Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ágúst Orri Arnarson skrifar 4. júní 2026 18:34 Andoni Iraola er nýr stjóri Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Andrew Powell/Liverpool FC via Getty Images Andoni Iraola er formlega tekinn við störfum sem aðalþjálfari Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Hann kemur til félagsins frá Bournemouth og gerir tveggja ára samning.
Ráðning Iraola hefur verið yfirvofandi síðan Arne Slot var rekinn úr starfinu um helgina. Hann var sagður fyrsti valkostur stjórnarmanna Liverpool og nú er ráðningin frágengin. Iraola flaug frá heimahéraðinu San Sebastian á Spáni í dag og gekk frá undirskrift. Hann gerir tveggja ára samning, sem er öllu styttra en tíðkast, að eigin ósk. We can confirm Andoni Iraola has agreed a deal to become the club’s new head coach ahead of the 2026-27 season 🤝— Liverpool FC (@LFC) June 4, 2026 Iraola hefur stýrt Bournemouth með góðum árangri síðustu þrjú tímabil og skildi við liðið í sjötta sæti á síðasta tímabili, sem skilaði sæti í Evrópudeildinni. Talið er að stjórnarmenn Liverpool hafi hrifist af fótboltanum sem lið undir hans stjórn hafa spilað. Sá bolti er sagður líkari „þungarokksfótboltanum“ sem Mohamed Salah kallaði eftir í opinberri gagnrýni sinni á fyrrum þjálfarann Arne Slot. Enn er óljóst hvernig þjálfarateymið í kringum Iraola mun líta út. Það ferli er í vinnslu en talið er að Liverpool vilji fá nokkra af aðstoðarmönnum Iraola hjá Bournemouth yfir til félagsins. Liverpool varð Englandsmeistari árið 2025, á fyrsta tímabilinu undir stjórn Arne Slot. Félagið fór hins vegar í gegnum síðasta tímabil án titils. Iraola stefnir á að bæta bikurum í skápana. Nikki Dyer - LFC/Liverpool FC via Getty Images „Ég er mjög spenntur, mjög spenntur,“ sagði Iraola við Liverpoolfc.com. „Augljóslega veit maður allt um Liverpool, þetta er stórt félag, risastórt félag, eitt af þeim stærstu í heimi. Ég hlakka til að finna það að innan og skilja þetta félag aðeins betur, ég hef alltaf litið á það sem sérstakt félag. „Það þarf ekki mikið til að laðast að Liverpool. Liverpool er Liverpool. Andrúmsloftið, stuðningsmennirnir, félagið, leikmennirnir, tækifærið fyrir mig til að þjálfa leikmenn í hæsta gæðaflokki, tækifærið til að berjast um titla. Ég held að þetta geti ekki verið meira aðlaðandi. Það er erfitt að finna það. Svo, ég er mjög spenntur fyrir því að byrja.“
Liverpool FC Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Sjá meira