Ómar og Þórólfur segja frá flugferðinni með Flosa Kristján Már Unnarsson skrifar 12. febrúar 2026 09:50 Ómar Ragnarsson, þá fréttamaður á Stöð 2, ræddi við Þórólf Magnússon á Reykjavíkurflugvelli árið 1993. Stöð 2/skjáskot Fjölmiðlamaðurinn og flugmaðurinn landskunni, Ómar Ragnarsson, heimsótti helstu þjóðsagnapersónu innanlandsflugsins, Þórólf Magnússon flugstjóra á nýliðnu ári. Saman rifjuðu öldungarnir upp gamlar flugsögur, eins og þegar þeir flugu að vetrarlagi norður í land á lítilli einshreyfils flugvél með Flosa Ólafsson leikara skelkaðan í aftursætinu.
Þeir Ómar og Þórólfur eru meðal viðmælenda Flugþjóðarinnar í þætti sem fjallar um litlu flugfélögin. Sjá mátti brot úr þættinum í kvöldfréttum Sýnar. Á blómaskeiði litlu flugfélaganna urðu flugmenn eins og Þórólfur þjóðsagnapersónur í samfélögum víða um land. Árið 1993 ræddi Ómar, þá fréttamaður á Stöð 2, við Þórólf á Reykjavíkurflugvelli um hin ýmsu ævintýri sem hann hafði ratað í.Aldarþriðjungi síðar fylgdum við Ómari í heimsókn til Þórólfs til að rifja upp þessar gömlu flugsögur og urðu þar fagnaðarfundir. Ómar Ragnarsson heimsótti Þórólf Magnússon á nýliðnu ári en þeir eru meðal viðmælenda þáttar Flugþjóðarinnar um litlu flugfélögin.Egill Aðalsteinsson Í viðtalinu forðum vék Ómar að þeim kæk Þórólfs undir stýri að flauta lagstúf ef eitthvað mikið væri að í fluginu. Ómar sagði svo söguna af því þegar Flosi Ólafsson sat afturí hjá þeim í lítilli einshreyfils vél í Húnavatnssýslum. Ómar kvaðst fyrir flugferðina hafa varað Flosa við því að ef Þórólfur byrjaði rólega að flauta lagstúf væri eitthvað mikið að. „Og það passar. Þórólfur byrjar að flauta. Og þá sagði Flosi þegar hann var að segja frá þessu eftirá: „Og þá fór nú heldur betur um mig og maður var nú fljótur að grípa til flöskunnar.“ Hann hafði ekki farið í meðferð og var með eina flösku fulla í aftursætinu til trausts og halds. Af því að hann sá að umræðuefnið frammí var dálítið taugatitrandi að hlusta á það. „Því þá segir Ómar við Þórólf: „Segðu mér hérna Þórólfur. Þetta hvíta sem er þarna fyrir framan okkur. Er þetta fjall eða ský?“.“ Hughreystandi,“ segir Ómar hlæjandi í frétt Sýnar: Sögulokin og fleiri flugsögur geta áskrifendur heyrt á streymisveitunni Sýn+. Ómar segir einnig söguna af því þegar Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra kvartaði undan því að Ómar hefði ekki varað hann við því fyrirfram hvernig væri að lenda á Suðureyrarflugvelli, sem stóð á syllu ofan þorpsins. „Hver heldurðu að fljúgi svona, Ómar?“ Hér er fjögurra mínútna kafli úr þættinum:
Flugþjóðin Fréttir af flugi Tengdar fréttir Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug „Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður. 26. desember 2025 07:47 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sjá meira
Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug „Þetta var núllpokaflug,“ var svarið sem flugfreyjurnar Edda Björk Friðriksdóttir og Eva María Hilmarsdóttir gáfu eftir lendingu Dash 8 Q400-vélar Icelandair á Akureyri þegar spurt var hvort einhverjir ælupokar voru notaðir í fluginu frá Reykjavík. Í flugstjórnarklefanum sátu þeir Jóhann Ingi Sigtryggsson flugstjóri og Egill Andri Jóhannesson flugmaður. 26. desember 2025 07:47