Fréttir
187 188 189 190 191 192 193 194 195 … 334 ›
Sigldu um allan Breiðafjörð vegna lítils báts með bilað stýri Tvö björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kölluð út í dag til að aðstoða fiskibáta í vandræðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu. Innlent 27.6.2024 18:39
Erfið staða Sjálfstæðisflokksins og Cybertruck mættur til Íslands Flokkarnir sem mynda núverandi meirihluta í Reykjavík gætu myndað ríkisstjórn með ríflegum meirihluta samkvæmt nýlegri könnun Maskínu. Stjórnmálafræðingur segir Sjálfstæðisflokkinn þurfa að gera upp við sig hvert hann sækir tapað fylgi. Formaðurinn tekur fylgistapinu alvarlega. Við förum yfir stöðuna í pólitíkinni í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 27.6.2024 18:07
Hvorugt þeirra man eftir slysinu Karlmaður hlaut í dag þrjátíu daga fangelsisdóm, skilorðsbundinn til eins árs, í Héraðsdómi Norðurlands eystra vegna ofsaaksturs í Öxnadal í byrjun nóvember árið 2020, en bíll mannsins endaði utan vegar. Ökumaðurinn og kona sem var farþegi í bílnum slösuðust, en hvorugt þeirra man eftir slysinu. Innlent 27.6.2024 17:53
Endurvekja gamlan draum um heilsulind í Perlunni Zeppelin arkitektar hafa auglýst eftir samstarfsaðila til að kaupa Perluna og byggja þar hótel, heilsulind og baðlón. Orri Árnason arkitekt, segir að hugmyndin sé rúmlega tíu ára gömul, en nú sé aftur tækifæri til að láta hana raungerast. Innlent 27.6.2024 16:28
Fjölga leikskólaplássum í miðbænum Samþykkt var á í borgarráði í dag að fjölga leikskólaplássum í leikskólanum Miðborg í miðbæ Reykjavíkur um 75. Rekstarleyfi leikskólans Miðborgar hefur verið fært upp 161 barn en sem stendur eru þar 86 börn með pláss. Innlent 27.6.2024 16:25
Hefja innflutning á Ozempic til að bregðast við skorti Lyfjaver flytur inn Ozempic til að bregðast við skorti á lyfinu hér á landi undanfarið. Lyfjaver hefur haft markaðsleyfi fyrir Ozempic í rúm tvö ár en markaðsaðstæður hafi ekki þótt hagstæðar til innflutnings þar til nú. Innlent 27.6.2024 16:10
Endurtekið efni á Stöð 2 vegna rafmagnsbrunans Enn er unnið að viðgerð vegna rafmagnsbruna sem kom upp í tækjarými Sýnar í nótt. Vegna þess er sjónvarpsdagskrá Stöðvar 2 og Stöðvar 2 Sport með óhefðbundnum hætti sem lýsir sér þannig að viðskiptavinir sjá endurtekið efni. Innlent 27.6.2024 15:58
Ferðaþjónustan þurfi að hætta þessu væli Framkvæmdastjóri Úrvals útsýnar segir ekki sjálfsagt að almenningur greiði undir markaðsherferðir fyrir Ísland sem ferðamannastað. Nú sé ekki rétti tíminn til að hrinda af stað markaðsherferð fyrir Ísland heldur komast að því hver ástæða samdráttarins sé. Innlent 27.6.2024 15:05
Fimm ár fyrir tilraun til manndráps á aðfangadag Ásgeir Þór Önnuson hlaut í dag fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps með skotárás á heimili í Hafnarfirði síðastliðið aðfangadagskvöld. Hann braust grímuklæddur inn á heimili í Hafnarfirði, og skaut sex skotum úr skammbyssu í átt að níu ára stúlku og föður hennar. Innlent 27.6.2024 14:52
Færeysku og grænlensku bætt við Google Translate Bráðum verður hægt að nota þýðingarvél Google til að þýða á og úr málum nágrannaþjóða okkar. Færeysku og grænlensku verður bætt við þýðingarvélina á næstunni ásamt 108 öðrum málum um allan heim, allt frá fámennum málsvæðum eins og Færeyjum og til fjölmennari mála eins og kantónsku. Erlent 27.6.2024 14:09
Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt Joe Biden og Donald Trump mætast í fyrri kappræðum sínum fyrir forsetakosningarnar í nótt. Prófessor í stjórnmálafræði segir á brattann að sækja fyrir Biden, sem þurfi að sanna sig fyrir kjósendum í kappræðum kvöldsins. Erlent 27.6.2024 13:57
Íbúar Grafarvogs óánægðir með þéttingaráform Mikillar óánægju gætir meðal hóps íbúa í Grafarvogi um áform borgarinnar um uppbyggingu í hverfinu. Hópurinn óttast að græn svæði hverfi fyrir þéttri byggð og hefur stofnað undirskriftalista til að mótmæla byggingu á fjölbýlishúsi á lóð við Smárarima/Sóleyjarima. Innlent 27.6.2024 13:49
Heildarkostnaður við varnargarða nærri sjö milljarðar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur gefið ríkislögreglustjóra heimild til að hefja vinnu við hækkun og styrkingu varnargarða í nágrenni Grindavíkur. Heildarkostnaður við garðana er metinn á nærri sjö milljarða króna. Innlent 27.6.2024 13:37
Segja aðgerðir lögreglu úr hófi og vilja miskabætur Níu mótmælendur krefjast miskabóta frá ríkinu vegna þess sem þeir segja harkalegar og tilhæfulausar aðgerðir lögreglu 31. maí síðastliðinn. Innlent 27.6.2024 13:34
