Á sjötta tug vísað úr landi Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 6. maí 2026 21:31 Ásgeir Þór Ásgeirsson Vísir/Anton Brink Á sjötta tug hefur verið vísað frá Íslandi eftir að hafa brotið af sér á þessu og síðasta ári. Lögregla segir mál sem þessi tekin fastari tökum en áður og kallar eftir lagabreytingum til að tryggja skjótari meðferð mála.
Dómsmálaráðherra boðaði í byrjun febrúar harðari aðgerðir stjórnvalda gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Á meðal þess sem felst í þeim er að stórauka fjölda brottvísana fólks sem dvelur á Íslandi í annarlegum tilgangi líkt og sagði í tilkynningu frá ráðuneytinu. „Það má algjörlega fullyrða að við höfum verið að taka þessi mál fastari tökum,“ segir Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir breyttan veruleika kalla á breytt vinnubrögð. Það sem af er þessu og síðasta ári er búið að brottvísa þrjátíu og fimm manns og frávísa átján sem hafa gerst sekir um brot. Þá hefur lögreglan það sem af er ári sent á annað hundrað erindi til Útlendingastofnunar þessu tengt. Endurkomubann til allt að átta ára getur fylgt brottvísun en þó ekki alltaf en það fylgir aldrei frávísun. Dæmi eru um að þeir sem fá ekki endurkomubann komi strax hingað aftur. Þegar farið er fram á brottvísun og endurkomubann geta viðkomandi einstaklingar leitað til kærunefndar útlendingamála með sín mál. Ásgeir segir málsmeðferðina þar geta tekið nokkra mánuði. „Þá erum við í raun og veru kannski búin að kaupa sex til átta mánaða vernd innan kerfisins þá fremja áfram brot.“ Til bóta væri að skoða þetta fyrirkomulag að hans mati. „Ef lögunum yrði breytt þannig að kæra til kærunefndar útlendingamála myndi ekki fresta réttaráhrifum væri það frábært og þá einnig ef það fylgdi endurkomubann með öllum brottvísunum.“ Breyttar áherslur lögreglunnar hafi strax skilað árangri. „Við erum auðvitað að senda skilaboð og við reynum að forgangsraða auðvitað hverjir fara fremst í röðinni og hverjir ekki. Við erum að losa okkur kannski við fólk sem á fjölda afbrota hjá okkur og síðan höfum við líka verið að taka fólk sem hefur ekki endilega verið í auðgunarbrotum og öðru heldur hefur verið bara hér í þjóðfélaginu til ama og hefur verið með fjöldamörg brot því tengd þannig að lögreglan er kannski með tvö til þrjú útköll á einstakling hvern dag og við höfum líka verið að finna þessa einstaklinga og beita þessum úrræðum.“
Lögreglumál Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira