
Bíó og sjónvarp

Louise Fletcher er látin
Bandaríska leikkonan góðkunna, Louise Fletcher er látin, 88 ára að aldri. Fletcher var einna þekktust fyrir hlutverk sitt sem hjúkrunarfræðingurinn Ratched í kvikmyndinni Gaukshreiðrinu, eða One Flew Over the Cuckoo‘s Nest, frá árinu 1975.

Horfðist í augu við eigin fordóma um Veru við gerð myndarinnar
Tizza Covi og Rainer Frimmel verða viðstödd sýningunni á Veru á RIFF í næstu viku. Eins og fram hefur komið hér á Vísi er verðlaunamyndin Vera opnunarmynd hátíðarinnar í ár.

Sýna gamanmynd með Will Ferrell í bílabíóinu í ár
Bílabíó RIFF verður haldið laugardaginn 24. september kl. 19, í samstarfi við fjármögnunarfyrirtækið Ergo. Risastóru bíótjaldi verður komið fyrir á efra bílastæðaplani við verslunarmiðstöðina Smáralind þar sem tekið verður vel á móti bíó þyrstum bílstjórum og vinum þeirra.

Gamla gengið sameinað á ný í „Beverly Hills Cop: Axel Foley“
Fjórða myndin í Beverly Hills Cop seríunni, „Beverly Hills Cop: Axel Foley“ er í framleiðslu hjá Netflix. Leikararnir Eddie Murphy, Judge Reinhold, John Ashton og Bronson Pinchot komi saman á ný í þessari væntanlegu viðbót við seríuna. Síðasta mynd seríunnar kom út árið 1994.

Fyrsta sýnishornið úr Sumarljós og svo kemur nóttin
Lokamynd RIFF í ár er kvikmyndin Sumarljós og svo kemur nóttin. Leikstjóri og handritshöfundur er Elfar Aðalsteins. Myndin er byggð á skáldsögu Jóns Kalman Stefánssonar sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2006.

Áhugi Íslendinga á evrópskum þáttaröðum hefur stóraukist
Efnisveitan Stöð 2+ hefur samið við þjónustuna Kritic sem eykur úrval þáttaraða á hinum ýmsu tungumálum eins og til dæmis frönsku, dönsku, norsku, ítölsku, spænsku, pólsku og þýsku. Áhugi Íslendinga á evrópsku efni hefur stóraukist síðustu misseri.

Dýrið sankaði að sér verðlaunum
Það er óhætt að segja að kvikmyndin Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar hafi verið sigurvegari kvöldsins á Edduverðlaununum þetta árið en myndin hlaut alls 12 verðlaun. Þar á meðal hlaut myndin verðlaun fyrir handrit og leikstjórn ársins en myndin var einnig valin kvikmynd ársins.

Ævi og ferill Whitney Houston til sýnis í væntanlegri kvikmynd
Fyrsta stikla kvikmyndarinnar „I Wanna Dance With Somebody“ sem byggð er á lífi og starfi söngkonunnar Whitney Houston hefur litið dagsins ljós. Í stiklunni má sjá búta af leiðinni sem Houston fór að þeirri gríðarlegu frægð sem umkringdi feril hennar og mikilvæg augnablik úr hennar einkalífi.

Spartverjar á Íslandi
Paramount birti í gærkvöldi mynd af Spartverjum á Íslandi og sagði að tökur á annari þáttaröð sjónvarpsþáttanna Halo, sem byggja á samnefndum tölvuleikjum, væru hafnar. Myndin sýnir fjóra Spartverja í fullum skrúða við Kvernufoss.

Vera opnar RIFF í ár
Verðlaunamyndin Vera er opnunarmynd RIFF í ár. Vera Gemma leikur sjálfa sig í titilhlutverki myndarinnar en hún hlaut um helgina verðlaun sem besta leikkonan á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum, elstu kvikmyndahátíð í heiminum.

Zendaya, Jung-jae, Lizzo og Keaton sigursæl í gær
Í nótt fór Emmy-verðlaunahátíðin fram í 74. skiptið. Það var grínistinn Kenan Thompson sem sá um að kynna hátíðina sem var haldin í Microsoft-leikhúsinu í Los Angeles.

Saga af átökum fjölskyldu úr íslenskum samtíma
Tökur eru að hefjast á sjónvarpsþáttaseríunni Heima er best. Heima er best er karakterdrifin sex þátta sería frá Tinnu Hrafnsdóttur leikkonu og leikstjóra. Þættirnir fara í sýningu á næsta ári.

Stiklur fyrir Múfasa , Litlu hafmeyjuna og Hókus Pókus 2 frumsýndar
Um helgina hefur Disney verið með kynningu á öllu því efni sem er væntanlegt frá framleiðandanum á næstu misserum. Leikin útgáfa af Litlu hafmeyjunni, kvikmynd um Múfasa úr Konungi ljónanna og framhald af nornunum í Hókus Pókus er meðal þess sem er væntanlegt.

Þrjár nýjar Star Wars stiklur frumsýndar
Disney frumsýndi í gær þrjár stiklur fyrir Star Wars sjónvarpsþætti sem eru væntanlegir á streymisveituna Disney+ á næstunni.

Stikla fyrir nýja „Knives Out“ ráðgátu: Benoit Blanc er mættur aftur
Ný stikla hefur litið dagsins ljós vegna nýju „Knives Out“ kvikmyndarinnar. Myndin er í leikstjórn Rian Johnson.

