Útlendingastofnun tilkynnir starfsmanninn til lögreglu Lovísa Arnardóttir skrifar 7. janúar 2026 15:08 Forstjóri segir að brot á trúnaði verði ekki liðin innan stofnunarinnar. Vísir/Friðrik Útlendingastofnun hefur tilkynnt brot starfsmanns stofnunarinnar á persónuvernd og þagnarskyldu til lögreglunnar. Starfsmaðurinn deildi nöfnum skjólstæðinga í lokuðum hópi á Instagram. Í yfirlýsingu kemur fram að farið hafi verið yfir allar ákvarðanir starfsmannsins og ekki sé talið tilefni til að taka þær upp að nýju. „
Ég geri þá kröfu að starfsfólk Útlendingastofnunar standi undir þeirri ábyrgð sem fylgir meðhöndlun viðkvæmra persónuupplýsinga. Traustið sem skjólstæðingar okkar sýna okkur byggir á því, og ég vil vera skýr um að brot á trúnaði verða ekki liðin innan stofnunarinnar,“ segir Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, í yfirlýsingu á vef stofnunarinnar. Í yfirlýsingu á vef Útlendingastofnunar kemur fram að starfsmaðurinn hafi nú lokið störfum hjá stofnuninni og að öll mál sem hann kom að hafi verið tekin til skoðunar að nýju eftir að málið kom upp. Fyrst var fjallað um málið á vef Gímaldsins. „Við yfirferð umræddra mála kom ekkert fram sem gefur tilefni til að endurskoða eða taka upp að nýju ákvarðanir sem starfsmaðurinn hafði aðkomu að. Ekkert bendir heldur til þess að viðkomandi hafi áður viðhaft slíka háttsemi og gengur stofnunin út frá því að um einangrað tilvik sé að ræða,“ segir í yfirlýsingu stofnunarinnar. Farið yfir allar ákvarðanir Þar segir jafnframt að farið hafi verið yfir allar ákvarðanir sem viðkomandi starfsmaður hafði aðkomu að til að ganga úr skugga um að verkferlum sem eiga að tryggja gæði ákvarðana hafi verið fylgt í hvívetna. Það ferli feli meðal annars í sér, meðal annars, að allar stjórnvaldsákvarðanir stofnunarinnar hafi verið lesnar yfir og staðfestar af yfirmanni. „Við yfirferð umræddra mála kom ekkert fram sem gefur tilefni til að endurskoða eða taka upp að nýju ákvarðanir sem starfsmaðurinn hafði aðkomu að. Ekkert bendir heldur til þess að viðkomandi hafi áður viðhaft slíka háttsemi og gengur stofnunin út frá því að um einangrað tilvik sé að ræða,“ segir í yfirlýsingunni. Til skoðunar hjá Persónuvernd Þar kemur einnig fram að í samvinnu við persónuverndarfulltrúa stofnunarinnar hafi brotið verið tilkynnt sem öryggisbrestur til Persónuverndar og að ákvæðum um meðferð slíkra mála hafi verið fylgt til hins ítrasta. Persónuvernd hafi jafnframt hafið frumathugun á öryggi við vinnslu persónuupplýsinga hjá Útlendingastofnun í því skyni að afla upplýsinga og gagna til athugunar á því hvort tilefni sé til að hefja úttekt eða frumkvæðisathugun á vinnslunni. Að lokum kemur fram að Útlendingastofnun hafi við þetta tilefni brýnt fyrir starfsfólki sínu mikilvægi þess að gæta ítrustu varkárni við meðhöndlun þeirra gagna sem stofnuninni er treyst fyrir. „Stofnunin mun hér eftir sem hingað til leggja áherslu á að upplýsa og fræða starfsfólk sitt um rétta meðferð gagna og þær skyldur sem hvíla á starfsmönnum samkvæmt lögum og reglum,“ segir að lokum.
Stjórnsýsla Hælisleitendur Persónuvernd Innflytjendamál Mest lesið Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Enn ekkert spurst til Hákonar Innlent SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Fleiri fréttir Báðu um að fá að grafa upp Jónas Hallgrímsson Lítið breyst á fimmtán árum Flugmenn lagt fram fleytilausn og staðan sögð erfið Höggið verði mikið fyrir ríkisstjórnina segi þjóðin nei Engar vísbendingar um kvikusöfnun en ríflega sjö hundruð skjálftar Fleiri bitnir af hundunum Hagsmunir barna ágætlega tryggðir í „bagalegu óyndisúrræði“ „Þá þurfum við að gera miklu betur“ Flokkur fólksins mælist utan þings Skortur á aðstoð, mótmæli og höggstaður á ríkisstjórn Enn ekkert spurst til Hákonar Stærsti skjálfti á svæðinu síðan 2022 Mótmælendur trufluðu þingfund Má heita Freyjó og Sifjar en ekki Mikhael „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Myndataka í lágloftunum vekur athygli Grunaður barnaníðingur í varðhaldi á grundvelli almannahagsmuna Syngjandi dúx Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Segir Ragnar Þór afhjúpa vanþekkingu á skólastarfi Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Andlát á Hólmsheiði og skammtímasamningur á borðinu í flugdeilunni Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Á fimmta hundrað skjálftar mælst í hrinunni Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsbraut Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Engin Icelandair-þota sást á flugsýningunni Sjá meira