

John Andrews, þjálfari Víkings í Bestu deild kvenna í fótbolta, var nokkuð dapur í bragði þegar hann mætti í viðtal beint eftir 3-0 sigur sinna kvenna á FH í Kaplakrika.
FH fékk Víking í heimsókn í dag í 20. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Gestirnir enduðu með að vinna nokkuð sannfærandi og þægilegan sigur gegn bitlausu liði FH, lokatölur 0-3.
Chelsea hefur ákveðið að ráða forstjóra sérstaklega fyrir kvennalið félagsins en um er að ræða nýja stöðu innan félagsins. Það vekur athygli að manneskjan sem var ráðin hefur enga reynslu þegar kemur að því að reka knattspyrnufélag.
Erik ten Hag hefur svarað gagnrýni Portúgalans Cristiano Ronaldo á hans störf sem þjálfara Manchester United.
„Við héldum að þetta væru elliglöp um tíma, en svo fer maður að átta sig á að þetta er eitthvað annað því að karakterinn fer að breytast,“ segja börn KR-ingsins mikla Ellerts B. Schram, sem glímir við Alzheimer-sjúkdóminn. Stórleikur KR og Víkings á morgun, í Bestu deild karla í fótbolta, er til styrktar Alzheimer-samtökunum.
Olivier Létang, formaður franska knattspyrnufélagsins Lille, segir að koma Portúgalans André Gomes til félagsins sé ekki hugsuð til þess að fylla í skarðið fyrir Hákon Arnar Haraldsson.
Réttarhöld vegna 115 ákæra ensku úrvalsdeildarinnar á hendur Manchester City vegna meintra fjármálabrota hefst á mánudaginn. City er sakað um að hafa brotið reglur um útgjöld. Félagið hafi ekki veitt nákvæmar upplýsingar á níu ára tímabili, auk þess að hnekkja reglum UEFA um fjárhagslega háttvísi.
Enska knattspyrnusambandið hefur kært Rodrigo Bentancur, miðjumann Tottenham, vegna rasískra ummæla um liðsfélaga hans, Son Heung-min, í sumar. Hann gæti fengið langt bann.
Mauricio Pochettino er á engum sultarlaunum sem þjálfari bandaríska karlalandsliðsins í fótbolta.
Mexíkóski kantmaðurinn César „Chino“ Huerta var að eigin sögn mjög nálægt því að ganga til liðs við Liverpool í sumar.
Argentínski landsliðsmarkvörðurinn Emiliano Martínez kom sér í vandræði eftir tapið á móti Kólumbíu í undankeppni HM.
Markvörðurinn margreyndi Shay Given kennir sinnuleysi stjórnenda írska knattspyrnusambandið um þá stöðu sem írska karlalandsliðið í fótbolta er í, og kennir í brjósti um nýja þjálfarann Heimi Hallgrímsson.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta hefst í næstu viku en keppnin fer að þessu sinni fram með nýju og gjörólíku fyrirkomulagi. Kjartan Atli Kjartansson og sérfræðingar hans hituðu upp fyrir Meistaradeildartímabilið í sérstökum upphitunarþætti sem má nú sjá inn á Vísi.
Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings, virðist ekki parsáttur við skrif Pawels Bartoszek, varaborgarfulltrúa Viðreisnar, á Vísi í gær. Pawel birti skoðanapistil þar sem hann veltir upp vandræðum Víkinga vegna þátttöku þeirra í Sambandsdeild Evrópu, kröfurnar sem fylgja og kostnaðinn sem það ber í för með sér fyrir skattgreiðendur.
Cristiano Ronaldo þekkir það vel að spila fyrir Manchester United þegar félagið var meðal þeirra bestu í Evrópu en líka það að spila undir stjórn Hollendingsins Erik ten Hag. Hann gagnrýnir gamla stjórann sinn og gamla félagið sitt í nýjum hlaðvarpsþætti.
Erling Braut Haaland glímir við mikla sorg þessa dagana en norski framherjinn minntist góðs vinar síns á samfélagsmiðlum í gær.
Mikel Arteta hefur framlengt samning sinn sem knattspyrnustjóri Arsenal en þetta kemur fram í frétt hjá The Athletic.
Sheffield United leikmaðurinn Anel Ahmedhodzic er búinn að fá sig fullsaddan af föður sínum og vill ekkert með hann hafa lengur.
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United gefið út að félagið hafi verið rekið með tapi sem nemur 20 milljörðum króna síðasta árið. Þrátt fyrir það segjast forráðamenn félagsins að það standist fjárhagsreglugerðir ensku úrvalsdeildarinnar og knattspyrnusambands Evrópu.
Son Jun-ho er einn þeirra sem hefur verið dæmur í lífstíðarbann frá kínverskum fótbolta. Hann hélt hins vegar blaðamannafund í gær og sagði frá sinni hlið á málinu.
Lokaumferð deildarkeppni Lengjudeildar karla í knattspyrnu fer fram á laugardag og getur ÍBV með sigri á Leikni Reykjavík í Breiðholti tryggt sér sigur í deildinni og þar með sæti í Bestu deildinni að ári. Nú hefur ferðin verið gerð talsvert ódýrari fyrir Eyjafólk í von um að stuðningurinn hjálpi liðinu að tryggja sætið.
Jonathan Tah, fyrirliði Bayer Leverkusen, verður samningslaus næsta sumar og er miðvörðurinn gríðarlega eftirsóttur.
Enzo Fernández, fyrirliði Chelsea á Englandi og landsliðsmaður Argentínu, má ekki keyra næstu sex mánuðina þar sem hann hefur verið sviptur ökuréttindum sínum. Þá þarf hann að borga sekt upp á 3020 pund eða rúmlega hálfa milljón íslenskra króna.
Miðjumaðurinn efnilegi Harvey Elliott verður frá keppni næstu vikurnar en hann braut bein í fæti í landsliðsverkefni með U-21 árs landsliði Englands á dögunum. Talið er að hann verði frá næstu sex vikurnar eða svo.
Þjálfari Hollands Ronald Koeman sagðist hafa verið að vernda Matthijs de Ligt, sem gekk nýverið í raðir Manchester United, þegar varnarmaðurinn var tekinn af velli í hálfleik gegn Þýskalandi í Þjóðadeildinni.
Örebro er komið áfram í sænsku bikarkeppni kvenna í knattspyrnu eftir öruggan 4-1 útisigur á Mallbacken. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir var á skotskónum fyrir Örebro.
Norðmaðurinn Martin Ødegaard verður frá í þrjár vikur í það minnsta. Hann meiddist á ökkla í landsleik Norðmanna gegn Austurríki í Þjóðadeildinni en Noregur vann leikinn 2-1.
Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður Breiðabliks í Bestu deild karla, deildi færslu á samfélagsmiðlinum X sem hefur vakið athygli. Meining færslunnar er þó óljós.
Eftir að hafa bæði verið þjálfarar hjá Chelsea hafa þau Emma Hayes og Mauricio Pochettino nú endurnýjað kynni sín sem landsliðsþjálfarar hjá Bandaríkjunum.
Böðvar Böðvarsson, leikmaður FH, bjóst við því að fara í leikbann vegna átaka hans og Guðmundar Kristjánssonar, leikmanns Stjörnunnar, á dögunum en í dag kom í ljós að svo verður ekki. Þrátt fyrir það segir hann rétta niðurstöðu að hann sleppi við bannið.