Gul viðvörun allan morgundaginn Veðurstofan hefur gefið út gula viðbörun fyrir Suðausturland og Austfirði. Viðvörunin tekur gildi á miðnætti og stendur til klukkan ellefu á föstudagskvöld. Veður 27.6.2024 13:31
Fastagestur á níræðisaldri káfaði á konu í sundi Karlmaður fæddur árið 1940 hefur verið sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni með því að káfa á konu í sundlaug á Vestfjörðum. Ákvörðun refsingar mannsins, sem er fastagestur í lauginni, var frestað og hún fellur niður haldi hann skilorð í tvö ár. Innlent 27.6.2024 13:30
Muni styrkja bæinn og starfsemi skólans gríðarlega Í dag var undirritað samkomulag um byggingu nýs Tækniskóla í Hafnarfirði. Með samkomulaginu er fjármagn til byggingar nýs skóla tryggt og hægt að fara í útboð á framkvæmdum og hönnun skólans. Innlent 27.6.2024 13:20
Sanna stefnir á þing Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, hyggst bjóða sig fram til þings fyrir hönd flokksins hljóti hún stuðning félaga sinna. Innlent 27.6.2024 12:28
Eldsupptök enn ekki skýr Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vinnur að rannsókn brunans sem kom upp á jarðhæð Turnsins á Höfðatorgi í gær. Innlent 27.6.2024 12:07
Vilhjálmur kallar eftir tafarlausri vaxtalækkun Formaður Starfsgreinasambandsins segir efnahagslífið á leið í miklar ógöngur verði vextir ekki lækkaðir mjög hratt. Í miklum húsnæðisskorti væru nýbyggingar hægt og bítandi að stöðvast vegna þess hvað vextir væru háir miðað við verðbólgu. Viðskiptabankarnir gætu gengið á undan með góðu fordæmi og lækkað sína vexti strax. Innlent 27.6.2024 11:43
Krafa um hraða vaxtalækkun og Tækniskólinn rís í Hafnarfirði Í hádegisfréttum fjöllum við um efnahagsástandið í landinu en verðbólgan er komin undir sex prósent í fyrsta skipti í langan tíma. Erlent 27.6.2024 11:38
Fyrstu kappræðurnar í fjögur ár gætu skipt sköpum Fyrstu kappræður forsetaefnanna tveggja, Joe Biden, Bandaríkjaforseta fyrir Demókrataflokkinn, og Donald Trump fyrrverandi forseta fyrir Repúblikanaflokkinn, í fjögur ár fara fram í kvöld á sjónvarpsstöðinni CNN. Kappræðurnar gætu skipt sköpum fyrir baráttu frambjóðendanna tveggja og ljóst er að mikið er í húfi. Erlent 27.6.2024 11:11
Semja um 27 milljarða króna Tækniskóla í Hafnarfirði Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði. Stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis í dag. Næstu skref eru undirbúningur hönnunar og framkvæmdar með áætluð verklok haustið 2029. Heildarkostnaður er áætlaður 27 milljarðar króna. Innlent 27.6.2024 10:58
Segir íslenskuna dauðadæmda Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson segir íslenska tungu dauðadæmda. Útlensk áhrif sótt í pólitíska rétthugsun séu að valda því að þjóðin öll verði sýkt af hvorugkynssýki. Innlent 27.6.2024 10:44
Guðrún boðar lokuð búsetuúrræði strax í haust Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra gefur ekki þumlung eftir í útlendingamálunum en hún boðaðar breytingar: Fingrafaraskannar á landamærum, lokuð búsetuúrræði og að umsóknum um hæli á Íslandi verði komið niður í tvö til þrjú hundruð. Innlent 27.6.2024 10:25
Eldur kviknaði í ráðuneyti Eldur kviknaði í húsakynnum skattamálaráðuneytis Danmerkur í miðborg Kaupmannahafnar í morgun. Stórir reykjarstólpar stigu upp úr byggingunni við síkið í Kristjánshöfn. Erlent 27.6.2024 10:04
Lægð á leið til landsins en sól á Suðurlandi í dag Vestur af Skotlandi er lægð á leið norður og skilin frá henni eru að nálgast Austfirði með norðlægri átt og rigningu. Er líður á daginn verður norðanátt á öllu landinu, yfirleitt kaldi eða stinningskaldi. Veður 27.6.2024 08:43
Íslenskir jöklar minnka um fjörutíu ferkílómetra á ári Heildarflatarmál íslenskra jökla minnkar um það bil um 40 ferkílómetra á ári, eða sem nemur einu Mývatni á ári. Frá aldamótum hefur flatarmál íslensku jöklanna minnkað um um það bil 850 ferkílómetra eða sem samsvarar næstum tíu Þingvallavötnum. Hop íslensku jöklanna er sagt skýrt merki um hlýnandi loftslag. Jöklafræðingar segja áríðandi að fylgjast vel með og minna á alvarlega stöðu. Innlent 27.6.2024 08:14
Rafmagnsbruni truflar útsendingar Stöðvar 2 Rafmagnsbruni kom upp í tækjarými Sýnar í nótt. Útsending liggur því niðri á Stöð 2 Sport 3, 4, og 5. Bilunin truflar ekki dagskrá eins og er og unnið er að viðgerð. Innlent 27.6.2024 08:01
Vill varúðarmerkingar á gjörunna matvöru Gjörunnin matvara ætti að lúta sömu reglum og tóbaksvörur og setja ætti greinileg varnaðarorð á umbúðir slíkra vara. Erlent 27.6.2024 07:24