Fréttir

Mögulega mistök eins forritara
Forstjóri netöryggisfyrirtækisins Syndis segir að stórtækt hrun tölvukerfa í dag sé sennilega stærsta tækniáfall sem heimurinn hafi nokkurn tímann séð. Umhugsunarvert sé að samfélög hafi sett öll eggin í sömu körfuna þegar kemur að hugbúnaði og mögulega hafi mistök eins starfsmanns haft keðjuverkandi áhrif um allan heim.

„Við erum ekki eitthvað hyski“
Íbúar í hjólhýsabyggð á Sævarhöfða segja afstöðu borgarstjóra vera fordómafulla og kalla eftir því að þeim verði komið fyrir á viðunandi stað. Núverandi fyrirkomulag ógni lífi þeirra og heilsu

97 ára og gerir við dvergastyttur og málar þær í Eyjum
Eitt það allra skemmtilegasta sem Palli í Mörk eins og hann er alltaf kallaður í Vestmannaeyjum gerir er að mála og laga dvergastyttur fyrir Eyjamenn en Palli er rétt að verða 98 ára. Og Palli segist að sjálfsögðu ætla á þjóðhátíð eins og hann hefur alltaf gert.

Dæmdur fyrir að myrða bróður sinn í útför
Karlmaður hefur verið sakfelldur fyrir að myrða eldri bróður sinn í útför í Kerry-sýslu á Írlandi. Patrick Dooley er sá fjórði til að verða dæmdur fyrir að hafa orðið Thomas Dooley að bana þann 5. október 2022.

„Við vorum bara eins og blindur köttur“
Flugsamgöngur, greiðslukerfi og sjónvarpsútsendingar lágu niðri þegar algjört hrun varð í tölvukerfum Microsoft í dag. Tekið gæti talsverðan tíma að vinda ofan af afleiðingum bilunarinnar á heimsvísu, sem hafði einnig áhrif á Íslandi. Kerfi Landsbankans, allra bókasafna landsins og húðmeðferðarstofu í Vegmúla lágu niðri um tíma í dag.

Vandræði á heimsvísu og berskjaldaðir íbúar hjólhýsabyggðar
Kerfisbilun olli vandræðum um allan heim í dag. Flugsamgöngur og greiðslukerfi lágu niðri en íslensk fyrirtæki virðast hafa sloppið vel. Við förum yfir málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við sérfræðing í netöryggismálum í beinni.

Handtekinn eftir fimm metra fall til jarðar
Maður var fluttur á bráðamóttöku Landspítala í dag eftir vinnuslys þar sem hann féll úr fjögurra til fimm metra hæð til jarðar í miðborg Reykjavíkur. Við athugun kom í ljós að hann og samstarfsmaður hans væru á Íslandi í ólöglegri dvöl og höfðu þar að auki ekki tilskilin vinnuréttindi, að sögn lögreglu. Voru þeir báðir handteknir og mál þeirra tekið til skoðunar.

Umræða um ábyrgð starfsfólks MAST eigi ekki rétt á sér
Matvælaráðherra segir umræðu um persónulega ábyrgð starfsfólks Matvælastofnunar á veitingu rekstrarleyfis til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi ekki eiga rétt á sér.

Bandarískur blaðamaður fær sextán ára dóm í Rússlandi
Evan Gershkovich, bandarískur blaðamaður Wall Street Journal, hlaut sextán ára fangelsisdóm í Rússlandi í dag fyrir meintar njósnir.

Hundur fyrir norðan var hætt kominn eftir fjörutíu mínútur í bíl
„Þetta er ekki bara eitthvað útlandavandamál,“ segir Elva Ágústsdóttir, dýralæknir hjá Dýraspítalanum Lögmannshlíð á Akureyri um ofhitnun hunda, en slíkt getur gerst á Íslandi þrátt fyrir að hitinn hér á landi sé talsvert lægri en erlendis.

Landtaka Ísraela í Palestínu ólögmæt
Alþjóðadómstóllinn í Haag hefur gefið út ráðgefandi álit þess efnis að landtaka Ísraela í Palestínu sé ólögmæt. Dómstóllinn kallar eftir því að Ísraelsmenn yfirgefi Palestínu en harla ólíklegt er að þeir verði við því ákalli, enda er álitið óbindandi og óframfylgjanlegt.

Bjarni fór á fund konungs
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra fór á fund Karls III Bretakonungs að loknum fundi Evrópuleiðtoga í Blenheimhöll. Karl Bretakonungur bauð leiðtogum til móttöku í höllinni.

Mikilvægt að tilkynna alvarleg atvik
Fjarskiptastofa, sem samhæfingarstjórnvald á grundvelli netöryggislaga, og CERT-IS, minna á mikilvægi þess að mikilvægar innviðir tilkynni um öll alvarleg atvik og áhættu sem tengjast þjónustuútföllum hjá Microsoft.

Fær ekki að sjá sjálfsvígsbréf sonar síns
Tómas Ingvason fær ekki afhent sjálfsvígsbréf sonar síns sem lést á Litla-Hrauni í maí á þessu ári. Lögreglunni á Suðurlandi er gert að útskýra ákvörðun sína að sýna honum ekki bréfið.

Bendir íbúum á tjaldsvæði í grennd við borgina
„Ég hef ekki verið hlynntur þessari þróun að Reykjavíkurborg búi til hjólhýsagarð sem sérstakt húsnæðisúrræði. Aðal atriðið er það að byggja nóg til þess að allir geti fundið þak yfir höfuðið og mæta sérstaklega lágtekjuhópum með sérstökum úrræðum og það erum við að gera.“

Bretar hefja aftur greiðslur til UNRWA
Bresk stjórnvöld hafa ákveðið að hefja aftur greiðslu fjárframlaga til Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA).

Stærsta atvikið í „mörg, mörg ár“
Meiriháttar kerfisbilun hjá Microsoft hefur valdið hruni í tölvukerfum um allan heim, meðal annars á Íslandi, og skapað öngþveiti á flugvöllum og víðar. Lagfæring á biluninni virðist komin vel á veg en áhrifa kann að gæta í einhverja daga. Netöryggissérfræðingur segir um að ræða eina umfangsmestu kerfisbilun síðari ára, sem sýni fram á mikilvægi góðra viðbragðsáætlana.

Björguðu barni föstu í klósettsetu
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu greindi frá því sem það kallar „sérstaklega áhugavert verkefni.“ Ungum einstaklingi tókst að festa sig í klósettsetu.

Farmenn felldu kjarasamning
Farmenn innan Félags skipstjórnarmanna felldu nýjan kjarasamning í atkvæðagreiðslu á dögunum.

Bilun á heimsvísu og aðstæður hjólhýsabúa
Bilun í hugbúnaði öryggiskerfis hefur valdið miklum erfiðleikum á starfsemi fyrirtækja og stofnana víða um heim. Greint verður ítarlega frá málinu í hádegisfréttum Bylgjunnar og rætt við Guðmund Arnar Sigmundsson, sviðsstjóra hjá CERT-IS netöryggissveit. Hann segir tölvur hreinlega hrynja og að ekki sé hægt að koma þeim aftur í gang án flókinna, tæknilegra og tímafrekra aðgerða.

Veiðimenn með ný heimilsföng valda vandræðum
Hreindýraveiðitímabilið er hafið, en minni kvóti hefur ekki verið gefinn út í meira en 20 ár. Sérfræðingur í hreindýraveiðum hvetur veiðimenn til að fresta ekki veiðiferðum langt fram á haustið. Hann hefur fengið þónokkur veiðileyfi endursend vegna búferlaflutninga veiðimanna.

Enginn liggur undir grun vegna sprengingarinnar
Enginn hefur verið handtekinn og enginn liggur undir grun vegna sprengju sem sprakk á salerni í brottfararsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á fjórða tímanum í gær.

Leggur til atkvæðagreiðslu um Evrópusambandið fyrir kosningar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, leggur til að boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja umsókn Íslands að Evrópusambandinu. Vilji þjóðin sækja um myndi hún svo fá að greiða atkvæði um endanlega niðurstöðu samningaviðræðna.

„Hún er bara heiðarlegur rasisti“
Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur fer hörðum orðum um fyrirkomulag Ásgerðar Jónu Flosadóttur formanns Fjölskylduhjálpar við matargjöf. Ásgerður gefur Íslendingum forgang í matargjöf fram yfir fólk af erlendum uppruna. Bragi segir það að vissu leyti gott að Ásgerður sé „heiðarleg í sínum rasisma“.

Óeirðir brutust út í Leeds þegar flytja átti börn í fóstur
Óeirðir brutust út í Harehills í Leeds á Englandi í gær eftir að yfirvöld komu og sóttu börn sem flytja átti í fóstur. Lögreglubifreið var meðal annars velt á hliðina og kveikt í strætisvagni.

Vaktin: Vandræði um allan heim
Tæknileg vandamál eru að valda flugfélögum, bönkum og fjölmiðlum miklum vandræðum um allan heim.

Blaðamaður sektaður fyrir að segja Meloni litla
Ítalskur blaðamaður hefur verið dæmdur til að greiða Giorgiu Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, 5.000 evrur í miskabætur eftir að hafa gert grín að hæð hennar.

Tæknilegir örðugleikar til skoðunar á Keflavíkurflugvelli
Tæknilegra örðugleika sem hafa valdið því að flugvélar hafi verið kyrrsettar um allan heim gætir einnig á Keflavíkurflugvelli. Flugferðum hefur verið frestað og aflýst í Sydney, Edinborg, Amsterdam og um öll Bandaríkin. Ekki liggur fyrir hversu víðtækur vandinn er og enn sem komið er hefur engum flugferðum verið aflýst til og frá Keflavík.

Skúradembur víða um land
Óstöðugt loft er enn þá yfir landinu og má búast við skúradembum nokkuð víða, einkum síðdegis og í kvöld. Hiti ætti að ná um og yfir fimmtán stig þar sem best lætur.

Flugvélar kyrrsettar, lestir fastar og greiðslukerfi niðri um allan heim vegna tæknivandræða
Tæknileg vandamál eru að valda flugfélögum, bönkum og fjölmiðlum miklum vandræðum um allan heim.