Skotíþróttamenn langeygir eftir starfsleyfi Samúel Karl Ólason skrifar 7. maí 2026 09:54 Frá skotsvæði Skotfélags Reykjavíkur á Álfsnesi. Vísir/Sammi Umsókn Skotfélags Reykjavíkur um starfsleyfi á Álfsnesi er enn til afgreiðslu hjá Reykjavíkurborg. Forsvarsmenn félagsins segja iðkendur skotíþrótta orðna langeyga eftir því að borgaryfirvöld taki af skarið og sjái til þess að skotsvæðið verði opnað. Opna verði svæðið til að þjóna ýmsum nauðsynlegum verkefnum.
Í pistli sem birtur var á vef Skotfélagsins í gær eru nokkur af þessum verkefnum nefnd, eins og þjálfun skotíþróttafólks, æfingar og próftökur fyrir veiði, verkleg þjálfun fyrir tilvonandi byssuleyfishafa og alþjóðlegt mótahald. Þar segir einnig að félagsmenn í Skotfélagi Reykjavíkur séu 1.800 talsins en mun fleiri hafi sótt svæðið, þar sem það hefur verið opið öllum sem vilja æfa sig, án tillits til félagsaðildar. „SKOTREYN er í sömu stöðu í nágrenni við okkur og til skammar fyrir Reykjavíkurborg að vera ekki búin að taka af skarið og sjá til þess að sjálfboðaliðarekin íþróttafélög þurfi ekki að eyða öllum sínum tíma í að berja á hinu opinbera í stað þess að vera að efla íþróttastarf í landinu,“ segir í pistlinum. Þá eru embættismenn og kjörnir fulltrúar hvattir til að grípa til aðgerða. Starfsleyfi skotvallarins var fellt úr gildi í október í fyrra en lengi hefur verið deilt um svæðið, þó skotvöllurinn hafi verið rekinn þar í meira en áratug. Það var úrskurðarnefnd sem felldi úr gildi ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að samþykkja starfsleyfið á þeim grunni að eftirlitið hefði átt að krefjast þess að hljóðmælingar færu fram á vellinum. Sjá einnig: Starfsleyfi skotvallar á Álfsnesi enn á ný fellt úr gildi Búið er að grípa til mikilla umbóta á svæði Skotfélags Reykjavíkur á undanförnum árum. Þá hafa verið framkvæmdar hljóðmælingar. Verkfræðistofan VERKÍS var fengin til að vinna skýrslu um hljóðmengun frá svæðinu í ágúst í fyrra en í pistlinum segir að hljóðmengunin hafi ávallt verið innan leyfilegra marka.
Skotíþróttir Stjórnsýsla Skotveiði Deilur um skotsvæðið á Álfsnesi Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sjá meira