Innlent
222 223 224 225 226 227 228 229 230 … 334 ›
Mikil aðsókn í neyðarskýli Mikil aðsókn hefur verið í neyðarskýli borgarinnar fyrir heimilislausa síðustu daga að sögn sviðsstjóra Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar. Hún segir að samningur við Samhjálp um dagdvöl fyrir heimilislausra renni út nú um mánaðamótin og þá taki við önnur úrræði ef þörf krefur. Innlent 29.3.2024 12:30
Próftökubann og refsingar fyrir svindlara Í nýju frumvarpi innviðaráðherra til breytinga á umferðarlögum er lagt til að brot á prófreglum í ökuprófi geti varðað sviptingu á próftökurétti í allt að sex mánuði, auk annarra mögulegra refsinga. Innlent 29.3.2024 12:20
Ákærður fyrir leynilega nektarmynd í Nauthólsvík Karlmaður hefur verið ákærður fyrir brot gegn kynferðislegri friðhelgi með því að taka myndir af öðrum manni þar sem hann baðaði sig nakinn í sturtuklefa Ylstrandarinnar í Nauthólsvík. Innlent 29.3.2024 11:39
Hádegisfréttir Bylgjunnar Mikil aðsókn hefur verið í Neyðarskýli borgarinnar fyrir heimilislausa síðustu daga. Samningur við Samhjálp um dagdvöl fyrir heimilislausa rennur út um mánaðamót og óvissa hvort hann verði framlengdur. Í hádegisfréttum á Bylgjunni verður rætt við sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar um stöðu mála. Innlent 29.3.2024 11:33
Hviður allt að 35 metrar á sekúndu og hætt við sandfoki Í nótt og framan af morgundeginum má á milli Kirkjubæjarklausturs og Hornafjarðar gera ráð fyrir staðbundnum snörpum strengjum í Norðaustur-átt. Innlent 29.3.2024 11:18
„Þetta er dagurinn til að skella sér á skíði“ Aðsókn í Bláfjöll var minni í gær en búast hefði mátt við í heiðríkjunni vegna nokkurs hvassviðris á svæðinu að sögn framkvæmdastjóra. Hann býst hins vegar við fjölmenni í dag og skorar á fólk að draga fram skíðin og mæta. Innlent 29.3.2024 11:01
Ógnaði dyraverði skemmtistaðar með hníf Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um aðila inni á skemmtistað að ógna dyraverði með hníf á þriðja tímanum í nótt. Innlent 29.3.2024 07:20
Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Erlent lýsisflutningaskip strandaði í Fáskrúðsfirði í dag. Verið var að sigla skipinu úr höfn þegar stýri þess bilaði á þriðja tímanum í dag. Skipið losnaði þó af strandstað fyrir eigin vélarafli. Innlent 28.3.2024 22:52
Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Stærsti gígurinn í eldgosinu við Grindavík líkist nokkuð öðrum og eldri gígum á Reykjanesskaga. Erfitt er að nálgast gígana eins og staðan er þessa dagana en nýjar drónamyndir varpa ljósi á hvernig þeir líta út. Innlent 28.3.2024 20:47
Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Sjúklingar þurfa ennþá að óska eftir tilvísun frá lækni vegna sjúkraþjálfunar þrátt fyrir að bæði heimilislæknar og sjúkraþjálfarar hafi bent á að kerfið sé úrelt. Formaður Félags sjúkraþjálfara vonar að kerfinu verði umbylt í vinnu sem nú stendur yfir í heilbrigðisráðuneytinu. Innlent 28.3.2024 20:01
Vélsleðamaður lenti í snjóflóði Björgunarsveitir á Húsavík og Aðaldal voru kallaðar út upp úr klukkan tvö í dag vegna vélsleðaslys. Þá var tilkynnt að maður á vélsleða hefði lent í snjóflóði og slasast. Innlent 28.3.2024 18:09
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sjúklingar þurfa ennþá að óska eftir tilvísun frá lækni vegna sjúkraþjálfunar þrátt fyrir að bæði heimilislæknar og sjúkraþjálfarar hafi bent á að kerfið sé úrelt. Í kvöldfréttunum verður rætt við formann Félags sjúkraþjálfara, sem vonar að kerfinu verði umbylt í vinnu sem nú stendur yfir í heilbrigðisráðuneytinu. Innlent 28.3.2024 18:00
Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri Fréttarinnar.is, er hætt við forsetaframboð. Hún stofnaði til meðmælalista fyrir fimm dögum síðan, en segir að sér hafi raunar ekki verið alvara með framboðinu. Innlent 28.3.2024 17:00
Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Þrátt fyrir að ferðamönnum hafi fjölgað um fjórðung síðustu tólf mánuði hefur orðið samdráttur í fjölda gistinótta og meðaleyðslu ferðamanna að sögn framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Þetta geti haft margvísleg neikvæð áhrif á þjóðarbúið. Mikilvægt sé að Íslandsstofa hefji aftur markaðssetningu á landinu. Innlent 28.3.2024 16:01
„Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Gosi Ragnarsson framkvæmdastjóri Superjeep harmar að starfsmenn fyrirtækisins séu sakaðir um að hafa hrakið burt fjölskyldu í norðurljósaleiðangri síðasta sunnudag. Innlent 28.3.2024 14:36