Innblásturinn að gamanhrollvekju kom frá vídeoleigu bæjarins
„Myndin upphefur þessar undarlegu hrollvekjur og B-myndir en í senn gerir grín af minnum hefðarinnar,“ segir leikarinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Bent Kingo Andersen um hrollvekju gamanmyndina It hatched. Myndin verður forsýnd hér á landi í dag.

Hljóta heiðursverðlaun RIFF 2022 fyrir framúrskarandi listræna sýn
Kvikmyndaleikstjórarnir Albert Serra og Alexandre O. Philippe fá heiðursverðlaun RIFF í ár. Leikstjórarnir tveir verða staddir á Íslandi við upphaf hátíðarinnar þann 29. september, en hún stendur til 9. október.

RIFF setur frumbyggja í sviðsljósið
RIFF hefur kynnt til leiks nýjan flokk stuttmynda í ár, sem setur frumbyggja í sviðsljósið.Úr þessum flokki tala stuttmyndirnar til heimsbyggðarinnar allrar en þær koma frá stöðum sem í dag nefnast Svíþjóð, Grænland, Bandaríkin og Mexíkó.

Brendan Fraser felldi tár eftir frumsýningu Hvalsins
Aðstandendur kvikmyndarinnar The Whale hlutu átta mínútna lófaklapp eftir frumsýningu myndarinnar á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Tilfinningarnar báru Brendan Fraser, aðalleikara myndarinnar, ofurliði og varð hann klökkur yfir viðbrögðum fólks.

Loka á umsagnir um Rings of Power vegna trölla
Svo virðist sem að neikvæðum umsögnum rigni yfir þættina Rings of Power frá Amazon, sem byggja á Hringadróttinssögu J.R.R Tolkien og öðrum bókum hans. Gagnrýnendum lýst ágætlega á þættina og er meðaleinkunn þeirra á Rotten Tomatoes 84 prósent. Meðaleinkun frá áhorfendum er þó 36 prósent.

Munu standa að gerð Áramótaskaupsins í ár
Dóra Jóhannsdóttir mun leikstýra Áramótaskaupinu í ár og Saga Garðarsdóttir verður yfirhöfundur þess.

Vekja athygli á hryllingi Norðurskautsins
RIFF kvikmyndahátíðin beinir sérstakri athygli að vaxandi vinsældum hryllingsmynda frá samfélögum Inúíta í ár. RIFF Flokkurinn, Inúítahryllingsmyndir og stuttmyndir, tekur til fjölda mynda og stuttmynda sem snúa að lífsaðstæðum við margslungið og hættulegt umhverfi.

Karókí Paradís tilnefnd til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna
Evrópska kvikmyndaakademían var rétt í þessu að tilkynna um tilnefningu heimildamyndarinnar Karókí paradísar, í leikstjórn Einari Paakkanen, til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna í ár. Verðlaunahátíðin verður haldin í Hörpu í desember komandi.

Veitingastaðareigandinn úr Beverly Hills er látinn
Joe E. Tata, sem lék Nat, eiganda Peach Pit veitingastaðarins, í sjónvarpsþáttunum Beverly Hills, 90210, er látinn. Tata var orðinn 85 ára gamall en hafði glímt við Alzheimer frá árinu 2014.

House of Dragon slær áhorfsmet hjá HBO
Þættirnir House of the Dragon virðast fara gífurlega vel af stað og hafa þættirnir þegar slegið nokkur áhorfsmet hjá HBO. Fyrsti þáttur HOD braut frumsýningarmet fyrirtækisins bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu.

Of Monsters and Men myndin Tíu verður Íslandsfrumsýnd á RIFF
Heimildamyndin Tíu, um hljómsveitina Of Monsters And Men, verður frumsýnd á Íslandi á RIFF í haust. Hátíðin fer fram 29. september til 6. október.

Sigurlíkur Íslands tvisvar sinnum meiri í ár
Fimm kvikmyndir eru tilnefndar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2022 sem fagna 20 ára afmæli í ár. Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar er fulltrúi Íslands í ár og berst meðal annars um nafnbótina við Volaða land, kvikmynd í leikstjórn Hlyns Pálmasonar, sem er fulltrúi Danmerkur.

Ritskoðendur í Kína breyttu endinum á Skósveinunum: Gru rís upp
Ritskoðendur í Kína breyttu endinum á teiknimyndinni Skósveinunm: Gru rís upp. Ritskoðunin er enn eitt dæmi þess að yfirvöld í Kína breyti Hollywood-myndum eða ritskoði þær fyrir innlendan markað.

The Truman Show sýnd í Sundhöllinni
Sundbíóið í gömlu innilauginni í Sundhöll Reykjavíkur hefur sannarlega unnið sér fastan sess sem einn af vinsælustu sérviðburðum RIFF. Í ár hefur verið ákveðið að sýna kvikmyndina The Truman Show á hátíðinni.

Hin spænska Rossy de Palma heiðursgestur RIFF í ár
Nú hefur verið tilkynnt að hin skrautlega Rossy de Palma er heiðursgestur RIFF í ár og hátíðin beinir sérstöku kastljósi að spænskri kvikmyndagerð. RIFF fer fram 29. september til 9. október.