Fréttir
86 87 88 89 90 91 92 93 94 … 334 ›
Hægir suðvestanvindar og yfirleitt bjartviðri Hæðarhryggur er nú yfir landinu sem þokast norðaustur og má yfirleitt reikna með hægum suðvestanvindum, en kalda og sums staðar strekkingi á Vestfjörðum. Veður 19.9.2024 07:05
Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segis sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa fanga með erlendan ríkisborgararétt, sérstaklega þá sem koma hingað til lands til þess eins að fremja afbrot. Innlent 19.9.2024 06:45
20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Að minnsta kosti 20 létust og 450 særðust þegar talstöðvar liðsmanna Hezbollah sprungu í borgum Líbanon í gær, degi eftir að tólf létust og 2.800 særðust þegar sama gerðist með símboða. Erlent 19.9.2024 06:34
Benedikt Sveinsson er látinn Benedikt Sveinsson, athafnamaður, lögmaður og faðir forsætisráðherra er látinn 86 ára að aldri. Innlent 19.9.2024 05:59
Endalaus þrautaganga Haraldar eftir svörum Haraldur Ingi Þorleifsson, frumkvöðull og baráttumaður, lýsir þrautagöngu sinni við það að fá svör um notendastýrða persónulega aðstoð, eða NPA. Biðlistar eftir þjónustunni eru langir, þrátt fyrir að hún sé lögbundinn. Hann gagnrýnir stjórnvöld harðlega. Innlent 18.9.2024 23:18
Höfuðstöðvar nýrrar ríkisstofnunar verða á Hvolsvelli Mikil tilhlökkun og ánægja er á Hvolsvelli með þá staðreynd að höfuðstöðvar nýrrar ríkisstofnunar, Náttúruverndarstofnunar verði á staðnum og skapi þannig nokkur ný störf. Nýja stofnunin tekur til starfa um næstu áramót. Innlent 18.9.2024 22:02
„Afleitt“ að sjá Yazan gerðan að leiksoppi í deilum ráðherra Formaður Miðflokksins segir miður að Yazan Tamimi, ellefu ára palestínskur drengur með vöðvarýrnunarsjúkdóminn Duchenne, hafi orðið að bitbeini í pólistíkum deilum ráðherra í ríkisstjórninni. Hann telur hagsmuni hans hafa verið hafða að leiðarljósi við meðferð máls hans í stjórnkerfinu og furðar sig á misvísandi fullyrðingum ráðherra um hvort eðlileg stjórnsýsla hafi verið viðhöfð í málinu. Innlent 18.9.2024 21:33
Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Vitorðsmaður Dominique Pelicot, sem er ákærður fyrir að byrla eiginkonu sinni Gisele ólyfjan og fá tugi manna til að nauðga henni ítrekað á tíu ára tímabili, sagði fyrir dómi í Frakklandi í dag að hann hefði einnig byrlað konu sinni og fengið menn til að nauðga henni. Erlent 18.9.2024 21:11
Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi Velgengni Loftleiða í Norður-Atlantshafsfluginu hófst fyrir alvöru með DC 6B-flugvélum. Það voru hins vegar Rolls Royce 400-skrúfuþoturnar, CL-44, eða monsarnir, sem gerðu Loftleiðir að stórveldi í íslensku efnahagslífi. Innlent 18.9.2024 19:44
„Engar líkur á öðru en að þau endi á að fá alþjóðlega vernd“ Jón Sigurðsson, lögmaður og formaður félags talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd, telur allar líkur á því að Yazan Tamimi og fjölskylda hans fái að vera áfram hér á landi. Innlent 18.9.2024 19:32
Sjálfstæðismenn í borginni vilja samræmd próf aftur Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í gær að vísa til skóla- og frístundaráðs tillögu Sjálfstæðisflokks þess efnis borgin færi þess á leit við menntamálaráðherra að samræmd próf yrðu tekin upp að nýju í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla. Skólayfirvöld í borginni vinna með menntamálaráðuneytinu að námsmati sem ætlað er að leysa samræmd próf af hólmi. Innlent 18.9.2024 18:45
Yazan fær efnismeðferð og talstöðvar sprengdar Yazan Tamimi, ellefu ára palestínskur drengur með vöðvahrörnunarsjúkdóminn Duchenne, og fjölskylda hans verða ekki flutt af landi brott fyrir laugardag. Þau munu þá geta krafist efnislegrar meðferðar á máli sínu. Innlent 18.9.2024 18:10
Ekki séð ástæðu til að leggjast gegn framgangi samgöngusáttmálans Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í borginni, hefði ekki greitt atkvæði gegn afgreiðslu samgöngusáttmálans ef hún hefði verið viðstödd borgarstjórnarfund í gær. Innlent 18.9.2024 17:39
„Vottunin verið kölluð láglaunavottun af gárungunum“ Diljá Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, notaði tækifærið á alþjóðlega jafnlaunadeginum, sem er í dag, til að fara hinum háðulegustu orðum um hina séríslensku jafnlaunavottun. Hún sagði jafnlaunavottunina kostnaðarsama og vitagagnslausa. Innlent 18.9.2024 16:47
Yazan ekki fluttur úr landi og fær efnismeðferð Yazan Tamimi og fjölskylda verða ekki flutt úr landi fyrir laugardag og munu því öðlast rétt til efnislegrar meðferðar á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi. Innlent 18.9.2024 16:33
Fólk hafi samband við lögreglu í stað þess að deila sögum á netinu Maðurinn sem grunaður er um að hafa banað tíu ára dóttur sinni á sunnudag var yfirheyrður nú síðdegis. Yfirlögregluþjónn hvetur fólk sem hefur haldbærar upplýsingar, sem hafi þýðingu fyrir rannsókn málsins, til að koma með þær til lögreglu. Þar eigi þær heima, en ekki í sögusögnum sem gangi manna á milli á internetinu. Innlent 18.9.2024 16:21
Segja ummæli Quang Le tilhæfulaus og ósönn Alþýðusamband Íslands sakar athafnamanninn Quang Le um rógburð í viðtali á Mbl.is þar sem hann vegi að einstökum starfsmönnum. Ummælin séu að öllu leyti tilhæfulaus og ósönn. Lögregla segir að viðamikilli rannsókn á málinu miða vel. Innlent 18.9.2024 15:19
Þrír handteknir eftir skotárás við skóla í Osló Þrír hafa verið handteknir eftir skotárás við skóla í Groruddalen, norðaustur af Osló. Norska lögreglan leitar enn að einum einstaklingi sem er talinn hafa særst í árásinni. Erlent 18.9.2024 15:06
Talstöðvar springa einnig í Beirút Degi eftir að fjölmargir símboðar í notkun meðal meðlima Hezbollah-samtakanna í Líbanon og Sýrlandi sprungu, gerðist það sama með talstöðvar þeirra. Sprengingar hafa átt sér stað víðsvegar um Beirút og annarsstaðar í Líbanon. Erlent 18.9.2024 14:37
Grænt ljós á Ekkó en ekki Baldr Mannanafnanefnd hefur samþykkt beiðnir um karlkynseiginnöfnin Ekkó og Milan og kvenkynseiginnöfnin Dúrra, Hafsól, Imba, Melía, Marselín og Sisa. Innlent 18.9.2024 14:32
Harris eykur forskotið á landsvísu Útlit er fyrir að staða Kamölu Harris, varaforseta Bandaríkjanna, hafi batnað eilítið á landsvísu í Bandaríkjunum eftir kappræðurnar milli hennar og Donalds Trump. Samkvæmt meðaltali kannana hefur fylgi hennar aukist um 0,4 prósentustig og eru líkur hennar á sigri taldar meiri en nokkru sinni áður. Erlent 18.9.2024 14:16