Aðstoða göngumann á Móskarðshnjúkum Björgunarsveitir aðstoða nú göngumann sem lenti í sjálfheldu á Móskarðshnjúkum. Viðkomandi er ekki slasaður. Innlent 28.3.2024 14:00
Íbúar Hlíða velta fyrir sér dularfullum hvelli Þónokkur fjöldi íbúa í Hlíðunum heyrði hvell sem líktist sprengingu í hverfinu. Slökkvilið og neyðarlína hafa engar fregnir fengið af málinu, Innlent 28.3.2024 13:37
Ísland sé í torfkofanum í meðferð alvarlegra atvika Hjúkrunarfræðingur telur að aðrar Norðurlandaþjóðir taki mun betur á alvarlegum atvikum í heilbrigðisþjónustu en gert sé hér á landi. Hún skorar á Landlækni að stíga fram fyrir hönd sjúklinga. Innlent 28.3.2024 13:32
Ný og glæsileg skólaþyrping byggð á Hellu Miklar framkvæmdir standa nú yfir á Hellu því þar er verið að byggja við grunnskóla staðarins og þá er ætlunin að byggja líka nýjan leikskóla. Íbúum á staðnum og í sveitarfélaginu öllu, Rangárþingi ytra er líka og fjölga og fjölga og nálgast nú óðfluga að verða tvö þúsund. Innlent 28.3.2024 13:30
Hamfaragámur Bónus tryggir kældan mat í neyðarástandi Svokallaður hamfaragámur hefur verið tekinn í gagnið við verslun Bónus í Njarðvík en búnaður í gámnum mun tryggja matvælaöryggi íbúa Suðurnesja ef til vatns- eða rafmagnsleysis kemur vegna eldgosa. Innlent 28.3.2024 12:08
Fullkomlega sáttur við ákvörðun sína en útilokar ekkert Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir að sér hafi ekki snúist hugur um að láta af embætti í sumar. Hann vill þó ekki útiloka að það geti breyst, komi upp ófyrirsjáanlegar aðstæður. Innlent 28.3.2024 12:05
„Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Maður sem lenti í bílslysi af völdum ofsaaksturs tveggja ökumanna í spyrnu segir mikla mildi að ekki fór verr. Kona sem ók á undan honum hafi að öllum líkindum afstýrt stórslysi. Innlent 28.3.2024 11:45
Hádegisfréttir Bylgjunnar Fyrrverandi hjúkrunarfræðingur telur að aðrar Norðurlandaþjóðir taki mun faglegar á alvarlegum atvikum í heilbrigðisþjónustu en tíðkist hér á landi. Hún skorar á Landlækni að stíga fram fyrir hönd sjúklinga. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 28.3.2024 11:30
Svipar til gamalla óupplýstra rána Þjófarnir tveir, sem taldir eru hafa stolið spilakassafé að andvirði hátt í þrjátíu milljóna króna á mánudagsmorgun, ganga enn lausir. Peningarnir eru þá enn ófundnir þó töskurnar sjö, sem þá geymdu, hafi fundist. Ránið er eitt nokkurra þaulskipulagðra rána í Íslandssögunni og eru nokkur líkindi með þeim. Innlent 28.3.2024 10:00
Sýknaður af ákæru um að hafa tekið í háls barns Maður var í gær sýknaður af ákæru um líkamsárás og barnaverndarlagabrot í Héraðsdómi Reykjaness. Honum var gefið að sök að hafa beitt barn líkamlegum refsingum og sýnt af sér ruddalega háttsemi í garð þess í sameiginlegu húsnæði þeirra að Ásbrú. Innlent 28.3.2024 09:51
Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um að múrsteini hefði verið kastað í glugga hótels í Reykjavík á fyrsta tímanum í nótt. Málið er í rannsókn. Innlent 28.3.2024 07:19
Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Fjölskylda sem ætlaði sér að horfa á norðurljósin á slóða rétt hjá Litlu kaffistofunni var rekin í burtu af starfsmönnum ferðaþjónustufyrirtækis. Mennirnir sökuðu fjölskylduna um að ónáða fólk sem hefði borgað dýrum dómi fyrir norðurljósaferð. Innlent 27.3.2024 22:18
Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Dómsmálaráðherra hefur lagt fram frumvarp sem ætlað er að auka kröfur á forsvarsmenn trúfélaga, lífsskoðunarfélaga, sjóða og stofnana varðandi utanumhald reksturs. Það regluverk sem gildir um slík félög hér á landi þykir skapa verulega hættu á peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Innlent 27.3.2024 21:41
Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Nú þegar páskarnir eru handan við hornið flykkjast Íslendingar í ferðalög. Á Keflavíkurflugvelli eru öll langtímastæði full þrátt fyrir að 300 hafi bæst við á síðustu dögum. Í Ártúnsbrekkunni síðdegis var stöðugur straumur bíla út á land. Innlent 27.3.2024 20:17
Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Lögregla leitar enn að tveimur þjófum sem stálu tugum milljóna króna úr bíl Öryggismiðstöðvarinnar í fyrradag. Þónokkrar vísbendingar hafa borist en lögregla virðist engu nær. Forstjóra Happdrættis Háskóla Íslands, sem á féð, er verulega brugðið og reiknar með að verklagi verði breytt vegna málsins. Innlent 27.3.2024 19:20