptavefinn meðan á mótinu stendur.

Bannað að nota Twitter
Fyrirliðar liðanna í Ryder-bikarnum hafa gert með sér samkomulag um að leikmenn liðanna megi ekki nota Twitter-samskiptasíðuna þar til mótinu er lokið.

Furyk fékk 11 milljónir dollara
Bandaríkjamaðurinn Jim Furyk mokaði inn peningum á golfvellinum í gær. Hann vann þá Tour championship mótið og tryggði sér um leið FedEx-bikarinn.

Kylfusveinarnir fljúga á fyrsta farrými
Steve Williams, kylfusveinn Tiger Woods, fær ekki að fljúga með Tiger Woods á Ryder Cup þar sem Tiger stóð sig ekki nógu vel og var tekinn inn í bandaríska liðið sem aukamaður.

Birgir endaði í 52. sæti á opna austurríska mótinu
Íslandsmeistarinn Birgir Leifur Hafþórsson (GKG) hafnaði í 52. sæti á opna austurríska mótinu í golfi en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Birgir lék lokahringinn í dag á 76 höggum eða á fjórum yfir pari en lauk leik samtals á einu undir pari.

Birgir Leifur að standa sig vel
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að standa sig vel á Opna austurríska mótinu í golfi.

Birgir Leifur komst áfram í Austurríki
Birgir Leifur Hafþórsson komst í gegnum niðurskurðinn á opna austurríska meistaramótinu í golfi.

Fínn hringur hjá Birgi Leif
Birgir Leifur Hafþórsson lék vel á Opna austurríska mótinu í golfi í morgun en mótið er liður í Evrópumótaröðinni.

Guðmundur vann sterkt mót í Englandi
Einhver efnilegasti kylfingur landsins, Guðmundur Ágúst Kristjánsson sem er klúbbmeistari GR, gerði sér lítið fyrir í dag og vann Duke of York-golfmótið sem fram fór á Royal St. George´s-golfvellinum í Englandi.

Upp og niður hjá Birgi
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson hóf leik á sínu fyrsta móti á Evrópumótaröðinni í heilt ár í dag. Íslandsmeistarinn er að taka þátt í móti sem fram fer í Austurríki.

Tiger enn efstur á heimslistanum
Þrátt fyrir afar dapurt gengi undanfarnar vikur er Tiger Woods enn í efsta sætinu á heimslista kylfinga.

Keilisfólkið Rúnar og Guðrún Brá efnilegust í golfinu
Rúnar Arnórsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, bæði úr Keili úr Hafnarfirði voru valin efnilegustu kylfingar ársins 2010 á uppskeruhátíð Golfsambandsins sem fór fram í gær.

Landsbyggðin vann KPMG-bikarinn í golfi annað árið í röð
Landsbyggðin vann KPMG-bikarinn í golfi annað árið í röð en keppnin í ár fór fram á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Landsbyggðin fékk 13 vinninga gegn 11 vinningum frá Höfuðborgarliðinu.

Búið að velja golflandsliðin fyrir HM
Ragnar Ólafsson, landsliðseinvaldur í golfi, tilkynnti í dag hvaða kylfingar munu leika á Heimsmeistaramótinu sem fram fer í Argentínu í lok október.

Tíunda tækifæri Mickelson á árinu til að taka toppsætið af Tiger
Phil Mickelson og Steve Stricker eiga báðir möguleika á því að taka toppsæti heimslistans í golfi af Tiger Woods þegar Deutsche Bank mótinu lýkur í kvöld. Þetta verður í tíunda sinn á árinu sem Mickelson fær tækifæri til að ná í efsta sætið í fyrsta sinn á ferlinum.

Birgir Leifur lék á 58 höggum á Akranesi!
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, fór hamförum á Garðavelli í dag og lék völlinn á 58 höggum eða 14 höggum undir pari vallarins.

Singh fékk albatross í Boston
Kylfingurinn Vijay Singh frá Fiji-eyjum fékk albatross á þriðja hring á Deutsche Bank Championship mótinu sem fram fer í Boston á PGA-mótaröðinni.

Jimenez vann í svissnesku ölpunum
Spænski kylfingurinn Miguel Angel Jimenez sigraði á Omega European Masters golfmótinu sem lauk á evrópsku mótaröðinni í Sviss í dag. Jimenez lék samtals á 21 höggi undir pari og sigraði mótið með þremur höggum.

Landsbyggðin mætir Höfuðborgarsvæðinu
KPMG bikarinn 2010 fer fram á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur dagana 10.-11 september. Í KPMG bikarnum keppir úrvalslið höfuðborgar gegn úrvalsliði landsbyggðar.

Tiger tók stórt húsnæðislán
Skilnaður Tiger Woods við sænsku skutluna Elin Nordegren kostaði kylfinginn skildinginn. Svo illa kom skilnaðurinn við budduna hjá hinum moldríka Tiger að hann neyddist til þess að taka lán fyrir húsinu sem hann er að byggja.

Haraldur vann góðan sigur á Hellu
Haraldur Franklín Magnús úr GR tryggði sér sigur á Egils Gull-mótinu sem lauk á Hellu í dag. Mótið var lokamótið í Eimskipsmótaröðinni.

Hlynur Geir og Valdís Þóra unnu Eimskipsmótaröðina
Selfyssingurinn Hlynur Geir Hjartarson og Skagamærin Valdís Þóra Jónsdóttir unnu sigur á Eimskipsmótaröðinni í ár.

15 ára sigurvegari á Hellu
Hin 15 ára gamla Sunna Víðisdóttir stimplaði sig inn í íslenskt kvennagolf með eftirminnilegum hætti í dag er hún sigraði á Egils Gull-mótinu sem fram fór á Strandavelli á Hellu.

Guðmundur og Sunna leiða á Hellu
Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Sunna Víðisdóttir, bæði úr GR, leiða eftir fyrri daginn í lokamóti Eimskipsmótaraðarinnar en það fer fram á Strandavelli á Hellu.

Tiger missti flugið
Tiger Woods missti flugið á öðrum hring á Barclays-mótinu og datt úr toppsætinu niður í það fjórtánda.

Gamli, góði Tiger er kominn aftur
Það er greinilega þungu fargi létt af Tiger Woods að hafa klárað skilnaðarmálið sitt því hann lék eins og hann á að sér á Barclays-mótinu í gær.