Sjúklingurinn þurfi að vera með í allri ákvörðunartöku Talskona sjúklinga á Landspítala segir of algengt að umkvörtunum og ábendingum sjúklinga sé ekki nógu vel tekið í heilbrigðiskerfinu. Heilbrigðisstarfsfólk þurfi að venja sig á að hlusta á skjólstæðinga sína og leyfa þeim að taka þátt í allri ákvörðunartöku um meðferð. Innlent 18.9.2024 14:03
Skipuð forstjóri Náttúrufræðistofnunar Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur skipað Eydísi Líndal Finnbogadóttur í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar. Innlent 18.9.2024 14:00
Tileinkuðu söng við heilbrigðisráðuneytið Yazan Samstöðukór fyrir frjálsri Palestínu kom saman og söng fyrir utan Heilbrigðisráðuneytið í morgun. Kórinn vakti athygli á stöðu heilbrigðismála í Palestínu í yfirlýsingu sinni og tileinkaði sönginn Yazan Tamimi, ellefu ára langveika drengnum sem enn stendur til að vísa úr landi. Heilbrigðisráðherra hlýddi ekki á sönginn. Innlent 18.9.2024 13:37
Þverár Amasonfljóts þorna upp sem aldrei fyrr Vatnsstaða í mörgum þverám Amasonfljóts er nú lægri en nokkru sinni hefur mælst áður af völdum langvarandi þurrks. Sumar ár sem voru áður siglanlegar hafa jafnvel þornað alveg upp. Fjöldi þorpa hefur einangrast því ekki er lengur hægt að sigla þangað. Erlent 18.9.2024 13:32
Eigin sannfæring útskýri sögulegan klofning Sjálfstæðismanna Borgarstjóri segir að uppfærður samgöngusáttmáli muni með tíð og tíma leiða til þess að auðveldara verður fyrir borgarbúa að komast leiðar sinnar. Sáttmálinn var samþykktur í gær en Sjálfstæðisflokkurinn var þríklofinn í afstöðu sinni. Borgarfulltrúi flokksins sem sat hjá við afgreiðslu segir að þau hafi viljað leyfa sér að standa með eigin sannfæringu. Innlent 18.9.2024 13:28
Lykilatriði að ræða við börnin og halda sig við staðreyndir Prestar, ráðgjafar, aðilar frá Rauða krossi Íslands auk stjórnenda í Rimaskóla ræddu við nemendur í skólanum fyrir hádegi um andlát nemanda í 5. bekk skólans. Skólastjórnendur segja lykilatriði fyrir foreldra að taka samtalið við börn sín og halda sig aðeins við staðreyndir. Innlent 18.9.2024 13:13
Telur íslenska stjórnsýslu hafa brotið lög í máli Yazan Hinn ellefu ára Yazan Tamimi frá Palestínu er mjög skelkaður eftir aðgerðir lögreglu aðfararnótt mánudags, þegar vísa átti honum og fjölskyldu hans úr landi. Lögmaður fjölskyldunnar telur að íslensk yfirvöld hafi brotið lög við málsmeðferð og framkvæmd í máli fjölskyldunnar. Öryggi hans er talið betur borgið á Barnaspítalanum en í Rjóðrinu. Innlent 18.9.2024 12:21
Lögregla komin með ágæta mynd af atburðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu telur sig vera komna með ágæta mynd af atburðum í tengslum við andlát tíu ára stúlku sem fannst látin í Krýsuvík á sunnudagskvöld. Faðir stúlkunnar, sem grunaður er um að hafa ráðið henni bana, hefur ekki verið yfirheyrður síðan á sunnudag. Innlent 18.9.2024 12:17
Hafa auglýst stöðu sveitarstjóra lausa til umsóknar Sveitarfélagið Múlaþing hefur auglýst stöðu sveitarstjóra lausa til umsóknar og gert gert ráð fyrir að nýr sveitarstjóri muni taka við um næstu áramót. Innlent 18.9.2024 12:08