HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júní 2026 09:00 Lilian Thuram var borinn um á hástól af liðsfélögum sínum í leikslok. Getty/Jerome Prevost Það voru margar hetjur þegar Frakkar urðu heimsmeistarar í fyrsta sinn sumarið 1998. Ein af þeim óvæntu sá til þess að þeir fengu tækifæri til að spila til úrslita um heimsmeistaratitilinn. Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir sjö daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur HM karla.
Frakkar unnu 2-1 sigur á Króatíu í undanúrslitaleiknum á HM í Frakklandi 1998 og urðu svo heimsmeistarar eftir 3-0 sigur á Brasilíu í úrslitaleiknum. Zinedine Zidane skoraði tvö mörk í úrslitaleiknum og Thierry Henry var markahæstur í franska liðinu á mótinu með þrjú mörk. Það var þó leikmaður sem spilaði miklu aftar á vellinum og var þekktur fyrir að skora næstum því aldrei sem sá til þess að Frakkar fengu að upplifa það að spila þennan úrslitaleik á heimavelli. Franski varnarmaðurinn Lilian Thuram skoraði aðeins í einum af 142 leikjum sínum fyrir Frakkland – og það ótrúlega var að maðurinn, sem var á því tímabili að skora aðeins eitt mark á ellefu keppnistímabilum í öllum keppnum með félagsliðum, skoraði tvö mörk í sama leiknum. 🇫🇷 Lilian Thuram scored just twice for France in a record 142 games.🤯 It just so happened that both goals were scored in the semi-final of the 1998 World Cup.Happy birthday, Lilian! 🎂 pic.twitter.com/1q6mBzhyVm— Football Tweet ⚽ (@Footballtweet) January 1, 2026 Hægri bakvörðurinn valdi svo sannarlega fullkomna stund til að bregða sér í hlutverk markaskorara. Thuram skoraði eitt mark með hægri fæti og eitt með vinstri til að tryggja franska landsliðinu 2-1 endurkomusigur á Króatíu. Davor Suker hafði komið spútnikliði Króata yfir en Thuram jafnaði aðeins mínútu síðar. Hann skoraði síðan sigurmarkið tuttugu mínútum fyrir leikslok. „Móðir mín var í stúkunni,“ sagði Thuram. „Það var sagt við hana að sonur hennar hefði skorað fyrra markið – hún gat ekki skilið það. Þegar henni var sagt að ég hefði skorað aftur þá leið yfir hana. Ég er ekki að grínast,“ sagði Lilian Thuram. Það er skondið til þess að hugsa að þegar Frakkar mættu Paragvæ í 16-liða úrslitum buðu veðbankar stuðulinn 40/1 á að Thuram myndi skora hvenær sem er í leiknum – meira en sex og hálfu sinnum hærri stuðul en á markvörð andstæðinganna, Jose Luis Chilavert (6/1). Markvörðurinn Chilavert var þekktur fyrir að skora en hann skoraði átta mörk fyrir landslið Paragvæ og 67 mörk á atvinnumannaferlinum. Lilian Thuram lék 490 leiki með liðum sínum á Ítalíu (Parma og Juventus) og Spáni (Barcelona) á ferlinum og skoraði í aðeins tvö mörk eða jafnmörg og þetta eina júlíkvöld á Stade de France. 🇫🇷 Halbfinal-Held, Weltmeister: Lilian #Thuram ⚽ ⚽#OTD #FIFAWorldCup 1998— FIFA Fussball-Weltmeisterschaft (@fifaworldcup_de) July 8, 2023
HM 2026 í fótbolta Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira