Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Lovísa Arnardóttir skrifar 11. febrúar 2026 23:03 Myndir af Jacques Leveugle og upplýsingar um það hvar hann bjó á hverjum tíma. Lögreglan í Grenoble Franska lögreglan hefur sent frá sér alþjóðlega beiðni til mögulegra fórnarlamba og vitna að gefa sig fram vegna rannsóknar þeirra á máli 79 ára gamals fyrrverandi kennara sem er sakaður um að hafa nauðgað og beitt 89 börn kynferðisofbeldi í fimm heimsálfum. Brot mannsins eru sögð hafa átt sér stað allt frá sjöunda áratugnum til ársins 2022. Fjallað er um málið á vef Guardian.
Þar segir að lögreglan í Grenoble hafi greint frá því að Jacques Leveugle, sem hefur verið í gæsluvarðhaldi í Frakklandi síðan í apríl 2025, væri „skólabókardæmi“ um „raðkynferðisafbrotamann“ sem hafi brotið á börnum í mörgum löndum í meira en fimm áratugi. Brot hans eru sögð hafa átt sér stað í Frakklandi, Þýskalandi og Indlandi. Í frétt Guardian er einnig haft eftir Étienne Manteaux, saksóknara í Grenoble, að hann hafi drepið móður sína, sem var með banvænt krabbamein, og síðar aldraða frænku sína með því að kæfa þær með koddum. Myndir af Jacques Leveugle og upplýsingar um það hvar hann bjó á hverjum tíma. Lögreglan í Grenoble Manteaux hefur biðlað til mögulegra vitna og fórnarlamba að hafa samband við frönsku lögregluna. Hann segir Leveugle hafa unnið með börnum í Þýskalandi, Sviss, Marokkó, Níger, Alsír, Filippseyjum, Indlandi, Kólumbíu og Nýju-Kaledóníu á sjöunda áratugnum og allt þar til árið 2022. „Hann ferðaðist um þessi mismunandi lönd og alls staðar þar sem hann settist að til að starfa sem einkakennari eða kennari hitti hann ungt fólk,“ sagði Manteaux. Í fréttinni kemur jafnframt fram að þó svo að Leveugle hafi aldrei hlotið formlega menntun í kennslu hafi hann starfað við kennslu frá sjöunda áratugnum. Einnig starfaði hann sem leiðbeinandi í ungmennabúðum, með ungum afbrotamönnum í Þýskalandi og á barnaheimili í Bogotá í Kólumbíu. Báru kennsl á 89 fórnarlömb Leveugle hefur verið í gæsluvarðhaldi frá því í apríl í fyrra en lögregla hefur verið með mál hans til rannsóknar frá því í febrúar árið 2024. Leveugle er sagður hafa skrifað um brot sín í skjal sem hafi fundist á USB-lykli. Frændi hans afhenti lögreglu gögnin. Í frétt Guardian segir að saksóknurum hafi tekist að bera kennsl á 89 fórnarlömb Leveugle í skjalinu. Drengir sem hafi verið á aldrinum 13 til 17 ára þegar meint brot áttu sér stað, frá 1967 til 2022. Franska lögreglan leitar að fleiri hugsanlegum fórnarlömbum eða vitnum í þeim löndum þar sem Leveugle starfaði. „Ef fórnarlömb vilja gefa sig fram ættu þau að gera það núna því við þurfum að ljúka þessari rannsókn árið 2026 til að geta haldið réttarhöld innan hæfilegs tímaramma,“ er haft eftir Manteaux í frétt Guardian.
Frakkland Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Nýja-Kaledónía Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira